Fréttablaðið - 27.08.2020, Blaðsíða 12
Í nágrenni Reykjavíkur er fjöldi tignarlegra fjalla sem setja sterkan svip á sjóndeildarhringinn. Þar eru Bláfjöll, með helsta skíðasvæði höfuð-borgarinnar, engin undantekning. Vestur af þeim er hnúkaþrenning sem kallast Þríhnúkar og sjást víða að en best frá Bláfjallavegi vestan
Rauðuhnúka. Þessir fallega sköpuðu gígar láta ekki
mikið yfir sér í fyrstu, enda ná þeir ekki nema rétt
rúmlega 550 metra hæð. Umhverfi þeirra er prýtt
fallegu og úfnu svörtu hrauni sem á veturna á til að
stinga sér í gegnum snjóþekjuna. Þegar gengið er upp
á hæsta gíginn, sem liggur næst Bláfjöllum, blasir
skyndilega við hrollvekjandi trektlaga op Þríhnúka-
gígs, sem jafnframt er einn stærsti hellir landsins
og telst til merkilegustu hraunhella í heimi. Það var
Árni B. Stefánsson, augnlæknir og hellakönnuður,
sem kannaði gíginn fyrstur þegar hann seig niður í
hann á Jónsmessu 1974. Reyndust 120 metrar niður á
söðullaga hraunbing á botni gígsins og gíghvelfingin
þar rúmir 3.000 fermetrar að flatarmáli. Frekari
rannsóknir sýndu að á botni gígsins er hitastigið
2-3 °C allan ársins hring og þegar kröftugum ljósum
var beint að hellisveggjunum reyndust þeir skarta
ýmsum litum með dumbrautt, gult og svart í aðal-
hlutverkum. Einnig fannst gosrás skáhallt niður
frá botninum sem nær 204 metra dýpt, en það eru
næstum þrjár Hallgrímskirkjur mælt frá opi gígsins.
Ofar í Þríhnúkagíg leynast f leiri útskot og minna sum
þeirra á strompa. Í grein í Náttúrufræðingnum 1992
lagði Árni til nöfnin Háhnúk, Miðhnúk og Holhnúk á
þríeykið, en þau hafa ekki enn unnið sér sess.
Ganga að Þríhnúkum er þægileg flestum og má
hæglega ná á hálfum degi. Flestir velja að leggja bílum
við Kóngsgil í Bláfjöllum en þaðan liggur greiðfær
fjögurra kílómetra gönguslóði að hnúkunum og
hækkunin óveruleg. Einnig liggur hjólaleið áleiðis að
hnúkunum frá Hafnarfirði sem styttir gönguna. Af
tindum Þríhnúkagígs er frábært útsýni yfir höfuð-
borgarsvæðið en einnig sést vel til Snæfellsness, Akra-
fjalls, Esju og Móskarðahnúka. Hægt er að kynnast
leyndardómum Þríhnúkagígs nánar, en sl.
átta ár hefur verið boðið upp á skipulagðar
skoðunarferðir ofan í gíginn að sumarlagi.
Á veturna er síðan gaman að ferðast
á ferðaskíðum umhverfis hnúkana
og halda síðan ferðinni áfram um
Grindarskörð að Brennisteins-
fjöllum.
Þríeyki gímalds
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Þríhnúkar leyna á sér en undir þeim er að finna einn stærsta hraunhelli í heimi. MYNDIR/ÓMB
Hraunin umhverfis Þríhnúka eru spennandi á sumrin en líka gaman að ferðast um þau á ferðaskíðum að vetri til.
Í iðrum Þrí-
hnúkagígs er
boðið upp á
mikla litaveislu
sem gleður
augað.
2 7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð