Morgunblaðið - 30.04.2020, Page 50
AF KVIKMYNDUM
Brynja Hjálmsdóttir
hjalmsdottir@gmail.com
Ávídeóleigunni í hverfinu mínumátti alltaf taka tvær myndirfyrir fimmhundruðkall. Ekki
eina nýja og eina gamla eins og tíðk-
aðist á flestum leigum, það mátti taka
hvaða tvær myndir sem var. Í gegn-
um þessa vídeóleigu átti ég fyrstu
kynni mín af leikaranum og bardaga-
listamanninum Jackie Chan. Eftir að
ég kynntist honum varð það svo að
reglu að þegar ég tók mínar tvær
myndir á leigunni valdi ég eina mynd
sem ég hafði ekki séð og eina mynd
með Jackie Chan. Það skipti ekki
endilega máli hvort myndin var góð
eða slæm, ef hann var í henni gat ég
horft á hana mörgum sinnum.
Nafn Jackies er flestum kunnugt
en hversu vel þekkjum við hann í
raun og veru? Nú er líkast til eins
góður tími og hver annar til að fara í
saumana á þessari stórkostlegu
mannveru.
Stjarna fæðist
Jackie Chan er bardagalistamað-
ur, leikari, leikstjóri, framleiðandi,
áhættuleikari og söngvari, fæddur í
Hong Kong árið 1954. Honum gekk
illa í skóla framan af, þar til foreldrar
hans sendu hann í leiklistarskóla þar
sem lögð var áhersla á kínverska óp-
eru. Meðan á náminu stóð byrjaði
hann einnig að leggja stund á bar-
dagalistir og æfði af miklum móð.
Jackie byrjaði barnungur að leika í
kvikmyndum og lék aukahlutverk í
nokkrum myndum af ýmsu tagi. Þeg-
ar hann var sautján ára byrjaði hann
að vinna sem áhættuleikari og starf-
aði meðal annars í Bruce Lee-
myndunum Enter the Dragon og
Fists of Fury. Hann vakti mikla at-
hygli fyrir færni sína í bardagalistum
og fékk sitt fyrsta aðalhlutverk í
myndinni New Fists of Fury eftir
leikstjórann Lo Wei. Lo Wei vildi að
Jackie yrði næsti Bruce Lee og hvatti
hann til að líkja eftir honum í lengstu
lög, sem skilaði ekki tilætluðum ár-
angri því Jackie átti bágt með að til-
einka sér þann leik- og bardagastíl
sem Bruce var þekktur fyrir.
Myndin sem kom Jackie á kortið
fyrir alvöru var Snake in the Eagle’s
Shadow sem kom út árið 1978 og varð
afar vinsæl. Síðar sama ár kom The
Drunken Master út, þar sem Jackie
leikur náunga sem lærir undarlegan
baradagastíl sem krefst þess að hann
sé ölvaður á meðan hann leikur listir
sínar. Báðar þessar myndir voru
kung fu-gamanmyndir, sem varð sú
kvikmyndagrein sem Jackie skaraði
fram úr í og má segja að hann sé eins
konar samnefnari fyrir þá gerð bíó-
mynda. Á meðan Bruce Lee var
ímynd hins alvarlega og agaða bar-
dagamanns varð Jackie Chan ímynd
hins léttúðuga og kærulausa sveim-
huga, sem vill svo til að er frábær
bardagamaður.
Vegurinn til Hollywood
Jackie átti gríðarlegum vinsældum
að fagna í Asíu gervallri en umboðs-
maður Jackies var sannfærður um að
okkar maður gæti meikað það í Am-
eríkunni líka. Fyrsta hlutverk Jac-
kies í Hollywood var í Big Brawl, sem
kom út árið 1980 og í kjölfarið lék
hann aukahlutverk í nokkrum mynd-
um. Hann sló þó ekki í gegn í Holly-
wood fyrr en árið 1995 í költ-
slagaranum Rumble in the Bronx og
svo árið 1998 þegar Rush Hour kom
út varð hann stórstjarna. Á fyrsta
áratug 21. aldarinnar lék hann í fjöl-
mörgum Hollywood-myndum sem
voru margar hverjar mjög furðu-
legar. Það er líkt og að á þessum ár-
um hafi engin hugmynd verið of
skrítin. Hann lék til dæmis á móti
Owen Wilson í myndinni Shanghai
Noon, sem er kung fu-vestra-
grínmynd í buddy-cop-stíl, sem sagt:
bræðingur ótal kvikmyndagreina.
Framhaldsmyndin Shanghai Knights
heldur áfram þessari undarlegu sögu
af kung fu-kúrekunum nema í þeirri
mynd fara þeir til London af öllum
stöðum og eru slegnir til riddara.
Skrítnasta myndin af þeim öllum er
e.t.v. Tuxedo frá árinu 2002. Í henni
leikur okkar maður sígildan Jackie-
karakter, værukæran og einfeldn-
ingslegan náunga með enga merkj-
anlega hæfileika. Fyrir tilviljun
rambar hann fram á hávísindalegan
smóking sem gerir þeim sem honum
klæðist kleift að leika ótrúlegustu
listir, eins og að iðka kung fu líkt og
fagmaður eða dansa eins og há-
menntaður dansari. Íklæddur þess-
um töfragalla þarf hann svo að vinna
bug á vonda karlinum, sem hefur þá
grimmúðlegu og stórfurðulegu áætl-
un að eitra vatnsbirgðir heimsbyggð-
arinnar, þannig að vatnið slökkvi ekki
lengur þorsta eins og venjulega held-
ur þurrki mann til dauða.
Þúsundþjalasmiður
Jackie hefur átt mikilli velgengni
að fagna vestanhafs en hans heimili
er eftir sem áður Asíumarkaðurinn,
þar sem hann hefur gert flestar sínar
myndir. Vissulega má halda því fram
að þær myndir séu betri, þótt þær
séu auðvitað jafn misjafnar og þær
eru margar en Jackie hefur leikið í
hvorki meira né minna en 150 mynd-
um um ævina. Þótt andlit Jackies sé
afar þekkt vestanhafs er ekki víst að
vestrænir áhorfendur geri sér grein
fyrir því hvað hann er mikil risa-
stjarna í Hong Kong og víðar í Asíu.
Hann er bókstaflega alls staðar.
Hann kemur fram á ýmsum við-
burðum, hvort sem það tengist bíó-
myndum eða öðru og er oft fenginn
sem talsmaður ýmiss konar herferða,
eins og t.d. forvarnarfræðslu gegn
eiturlyfjaneyslu. Þá kemur hann
fram í auglýsingum fyrir allan fjand-
ann, hann auglýsir allt frá pakk-
anúðlum til sjampós gegn hárlosi. Sá
sem leggur leið sína í kínverska stór-
borg mun ekki komast hjá því að rek-
ast á brosandi andlit hans á einhverju
auglýsingaskilti.
Hann er líka mörgum öðrum hæfi-
leikum gæddur en að lemja og grín-
ast í bíómyndunum. Líkt og fram hef-
ur komið lærði í Jackie í óperuskóla
þar sem hann lagði stund á klass-
ískan söng. Hann hefur gefið út 20
hljómplötur, flestar í canto- og
mandopop-stíl, en það eru tónlistar-
stefnur kenndar við kínversku tungu-
málin kantónsku og mandarín. Þá
semur hann oftast lögin fyrir sínar
eigin bíómyndir.
Jackie er þar að auki mikill mann-
vinur og er á topp tíu-lista Forbes yf-
ir þær stjörnur sem gefið hafa mest
til góðgerðarmála.
Ein ný og ein gömul
Af þessu má vera ljóst að Jackie
Chan er margt til lista lagt. Ég bendi
lesendum á að horfa má á nokkrar af
myndum hans á vídeóleigum nú-
tímans eins og Netflix. Þar má t.d.
finna eina af hans fyrstu myndum,
Young Tiger, en einnig nýrri myndir
eins og New Police Story, þar sem
okkar maður skiptir um gír og reynir
við glæpadramað og leikur drykk-
felldan lögreglumann sem hefur
misst allt.
Þá má auðvitað líka benda á að all-
ar hljómplötur hans eru á Spotify,
þótt undirrituð verði að játa að hún
hefur ekki þraukað gegnum heila
slíka plötu og telji hæfileika Jackies
fyrst og fremst liggja á öðrum svið-
um.
Ungi tígurinn
Snákaleikfimi Úr kvikmyndinni Snake in the Eagle’s Shadow, Snákur í
skugga arnarins, sem kom Jackie Chan á kortið í kvikmyndaheiminum.
Hársápa Jackie Chan er gríðarvinsæll í Hong Kong og víðar í Asíu og hefur
auglýst eitt og annað, til dæmis þessa hársápu sem viðheldur dökkum lit.
» Sá sem leggur leiðsína í kínverska stór-
borg mun ekki komast
hjá því að rekast á bros-
andi andlit hans á ein-
hverju auglýsingaskilti.
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 2020
Bandaríska kvikmyndaakademían
hefur breytt skilyrðum sínum fyrir
því hvaða kvikmyndir geti talist
gjaldgengar til Óskarsverðlaunanna
vegna Covid-19-faraldursins. Kvik-
myndir sem eru frumsýndar á
streymisveitum verða nú líka gjald-
gengar og því ekki nauðsynlegt að
þær hafi verið sýndar í kvikmynda-
húsum í Los Angeles í að minnsta
kosti viku, eins og reglur kveða á
um. Breytingin er þó ekki varanleg
og mun aðeins eiga við um kvik-
myndir frumsýndar á þessu ári.
Þetta er ekki eina breytingin því
tveir verðlaunaflokkar hafa nú verið
sameinaðir í einn, þeir sem snúa að
hljóðvinnslu. Einnig hefur akademí-
an bannað sýningareintök af kvik-
myndum á mynddiskum og er sú
ákvörðun tekin til að vernda um-
hverfið. Eiga sýningareintök á slík-
um diskum að heyra sögunni til árið
2022.
Breyting Kvikmyndir veitna á borð
við Netflix verða gjaldgengar til Ósk-
arsverðlauna á næsta ári án þess að
hafa verið sýndar í bíóhúsum.
Breyttar reglur vegna faraldurs
Indverski kvikmyndaleikarinn Irrf-
an Khan er látinn, 53 ára að aldri.
Khan var ein skærasta kvikmynda-
stjarna Indlands og lék einnig í
vestrænum kvikmyndum, m.a. ósk-
arsverðlaunamyndinni Slumdog
Millionaire. Khan lést af völdum
krabbameins.
Khan hóf ferilinn í sápuóperum í
heimalandi sínu og var heldur
ósáttur við það hlutskipti sitt.
Fyrsta bitastæða hlutverkið í kvik-
mynd hlaut hann í Warrior eftir
breska leikstjórann Asif Kapadia
árið 2002 en myndin var tekin upp
á Indlandi. Myndin hlaut Bafta-
verðlaun og í kjölfarið fékk Khan
hlutverk í indverskum kvikmynd-
um og lék oftar
en ekki lög-
reglumenn eða
glæpamenn.
Af öðrum vest-
rænum kvik-
myndum sem
Khan lék í má
nefna A Mighty
Heart, Jurassic
World og Life of
Pi.
Khan sagði í viðtali við dagblaðið
Guardian fyrir sjö árum að hann
væri ósáttur við heitið Bollywood
þar sem indverski kvikmyndageir-
inn fylgdi eigin reglum og væri alls
ekki að líkja eftir Hollywood.
Irrfan Khan
Leikarinn Irrfan Khan látinn