Fréttablaðið - 02.09.2020, Side 10

Fréttablaðið - 02.09.2020, Side 10
Um 1980, til dæmis, þá tókum við einu sinni rútu með karlaliðinu heim til Reykjavíkur og þeir fóru inn á hótel að borða eftir leik en við biðum fyrir utan á meðan. Vanda Sigurgeirsdóttir FÓTBOLTI Vanda Sigurgeirsdóttir, f y r r vera nd i la nd sliðsþjá l fa r i kvenna í fótbolta og ein af frum- kvöðlum í íslenska kvennalands- liðinu, skrifaði forvitnilega færslu á Twitter þar sem hún ræddi frétt fótbolta.net um að Sara Björk Gunn- arsdóttir og stöllur hennar í Lyon fengju sama bónus og karlaliðið, myndu þær vinna Meistaradeild- ina. Tilkynningu forseta félagsins var fagnað víða um heim og fram- takinu klappað lof í lófa. „Núna er ég eiginlega með tárin í augunum. Frá baráttunni sem við þessar „gömlu“ stóðum í – fyrir að fá að keppa í skrúfutakkaskóm, fá bún- inga sem pössuðu, lækni á lands- leiki, almennilega æf ingatíma o.s.frv., o.s.frv. – og HINGAÐ,“ skrif- aði Vanda og fékk hundruð læka. Vanda segir í samtali við Frétta- blaðið að hún voni að þetta útspil forseta Lyon, Jean-Michel Aulas, verði til þess að bónusgreiðslur verði jafnar. „Ég held að þetta sé í fyrsta sinn sem svona er gert í félagsboltanum og mér finnst þetta vera risaskref, þess vegna komu tárin, gæsahúðin og allt þegar ég las þessa frétt.“ Vanda segir að hún hafi haldið niður í höll minninganna og séð hvað er í raun stutt síðan að raun- veruleikinn sem hún skrifaði um í tístinu, var raunveruleikinn. „Það var stofnað hagsmunafélag í kvennaboltanum þegar við fengum ekki að keppa í skrúfutakkaskóm. Það var fullt af mjög flottum konum í því félagi, til að vinna gegn mjög skrýtinni stefnu. Þetta var bara í félagsliðum. Æfingatímar voru líka þannig að strákarnir gengu fyrir og við fengum ekki velli og máttum ekki æfa á aðalvöllunum. Svo horfð- um við á eftir strákunum labba út á aðalgrasið. Ég var reyndar lengi í Breiðabliki og þar voru, og eru, gerðir góðir hlutir. En ég var líka að þjálfa víða. Um 1980, til dæmis, þá tókum við einu sinni rútu með karlaliðinu heim til Reykjavíkur og þeir fóru inn á hótel að borða eftir leik en við biðum fyrir utan á meðan.“ Fyrir þá sem muna ekki var k vennalandsliðið sett á lagg- irnar 1981, en hætt með það aðeins þremur árum síðar á stjórnarfundi KSÍ 31. maí 1984 og lagt alveg niður 1987. Það var ekki endurvakið fyrr en 1993. Vanda tók við landsliðs- þjálfarastarfinu 1997. „Ég var búin að berjast fyrir því að fá lækni með í landsleiki. Það hafði aldrei verið. Við höfðum lent í því að ein landsliðskona fékk gat á hausinn í landsleik úti í Rússlandi og það þurfti bara að taka hana út af, sem hefði ekki þurft ef það hefði verið læknir. Þá hefði verið gert eins og í úrslitaleiknum hjá Söru, bara smellt saman og leikmaðurinn skokkað aftur inn á. Fyrsti leikurinn með lækni var viðureign við Úkraínu, þegar Ragna Lóa Stefánsdóttir fótbrotnaði hrika- lega illa. Ég verð að segja að ég veit ekki hvað hefði gerst ef Sigurjón læknir hefði ekki verið á bekknum. Það er sagan á bak við lækninn, í þessu tísti. Núna er þetta sjálfsagt mál. Mér finnst gott að við gleym- um ekki sögunni,“ segir Vanda. Hún bætir við að einu sinni hafi kvennalandsliðið keppt landsleik og ein landsliðskona hafi verið smærri en aðrar. Þegar hún hafi girt sig þá hafi bolurinn lekið út með fram stuttbuxunum. „Það voru bara pantaðir búningar á strákana sem við svo notuðum. Í dag er þetta allt annað. Það eru komin kvenna- snið og allt sérpantað. Þetta varpar ágætu ljósi hvað við erum komin langt,“ segir Vanda. Hún segir að það sé mikilvægt að hrósa starfinu sem hafi verið unnið. „KSÍ hefur gert margt gott og forseti Lyon er kominn með heiðursorðu Vöndu,“ segir hún og hlær. Í alvarlegri tón spyr hún hvað gerist ef Manchesterliðin eða önnur stórlið í Evrópu fylgja ekki fordæmi forseta Lyon. „Hvernig ætla liðin að fá til sín bestu leikmennina ef hin liðin lofa þessu ekki líka? Þá enda bara allir bestu leikmennirnir í Lyon. Fyrir utan það að þetta er siðferðis- lega rétt, þá er ekkert endilega gott fyrir félögin ef þetta spyrst út, hvort sem þau heita Chelsea eða Barcelona eða PSG eða hvað, ef þau gera þetta ekki líka. Þessi stóru félög eru að leggja töluvert í boltann, eins og sést þegar maður skoðar hvaða lið voru að ná langt í Meistaradeildinni í ár. Bayern, PSG, Barcelona og Lyon með lið bæði karla- og kvennamegin.“ Skrefin hafa verið stór og ör und- anfarin ár. Stutt er síðan KSÍ ákvað að greiða sömu bónusa fyrir sigur- leiki og ýmislegt annað má tína til. „Ef ég á að vera hreinskilin þá átti ég ekki von á þessu,“ segir Vanda. „Auðvitað er ekkert 100 prósent jafnrétti ef við skoðum peningana. Aðstæður eru að breytast og hafa breyst hratt. Núna eru aðal-, aðstoð- ar- og markmannsþjálfari á öllum æfingum og mér finnst við eiga fullt af Sörum á leiðinni – ef þær hafa hugarfarið hennar, sem er reyndar erfitt að kenna,“ segir Vanda, sem þjálfaði Söru fyrir margt löngu. benediktboas@frettabladid.is Kvennafótboltinn er búinn að taka mörg góð og jákvæð skref Forseti Lyon ætlar að borga Söru Björk og stöllum hennar það sama og ef karlaliðið hefði unnið Meistara- deildina. Hann hefur fengið mikið hrós og einn reyndasti kvennaþjálfari landsins, Vanda Sigurgeirs- dóttir, táraðist við að lesa fréttina – enda hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan hún var í baráttunni. Æfing kvennalandsliðsins frá árinu 2007 á einhverju góðu túni langt frá Laugardalsvelli. Stelpurnar fengu þó boli í stíl. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á undanförnum árum og jafnar launagreiðslur Lyon fyrir sigur í Meistaradeildinni hafa fengið mikil og góð viðbrögð. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR FÓTBOLTI Guðmundur Benedikts- son benti á það í þætti sínum Stúk- unni á Stöð 2 Sport á mánudag að fjórða Evrópusæti sem fellur til íslenskra liða standi og falli með leik KR gegn Flora frá Eistlandi. Lið frá Wales og Makedóníu eru nálægt því að taka sætið af Íslandi. „Ef þau vinna leikina sína og KR vinnur ekki þá erum við að fara að missa Evrópusæti,“ sagði Guðmundur. Íslensk lið hafa ekki riðið feitum hesti frá viðureignum sínum í Evr- ópu undanfarin ár og stór töp og sorgleg litið dagsins ljós. Íslenska deildin er nú í þriðja neðsta sæti á UEFA listanum. Tómas Ingi Tómas- son, einn af sérfræðingum þáttar- ins, sagði að 60-80 milljónir myndu þá hverfa úr íslenska fótboltanum sem væri háalvarlegt mál. – bb Fjórða sætið veltur á KR FÓTBOLTI RB LEipzig hefur fengið leyfi fyrir 8.500 áhorfendum í fyrsta leik sínum þegar þýska deildin hefst að nýju. Í yfirlýsingu frá borginni kemur fram að leikurinn gegn Mainz þann 20. september fari fram með áhorfendum, ef COVID- 19 tilfellum fari ekki fjölgandi og fél ag ið fari eftir ströngum fyrirmæl- um. Áhorfendur þurfa allir að vera með andlitsgrímur og dreifðir um leik vang inn sem tekur 42 þús und manns í sæti. Engir áhorfend ur verða frá Mainz. „Við gerum okk ur grein fyrir að baráttan gegn veir unni er langt frá því að vera búin en undir ströngum skilyrðum verð ur að leyfa fólki aftur að lifa og njóta,“ sagði Burkhart Jung, borgarstjóri Leipzig, í samtali við Reut ers. Áhorfendur hafa ver ið bann aðir á leikjum í þýska boltan- um síðan í mars. Alls greindust 1.218 og fjórir létust í Þýskalandi í gær. – bb Leipzig fær leyfi fyrir áhorfendum Leipzig hefur leyft áhorfendur á fótboltaleikjum. MYND/GETTY FÓTBOLTI Allir leikmenn enska landsliðsins voru með neikvætt sýni í fyrstu COVID-skimun lands- liðsins fyrir ferðalagið til Íslands. Ensku leikmennirnir komu saman til æfinga á æfingasvæði lands- liðsins, St. Georges Park, í gær þar sem skimað var eftir kóróna veir unni hjá leikmönnum. Sýni var tekið úr leikmönnum á mánudag og var ekk- ert jákvætt sýni en þeir fara aftur í sýnatöku við komuna til Íslands. Tammy Abraham og Mason Mount, leikmenn Chelsea, eru nýkomnir úr sóttkví og eru vænt- anlegir til landsins ásamt leik- mönnum frá öllum stærstu liðum Englands. Ísland tekur á móti Englandi í fyrsta leik liðanna í Þjóðadeild UEFA næstkomandi laugardag. – kpt Enginn enskur var jákvæður 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.