Fréttablaðið - 27.08.2020, Side 38

Fréttablaðið - 27.08.2020, Side 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is VANALEGA MYNDUM VIÐ FARA ÚT, EN ÞAR SEM ÞAÐ ER HEIMSFARALDUR ER EKKI MIKIÐ VERIÐ AÐ STÖKKVA ÚT Í NÆSTU FLUGVÉL. Orkan býður lítrann á lægsta verðinu í öllum landshlutum — án allra skilyrða. LÆGSTA VERÐIÐ Í ÖLLUM LANDS- HLUTUM Meðal þátttakenda í búðunum verður Jim Beal sem samdi tónlist fyrir þættina House of Cards. MYND/SIGTRYGGUR ARI Þetta er mjög sniðug leið til að tengja norr­ænt listafólk við stærri erlendan markað í Los Angeles,“ segir tón­listarmaðurinn Eðvarð Egilsson, sem mun vinna að kvik­ myndatónlist í alþjóðlegum laga­ höfundabúðum, NordicLA. Eðvarð var valinn ásamt þeim Úlfi Eldjárn og Töru Sóleyju Mobee til að taka þátt í búðunum eftir umsóknarferli á vegum STEFs og ÚTON. NordicLA hafa staðið fyrir lagahöfundabúðum í nokkur ár en þar taka þátt annars vegar nor­ rænir tónhöfundar og hins vegar tónhöfundar og upptökustjórar í Los Angeles. „Þetta verður frábært tækifæri til að kynnast mörgu hæfileikaríku fólki,“ segir Eðvarð, en nöfnin verða vissulega í stærri kantinum. Meðal þátttakenda í búðunum verða bæði Jeff Beal (sem meðal annars samdi tónlistina í Netf lix­þáttunum House of Cards) og Emmy­verð­ launahafinn Jim Dooly, sem hefur unnið mikið með kvikmyndafram­ leiðandanum DreamWorks. Kyrrsetning vegna kófsins Búðirnar í ár verða þó með öðru sniði en venjulega. „Vanalega myndum við fara út, en þar sem það er heimsfaraldur er ekki mikið verið að stökkva út í næstu flugvél,“ segir Eðvarð. Fyrirkomulagið verður því svipað og skólahald hefur verið víðs vegar um heim þar sem kennt er yfir netið. „Mér finnst þetta persónu­ lega þægileg leið. Þetta var svipað í skólanum hjá mér þegar allt var stopp – þá tók maður bara kennslu­ tíma á netinu. Svo er ég líka frekar heimakær!“ Það eru þó  viss söknuður  sem fylgir fyrirkomulaginu, en Eðvarð bjó lengi vel í Los Angeles þegar hann starfaði með hljómsveitinni Steed Lord. „Það eru fullt af strengjum sem toga í mann þarna í LA,“ segir Eðvarð. „Ég á fullt af vinum og líka fjölskyldu sem býr þarna úti. Það hefði verið frábært  að fara út en maður vinnur með það sem maður hefur.“ Hollywood kitlaði Kvikmyndatónlistin hefur lengi heillað Eðvarð og áhuginn blossaði sérstaklega upp þegar hann bjó í Los Angeles. „Ég get alveg játað það að nálægðin við Hollywood hafði sitthvað að segja,“ segir Eðvarð og hlær. „Það er ekki hægt annað en að fá stóra drauma þegar maður er í þessu umhverfi.“ Þrátt fyrir að hann hafi myndað góð sambönd inn í kvikmynda­ heiminn úti ákvað Eðvarð að setjast aftur á skólabekkinn og sneri aftur til Íslands þar sem hann nam við Listaháskólann. „Ég var búinn að búa úti í níu ár og fannst tímabært að fá smá breytingu. Þótt Ísland sé kannski ekki mesta breytingin þá var það samt rétt val.“ Síðan þá hefur Eðvarð samið tónlist fyrir sjónvarpsþætti, kvik­ myndir og auglýsingar erlendis. Hann vinnur nú að tónlist fyrir íslensku kvikmyndina Skjálfta og nýja þáttaröð fyrir Sjónvarp Sím­ ans. arnartomas@frettabladid.is Strengirnir í Englaborginni Tónlistarmaðurinn Eðvarð Egilsson var valinn sem fulltrúi í alþjóðlegar lagahöfundabúðir í Los Angeles. Hann segist spenntur fyrir verkefninu þótt þær fari fram á netinu vegna kófsins. 2 7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.