Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 30.04.2020, Blaðsíða 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 544 5151tímapantanir Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR Í LJÓSI AÐSTÆÐNA COVID19 Við hjá Bíljöfur höfum tekið upp nýjar vinnureglur varðandi bifreiðar sem koma til viðgerða, bæði til að tryggja öryggi starfsmanna og viðskiptavina. Bifreiðar sprittaðar fyrir og eftir viðgerðir. Einnig bjóðum við upp á að: • Fólk borgi reikning með símgreiðslu/millifærslu. • Bifreið sé sótt heim eða í vinnu til eiganda á höfuðborgarsvæðinu og henni skilað aftur eftir viðgerð. Er kominn tími til að fara með bílinn í bifreiðaskoðun? Við getum séð um það fyrir þig. Sjá nánara fyrirkomulag á facebooksíðunni okkar Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Starf mitt núna felst í því að blása í gjallarhorn bjartsýninnar, en það hlutverk hentar mér ágætlega. Með bjartsýnina að leiðarljósi og kraft- inn í farteskinu er allt mögulegt,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir borgarleikhússtjóri og rifjar upp ummæli Vigdísar Finnbogadóttur, forvera síns í starfi á árunum 1972- 1980, í aldarsögu Leikfélags Reykjavíkur. „Þar lýsir Vigdís því svo að hún hafi verið fallhlífar- hermaður allt fyrsta árið sitt hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Mér verður oft hugsað til þessara orða þegar ég velti fyrir mér hvert við förum og hvar við lendum í núverandi ástandi. Ég veit að fallhlífin mín virkar þótt landið undir sé óþekkt. Allur heimurinn er, vonandi, að reyna að hlusta sig saman og mun síðan stíga næstu skref saman – því ég trúi því ekki að allt fari aftur í sama farið,“ segir Brynhildur og bendir á að leiðarstef leikársins 2020 til 2021 kallist á við þetta. „Leiðarljósið í verkefnavali næsta vetrar er sjálfsmynd okkar – sem borgarbúa, Íslendinga og íbúa heimsins. Þetta var byrjað að mót- ast áður en yfirstandandi faraldur braust út. Það verður forvitnilegt að skoða hver sjálfsmynd okkar verður þegar við komum út úr kófinu.“ Stundaglasið liggur á hlið Það er óhætt að segja að þú hafir fengið ákveðna eldskírn í stóli borgarleikhússtjóra. Ráðningu þína bar brátt brátt þegar forveri þinn baðst lausnar með skömmum fyrir- vara og innan við hálfum mánuði eftir að þú tókst við stjórnar- taumum var síðan sett á samkomu- bann. „Já, þetta eru ótrúlega skrýtnir tímar. Ég upplifi tímann núna eins og stundaglasið hafi lagst á hliðina með þeim afleiðingum að rennslið hefur stoppað. Ég hrósa happi að starfa hér með frábærum hópi starfsmanna. Menn hafa sýnt sam- hug og skilning gagnvart aðstæð- unum sem er ómetanlegt í þessari stöðu. Og sem betur fer hefur ekki þurft að segja upp neinu starfsfólki í þessu ástandi,“ segir Brynhildur og tekur fram að hún sé kortagestum leikhússins einnig afar þakklát fyrir sýndan skilning og þolinmæði á þessum erfiðu tímum. Misjafnt er við leikhússtjóraskipti hversu fljótt nýr stjórnandi getur sett mark sitt á efnisskrána. Hvern- ig verður þetta hjá þér? „Kristín [Eysteinsdóttir] var auð- vitað búin að búa vel í haginn,“ segir Brynhildur og bendir á að sökum þess hversu snögglega ráðninguna bar að hafi ákveðnir hlutir þegar verið komnir í ferli. „Vegna sam- komubannsins munum við færa nokkrar sýningar af þessu leikári yfir á það næsta, auk þess að kynna glænýtt efni. Við vorum nýbúin að frumsýna stóra Bubba-söngleikinn okkar Níu líf auk þess sem fallega barnasýningin Gosi var í sýningu,“ segir Brynhildur og bendir á að í ljósi aðstæðna fari leikhúsið fyrr í sumarfrí en ella og hefji næsta leik- ár einnig fyrr en vanalega, en sýn- ingar á Níu lífum hefjast strax í ágúst. „Í sama mánuði frumsýnum við Oleönnu og í september hefjast sýningar aftur á Gosa og Er ég mamma mín? og við frumsýnum Veislu,“ segir Brynhildur og tekur fram að hún fari sér að engu óðslega í nýju hlutverki. „Borgarleikhúsið er kraftmikil og litrík menningarstofnun í blómleg- um rekstri – og hefur verið það um langt árabil. Að sjálfsögðu höldum við áfram á þeirri braut þótt við þurfum núna tímabundið að draga saman seglin meðan yfirstandandi stormur geisar. Við erum bara í vari áður en við höldum siglingunni áfram. Ég kem því ekki inn með neinum látum. Skipulagsbreyting- arnar munu koma, en ég þarf fyrst að hlusta mig inn í leikhúsið – sér- staklega í ljósi aðstæðna,“ segir Brynhildur og bendir á að nú þegar hafi orðið ákveðin nýmönnun í ýms- um deildum sem tengist annars veg- ar því að starfsfólk hafi látið af störfum vegna aldurs eða skipt um starfsvettvang í tengslum við þær stóru breytingar sem orðið hafa í íslensku leikhúslífi með ráðningu tveggja leikhússtjóra með skömmu millibili. Áhersla á stórar gleðisýningar „Við viljum vera ung, fersk og að- gengileg. Ég vil fá ungu og nýju fólki tækifæri,“ segir Brynhildur og bendir í því samhengi á að Marí- anna Clara Lúthersdóttir sé komin til starfa á skrifstofu leikhússins sem nýr dramatúrg og Pétur Ármannsson hafi nýlega verið ráð- inn leikstjóri við húsið til eins árs og muni leikstýra tveimur sýningum á komandi leikári. „Mig langar að hrista upp í hlutunum,“ segir Bryn- hildur og tekur fram að meðal þess listafólks sem komi til starfa í Borgarleikhúsinu á næsta leikári séu bæði nýútskrifaðir leikarar og ungt fólk sem búið hefur og starfað erlendis síðustu misseri. „Það verð- ur því ákveðin hreyfing í starfs- mannahópnum þótt okkar traust- asta fólk verði áfram á staðnum.“ Í lögum um sviðslistir er kveðið á um aðalverkefni Þjóðleikhússins. Þótt lögin gildi ekki um Borgarleik- húsið hefur það engu að síður um alllangt skeið starfað eftir svipaðri forskrift. Hver er þín skoðun á því? „Í samþykktum Leikfélags Reykjavíkur kveður á um starfsemi Borgarleikhússins og eftir þeirri forskrift störfum við. Verkefnavalið hverju sinni stýrist af hlustun á samfélagið og við þurfum einnig að svara eftirspurninni þar sem við störfum á markaði með kröfu um mikið sjálfsaflafé. Við munum því eftir sem áður leggja áherslu á stór- ar gleðisýningar,“ segir Brynhildur og vísar þar til mannmargra söng- leikja og fjölskyldusýninga með tón- list sem henti breiðum aldurshópi áhorfenda. Ólíkar raddir hljómi „Við munum líka eftir sem áður leggja rækt við íslenska leikritun,“ segir Brynhildur og vísar til þess að Borgarleikhúsið hefur síðustu ár reglulega ráðið leikskáld leikrit- unarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur með það að markmiði að stuðla að auknum áhuga ungs fólks á leikrit- unarforminu og kynna verðandi leikskáldum lögmál leiksviðsins. Meðal þeirra verka sem ratað hafa á svið fyrir tilstilli sjóðsins eru Stór- skáldið eftir Björn Leó Brynjarsson og Hótel Volkswagen eftir Jón Gnarr. „Sú nýbreytni verður í ár að við tökum inn tvö leikskáld í stað eins. Þetta eru þau Matthías Tryggvi Haraldsson og Eva Rún Snorra- dóttir, sem vinna sem leikskáld á mjög ólíkan hátt. Mig langar að dýpka samtal leikhússins við leik- skáldin og því fá þau hvort um sig rými í sýningarröðinni Umbúða- laust til að þróa verk í vinnslu. Þarna gefst þeim tækifæri til að ýfa stélfjaðrirnar og prófa vængina áð- ur en skilað er inn á borð fullbúnu leikriti sem við munum síðan sýna,“ segir Brynhildur sem sjálf nam leik- ritun við Yale School of Drama í Bandaríkjunum fyrir nokkrum ár- um. „Það má öllum vera ljóst að bandaríska klassíkin sem er margbúin að sanna sig varð til í vinnustofum innan leikhúsanna þar sem textarnir fóru ítrekað í gegnum síur umskrifana,“ segir Brynhildur og vísar þar til leikskálda á borð við Arthur Miller og Eugene O’Neill. „Það er hlutverk okkar að hjálpa höfundum að finna listræna farar- tækið fyrir raddir framtíðarinnar, enda eru leikrit ekki eitthvað eitt heldur alls konar. Stundum er áherslan á orðin og stundum á áþreifanleikann,“ segir Brynhildur. Kjörorðin „ung, fersk og aðgengi- leg“ vísa, að sögn Brynhildar, einnig til þess að leikhúsið hyggst skoða hlutina með ferskum augum. „Ég held að við megum alveg fara að skoða klassísku verkin okkar. Sam- tímis væri áhugavert að skoða bað- stofusögurnar okkar sem innihalda frásagnir af álfum, tröllum og draugum. Við þurfum að þjappa okkur saman með sögum til að skilja okkur sjálf og sögurnar þurfa að kallast á við samfélagið. Rætur Leikfélags Reykjavíkur felast í því að höfða til sálar fólks og í þeim skilningi er Borgarleikhúsið alþýð- legt leikhús. Við getum ekki nema á traustum grunni og með þekkingu á fortíðinni skilið framtíðina. Mér finnst spennandi rannsóknarefni að sjá hvað gerist þegar yngsta fólkið tekur á elstu sögunum og skoðar hvernig þær tala inn í samtímann.“ Leikhús er teymisvinna Áður en þú varst ráðin borgar- leikhússtjóri var búið að opinbera að þú myndir leikstýra Makbeð eftir Shakespeare. Finnst þér mikilvægt að vera leikstýrandi leikhússtjóri? „Mér finnst mjög spennandi að leikhússtjóri sé sjálfur starfandi listamaður, enda má maður ekki gleyma því hvernig það er að vera á gólfinu. Leikhús er teymisvinna,“ segir Brynhildur og bendir á að það nýtist sér sem leikhússtjóra að þekkja framleiðsluna frá öllum hlið- um. „Ég hef verið leikari, leikstjóri, höfundur, dramatúrg og framleið- andi sýninga,“ segir Brynhildur og tekur fram að reynslan við að skrifa og setja upp einleikinn Brák árið 2009, sem hún lék um 180 sinnum næstu árin, hafi breytt hugsun hennar og nálgun. „Reynslan hefur kennt mér að ég rótfesti mig alltaf í tungumálinu og fræðunum, enda hef ég notið dyggr- ar aðstoðar starfsmanna Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í gegnum tíðina,“ segir Brynhildur og tekur fram að með tímanum hafi vaknað hjá sér löngun til að segja sögur á annan hátt – þá sem leikstjóri en ekki leik- ari. „Í framhaldinu fann ég kraft og þörf fyrir að stíga lengra og þá sótt- ist ég eftir stjórnunarstöðu innan leikhússins,“ segir Brynhildur og tekur fram að sem stjórnandi vilji hún vera aðgengileg og gefa sam- starfsfólki sínu tækifæri. „Ég veit hvað það er dýrmætt að vera treyst fyrir verkefnum og við vöxum ekki nema í gegnum áskoranir.“ Kveikja eld í hjarta fólks Talið berst aftur að tungumálinu þegar Brynhildur upplýsir að hún hafi það að markmiði að láta vinna nýjar þýðingar að öllum þeim erlendu verkum sem sýnd verði í Borgarleikhúsinu næstu árin. „Mér er tungumálið mjög hug- leikið. Ég vil stuðla að því að við töl- um gott íslenskt mál, en séum sam- tímis óhrædd við að leika okkur með málið. Leikhúsið er svo ótrúlega máttugt fyrirbæri. Hér höfum við tækifæti til að nota þessa flóknustu og margslungnustu uppfinningu mannsins – sem er tungumálið – í því skyni að segja sögur og kveikja eld í hjarta fólks,“ segir Brynhildur og bendir á að sagnahefðin, hvort heldur er við varðeld frummannsins eða á baðstofulofti fyrri alda, tengist þörfinni fyrir að skilja okkur sjálf betur. „Ef við vitum ekki hver við erum fáum við aldrei frið í sálinni. Og hvað er betra en að stíga inn í sal fullan af fólki þar sem allir upp- lifa það sama og rifna úr hlátri eða sitja algjörlega hljóð þegar mikil- væg saga er sögð eða leyfa sér að hágráta og taka til í eigin sálarlífi þegar eitthvað sorglegt ber fyrir augu? Ég vil halda áfram að vera aðgengilegur sagnamaður og nú gefst mér tækifæri til að gera það sem leikhússtjóri,“ segir Brynhildur sem hlakkar til að fá leikhúsgesti aftur í hús undir lok sumars. „Mig dreymir um að Borgarleikhúsið verði hér eftir sem hingað til sjálf- sagður viðkomustaður allra lands- manna. Hér eiga allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“ Morgunblaðið/Eggert Happ „Ég hrósa happi að starfa hér með frábærum hópi starfsmanna,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir. „Með bjartsýnina að leiðarljósi“  „Við viljum vera ung, fersk og aðgengileg,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir, nýr borgarleikhús- stjóri, sem vill gefa nýju og ungu fólki tækifæri  „Við vöxum ekki nema í gegnum áskoranir“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.