Fréttablaðið - 27.08.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 27.08.2020, Blaðsíða 20
Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is Sólveig útskrifaðist úr Listahá-skóla Íslands árið 2018 sem fatahönnuður og leggur nú stund á meistaranám í London í Central Saint Martins. Sigga Fann- ey er nýútskrifuð úr Handarbetets Vänner í Stokkhólmi í textíl- handverkshönnun. „Okkur langaði að þróa nýrri aðferðir við framleiðslu en þessar hefðbundnu aðferðir eins og prjónið, heklið og þæfð sjöl. Með því viljum við stuðla að fjölbreytt- ari og framúrstefnulegri aðferðum og vörum sem auka verðmæti íslensku ullarinnar. Verkefnið er styrkt af nýsköpunarsjóði Rannís og Ístex,“ segir Sólveig. Náttúruefnin eru lausn „Woolume II-nafnið vísar til þess að við erum að vinna ullina á næsta skref, eins og í Volume II. Gamla prjónið er auðvitað gott og gilt, en við viljum sjá efnið fara nýjar, fagurfræðilegar leiðir og nýta möguleikana betur. Við þurfum öll að endurskoða hvernig við erum að nota og nýta það sem er okkur innan handar. Náttúru- efnin gætu þá verið lausnin, í stað þess að leita svara í gerviefnum,“ segir Sigrid, eða Sigga Fanney eins og hún er oftast kölluð. Sólveig bætir við: „Við viljum meðal ann- ars finna gullinn meðalveg fyrir þá sem ekki vilja feld en heldur ekki gerviefni úr plasti sem brotna illa niður í náttúrunni og skaða umhverfið.“ Kostur að þekkja upprunann „Við erum að nýta ull af kindum úr sveitinni hjá ömmu og afa undir Eyjafjöllum. Það er mikill kostur að vinna ullina frá upphafi til enda og hafa stjórn og vitneskju um meðferð dýranna og afurðina sem við notum í hönnunina, sem er alls ekki sjálfsagt í dag. Þá hefur íslenska kindin það allajafna gott, miðað við á mörgum öðrum stöðum í heiminum.“ „Íslenska ullin hefur orðspor á sér að hún sé ekki eins mjúk og önnur ull. En í meðferð okkar höfum við fundið að hún er upp- full af möguleikum, bæði fyrir grófa ull og silkimjúka,“ bætir Sigga Fanney við. „Það má segja að við séum að binda saman fortíð og framtíð í framleiðslunni. Við nýtum t.d. röggvarfeldinn sem á upp- runa sinn á landnámsöld. Seinni aðferðin byggist á þæfingu. Við höfum verið heppnar að komast í samstarf við fjölda íslenskra hand- verksskvenna og erum þakklátar að þær skuli vilja deila reynslu sinni og þekkingu,“ segir Sólveig. Pönk og Vigdís Finnboga Sólveig og Sigga Fanney leituðu innblásturs í íslenska dægurmenn- ingu og pönksenuna. Þá skoð- uðu þær einnig fatnað Vigdísar Finnbogadóttur á meðan hún var forseti. „Við stúderuðum mikið af þessum klassísku íslensku kvik- myndum eins og Með allt á hreinu, Rokk í Reykjavík, Dalalíf og fleira. Einnig horfðum við til sterkra íslenskra kvenna sem voru braut- ryðjendur á sínum tíma,“ segir Sigga Fanney. Sigga Fanney og Sólveig eru á lokastigi í vörugerð og búast við að klára í september. „Við munum einblína á stafræna miðla og halda svo sýningu þegar möguleiki gefst. Annars verður hægt að panta hjá okkur á Instagram @solhans- dottir og @sigga.fanney þegar línan kemur út. Vörurnar eru allar sérsniðnar svo það er svolítill bið- tími,“ segir Sólveig. Íslenska ullin, frú forseti og pönkið Woolume ll er spennandi verkefni þar sem Sigrid Fanney Daregard og Sólveig Dóra Hansdóttir víkka út möguleika íslensku ullarinnar og framleiða tískuvarning úr ull með nýjum aðferðum. Sigga Fanney og Sólveig vilja nýta möguleika ullarinnar betur. MYND/AÐSEND Þær eru þakklátar fyrir alla þá aðstoð sem þær hafa fengið frá íslenskum handverkskonum. DEEP HEAT ROLL ON EYKUR BLÓÐFLÆÐI TIL VÖÐVA. VIRKAR BÆÐI SEM HITA- OG NUDDMEÐFERÐ. ERT ÞÚ KLÁR Í HLAUP DAGSINS? 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.