Morgunblaðið - 30.04.2020, Side 49

Morgunblaðið - 30.04.2020, Side 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 Gelísprautun Greiddu fyrir meðferð í dag og nýttu þér tilboðið hjá okkur. Bókaðu og nýttu meðferðina þegar hentar þér best! Náttúruleg fylling í varir, kinnbein, höku og línur APRÍL TILBOÐ 30% afsláttur D-salur Listasafns Reykja-víkur hefur síðan 2007 ver-ið helgaður list ungra lista-manna sem sýningar- stjórar safnsins telja að hafi mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu hverju sinni. Endurnýjun er mikilvæg í list- inni eins og öðru og í salnum er lista- mönnum boðið snemma á ferli sínum að halda sína fyrstu einkasýningu í safni. D-sals sýningaröðin hefur heppnast mjög vel og er mikilvægur þáttur í orðspori Listasafns Reykja- víkur sem fremsta samtímalistasafns landsins. Sýningarnar eru oft með því ferskasta sem er í gangi og er núver- andi sýning svissneska listamannsins Andreas Brunner engin undantekning þar á. Andreas útskrifaðist nýlega með MA-gráðu úr myndlist frá Listasháskóla Íslands og val á lista- manninum varpar ljósi á áhugavert starf innan deildarinnar en þar er lögð áhersla á myndlistarsköpun sem rannsóknartæki og að vera vett- vangur alþjóðlegrar samræðu með fjölda nemenda úr listaskólum erlend- is frá. Í björtu hylki Í innsetningu Andreasar hefur hvít- málaður salurinn með þremur suður- gluggum og tveim átthyrndum burðarsúlum fengið að njóta sín eins og hann er. Verkin eru dreifð um sal- inn sem verður að einskonar björtu hylki lýstu upp af endurskini sólar- innar. Vörpun skugga í ofurhvítu rým- inu verður hluti af sýningar- upplifuninni en allt þetta er að sjálfsögðu háð tilviljun þess tíma dags sem áhorfandinn sækir sýninguna heim. Skuggaspilið verður einkum áberandi í sambandi við ósamsíða trapísulagaða flata trégrind sem ligg- ur fyrir miðju salarins, aðeins þó til hliðar, og hvílir á átthyrndu grindar- verki á þrem upplásnum glærum plastboltum í þeirri stærð sem hægt er að hossa sér á. Allir eu þeir merktir ’Gymni Opti-ball’ og eru framleiddir í Osoppo á Ítalíu. Annað tilvilj- unarkennt atriði sem kalla á óvæntar hugrenningar en að þessu sinni vegna ófyrirsjáanlegs tímasamhengis sýn- ingarinnar. Ofan á grindinni eru svo sex gifsafsteypur af sprungnum bolt- um, slittislegar grálitaðar afsteypur í andstöðu við þanda spennu útblásnu boltanna og bjartan viðarlitinn. reyna að segja? Letrið er skáletrað og virðulegt. Treflarnir minna gangrýnanda Morgunblaðsins frek- ar á evrópska herratrefla fyrri alda frekar en til dæmis fótboltatrefla nútímans en kannski er hann að reyna að finna samstæða frásögn og samtal við málmskúlptúrana úr for- tíðinni. Sýningarstjórinn Markús Þór varar einmitt sérstaklega við því í sýningartexta að rýna í inntak, efni eða form einstakra verka í leit að einhverju til að styðja sig við. Fram og til baka Tvö kvikmyndaverk eru í salnum. Annað er á litlum 21 tommu skjá niðri við gólf á norðurveggnum, alveg við innganginn. Það sýnir ljósgráa engisprettu á trjábol með grænlit- aðar barrtrésgreinar í bakgrunni. Engisprettan ruggar sér fram og til baka og barrtrégreinarnar að því er virðist í takt. Fram og til baka. Öðru hvoru frýs myndin alveg en heldur svo áfram í endalausri endurtekn- ingu. Til að sjá myndina vel verður áhorfandi annaðhvort að krjúpa nið- ur eða láta sér nægja að horfa ofan frá eins og hann myndi gera ef hann horfði á engisprettu í náttúrunni. Hitt verkið er fyrir enda salarins. Það er sýnt á 40 tommu skjá sem stendur lóðréttur á svartri sérsmíð- aðri járngrind. Í verkinu birtist önn- ur hönd sýningarinnar. Að þessu sinni lifandi hönd sem heldur á eld- flaugafrostpinna, bleikum að neðan en hvítum að ofan með súkkulaði- topp. Höndin kreistir frostpinnann, og líkt og gerist þegar granítepli er kreist, þá lekur vökvinn úr frost- pinnanum út um alla hönd þannig að hún er öll orðin klístruð og útötuð litlum súkkulaðibitum sem hefðu get- að verið graníteplisfræ. Bara eru það ekki. Samhljómurinn rjátlar í gegn á hátt sem erfitt er að festa hönd á. Allt stefnir þetta í óefni. Líklegast brotlendingu. Framkvæmd D-sýningaraðar- innar hefur verið með ýmsu móti en undanfarið hefur áhugasömum verið boði að senda inn umsóknir og nokkrir hafa verið valdir. Það hefur ekki oft gerst að listamenn upprunir í öðrum löndum hafa verið valdnir til að sýna. Röðin hefur haft það orð- spor að vera frátekin fyrir þá sem eiga sér langar rætur aftur í kyn- slóðir á Íslandi. Árið 2009 var undan- tekning en þá sýndu Ítalinn Jeanette Castioni, sem útskrifaðst hafði úr BA-námi við Listaháskóla Íslands nokkrum árum áður, og Bandaríkja- maðurinn Ryan Parteka sem hafði þá búið og starfað á Íslandi í nokkur ár. Síðan þá hefur enginn með innflytj- endabakgrunn sýnt í röðinni. Lista- menn hafa allir verið hvítir, karl eða kona og ef til vill ófatlaðir og gagn- kynhneigðir. Myndlistargagnrýn- andi Morgunblaðsins veltir fyrir sér hvort það geti verið að fjölbreytileiki sé útilokaður á einhvern hátt hjá upprennandi myndlistarfólki eða hvort einsleitnin sýni ákveðna blindu hjá valnefnd safnsins. Eins og með upplifun af verki Andreasar er erfitt að gera sér grein fyrir hvort er og kannski er það flóknari en það. Haldreipi ósamstæðunnar Ljósmyndir/Pétur Thomsen Ekki brotlent Tilviljunarkennd atriði á sýningu Andreas Brunner kalla á óvæntar hugrenningar, segir rýnirinn. Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsi. D-salur Ekki brotlent enn – Andreas Brunner bbbnn Einkasýning. Sýningarstjóri: Markús Þór Andrésson . Safnið verður opnað að nýju 4. maí. Opið alla daga 10-17, fimmtudaga til 22. HULDA RÓS GUÐNADÓTTIR MYNDLIST Treflar „Hvað er listamaðurinn að reyna að segja? “ spyr rýnir sig. Kvenhönd Hanskaklædd vísun í aldagamla evrópska menningu. Ósamstæða og vísun í allar áttir Þegar gengið er inn um aðal- innganginn að salnum blasir við á hægri hönd lítill dökkur málm- skúlptúr af útréttri kvenhönd sem sýnir okkur í lófa sínum forboðna ávöxtinn granítepli. Ófyrirsjáanleg atburðarás hefur aftur áhrif á lestur verksins en allt í einu verður mikil- vægara atriði að höndin sé hanska- klædd heldur en vísun í aldagamla evrópska menningu þar sem siður er að slík táknmynd gyðjunnar Persefónu sé notuð sem hurðabank- ari. Á austurvegg eru þrír smágerð- ir hankar af sömu málmgerð og lík- lega einnig fundnir hlutir. Allir sýna þeir eins brjóstmynd af konu í kjól sem minnir á borgaralegan klæðnað hinnar gömlu Evrópu. Á hönkunum hanga bleiklitaðir treflar úr mjúku sílikonefni sem er kunnuglegri efn- isnotkun listamanns af kynslóð Andreasar. Sami upphleypti textinn er greyptur í alla treflana en ómögulegt er að lesa hvað stendur á þeim. Ósamstæð efnisnotkun vísar í allar áttir. Hvað er listamaðurinn að Tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands með Daníel Bjarnasyni og Sæunni Þorsteinsdóttur frá 21. febrúar í fyrra verður sjónvarpað á RÚV 2 og á vef hljómsveitarinnar, www.sinfonia.is, í kvöld kl. 19.30 og verða þeir einnig endursýndir á RÚV á sunnudaginn, 3. maí, kl. 15:05. Á tónleikunum flutti hljómsveitin Vorblót Stravinskíjs, eitt dáðasta hljómsveitarverk 20. aldar og eitt hið áhrifamesta, eins og segir á facebooksíðu viðburðarins. „Í verk- inu er lýst fornri helgiathöfn þar sem valin er ein úr hópi ungra meyja til að dansa sig til dauða – og tryggir þannig komu vorsins,“ seg- ir þar. Einnig er flutt verkið Bow to String eftir Daníel Bjarnason sem stjórnar tónleikunum en hann gegnir stöðu aðalgestastjórnanda hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann samdi verkið fyrir Sæunni Þorsteinsdóttur sellóleikara. Upp- taktur að tónleikunum er Fratres eftir Arvo Pärt sem þykir með hans fegurstu tónsmíðum. Völdum tón- leikum Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands er sjónvarpað á vef hljóm- sveitarinnar á fimmtudagskvöldum meðan á samkomubanni stendur og tónleikarnir endursýndir á RÚV á sunnudögum. Yfirskrift þessarar viðburðaraðar er Heimsending Sinfó á RÚV. Vorblótið í Heimsendingu Sinfó á RÚV Morgunblaðið/Valli Stjórnandi Daníel Bjarnason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.