Morgunblaðið - 30.04.2020, Side 56
af öllum
sumarvörum
og 20% af öllum
Til 4. maí
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Mánudaga - Sunnudaga 12-18
Frí heimsending
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
FYRIR ÞÁ SEM VERSLA
FYRIR 5.000 EÐA MEIRA
WWW.ILVA.IS
GILDIR Í VEFVERSLUN Í APRÍL OG MAÍ
25%Sparadu-
Cerri
CERRI sófaborð. Ø60 cm. 16.900 kr. Nú 12.675 kr.
Ø45 cm. 12.900 kr. Nú 9.675 kr.
Portio
PORTIO sumarstóll. Ýmsir litir. 11.900 kr. Nú 8.925 kr.
Alþjóðlegur dagur djassins er
haldinn hátíðlegur í dag, en
UNESCO útnefndi 30. apríl op-
inberan dag djassins árið 2011.
Í tilefni dagsins standa Jazz-
hátíð Reykjavíkur, Jazzklúbb-
urinn Múlinn og Jazzdeild FÍH
fyrir fernum tónleikum í beinu
streymi. Klukkan 16 verður út-
varpað á Rás 1 og streymt á
ruv.is frá tónleikum Kristjönu
Stefánsdóttur og kvartetts í
Hörpu. Klukkan 18 leikur GH
Gypsy Tríó lög úr ýmsum áttum á Facebook-síðu Borg-
arbókasafnsins. Klukkan 20 verður fjölbreytt djass-
dagskrá í umsjón Sigmars Þór Matthíassonar á Face-
book-síðu Hannesarholts. Klukkan 21 verða Daníel
Friðrik Böðvarsson, Eiríkur Orri Ólafsson og Matthías
Hemstock í beinu streymi á Facebook-síðu Mengis. All-
ar nánari upplýsingar og hlekki á viðburðina má nálg-
ast á Facebook-viðburði sem nefnist „Alþjóðlegi Jazz-
dagurinn 2020“.
Alþjóðlegum degi djassins fagnað
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 121. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Ég get alveg viðurkennt það fúslega að það tekur
virkilega á hausinn á manni að hvetja sig áfram þegar
maður veit í raun ekkert hvenær maður er að fara að
æfa eða spila með félögunum. Ég er hins vegar búinn
að vera mjög duglegur þótt ég segi sjálfur frá og ég læt
börnin hjóla mikið á meðan ég hleyp með,“ segir Ari
Freyr Skúlason sem er í sjálfskipaðri sóttkví með fjöl-
skyldunni í Belgíu. »46-47
Lætur börnin hjóla mikið
og hleypur með þeim
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Samferða góðgerðarsamtök hafa
safnað um 40 milljónum króna og
styrkt um 400 fjölskyldur undanfarin
fjögur ár. Fyrir jólin fjögur árin þar á
undan safnaði Örvar Þór Guðmunds-
son einn og sér um 10 milljónum og
styrkti um 100 fjölskyldur. Markmið
Örvars og samstarfsfólks í Samferða
er að styrkja um 300 fjölskyldur í ár.
Upphæð styrkjanna fer eftir að-
stæðum hverju sinni, en þeir hafa ver-
ið um 20.000 til 150.000 krónur.
Kórónuveirufaraldurinn hefur
bitnað illa á mörgum. „Við styrktum
26 fjölskyldur
í apríl en 23
fjölskyldur
fengu styrki
frá okkur
fyrstu þrjá
mánuði árs-
ins,“ segir
Örvar, sem
var kjörinn
Hafnfirðingur
ársins árið 2017 fyrir góðgerðar-
störfin. Upphæð styrkjanna fer eftir
aðstæðum hverju sinni, en þeir hafa
verið um 20.000 til 150.000 krónur.
Enginn kostnaður
Tilgangurinn með stofnun Sam-
ferða fyrir um fjórum árum var ein-
faldlega að láta gott af sér leiða án
kostnaðar. Í fyrstu voru Rútur
Snorrason, Örvar Þór Guðmundsson,
Hermann Hreiðarsson, Brynja Guð-
mundsdóttir og Sigurlaug Ragnars-
dóttir í stjórn. Helgi Magnússon kom
inn fyrir Brynju fyrir um tveimur ár-
um og í vikunni bættist Ragnheiður
Davíðsdóttir í hópinn, en hún hefur
verið framkvæmda- og verkefnastjóri
hjá Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt
fólk sem greinst hefur með krabba-
mein og aðstandendur þess undan-
farin ár. Deloitte á Íslandi fer yfir
bókhaldið án þess að taka greiðslu
fyrir og Sigurður Gísli Pálmason er
verndari samtakanna.
Örvar segir að áhersla sé lögð á að
styrkja fólk sem glími við lífsógnandi
sjúkdóma. „Undanfarna 14 mánuði
hafa því miður ellefu einstaklingar,
sem við höfum styrkt, látist úr
krabbameini, en við reynum að
styrkja fjölskyldur sem eru í bráðri
neyð.“
Fyrir jólin 2012 hóf Örvar söfnun
fyrir krabbameinssjúka og langveik
börn á Facebook-síðu sinni. „Söfn-
unin gekk vonum framar, en það var
erfitt að standa í þessu einn og eftir
fjögur ár hætti ég. Þá kom Rútur
Snorrason til mín með hugmynd um
að stofna samtök af sama meiði og við
létum á það reyna með fyrrgreindum
árangri.“
Að fenginni reynslu segist Örvar
hafa sett það skilyrði fyrir aðkomu
sinni að stjórnin kæmi saman í hverj-
um mánuði til að úthluta styrkjum,
allt söfnunarfé færi óskert í styrki og
kæmi til kostnaðar yrðu stjórnar-
menn að greiða hann. „Þetta hefur
gengið eftir og margir hafa notið góðs
af,“ áréttar hann og bætir við að eins
og ástandið sé nú í samfélaginu þyrftu
þau helst að funda þrisvar í mánuði.
„Við tökum á móti ábendingum alla
daga og höfum leyst þetta þannig að
ég hef farið yfir umsóknir og afgreitt
veigaminni málin en síðan höfum við
tekið sameiginlega á stóru málunum.“
Allt vinnuframlag er unnið í sjálf-
boðavinnu. „Mikill tími fór í íþrótt-
irnar hjá okkur á sínum tíma og mikill
tími losnar þegar maður hættir að
leika sér,“ segir Örvar. „Þetta eru
okkar íþróttir.“
Söfnunin fer fram á Facebook og
senda má ábendingar þangað eða á
netfang samtakanna (godgerðar-
samtokin@gmail.com) auk þess sem
tekið er við frjálsum framlögum (kt.
651116-2870 og banki 0327-26-114).
Samferða léttir lífið
Samferða góðgerðarsamtök Sigurlaug Ragnarsdóttir, Örvar Þór Guð-
mundsson og Rútur Snorrason fara yfir umsóknir um styrki.
Góðgerðarsamtökin hafa styrkt um 400 fjölskyldur á fjórum árum
Á Bessastöðum Guðni Th. Jóhannesson forseti boðaði stjórnarmennina
Örvar Þór og Rút á sinn fund til að fræðast um samtökin.