Fréttablaðið - 02.09.2020, Page 28

Fréttablaðið - 02.09.2020, Page 28
Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is Rafn segir þó að áhuginn hafi ekki kviknað af alvöru fyrr en hann kynntist kraft- lyftingum. „Upprunalegur bak- grunnur minn er sófakartafla. Sem krakki prófaði ég nánast allar íþrótt ir sem hverfið bauð upp á, en fannst alveg hræðilega leiðin- legt í nánast öllum og beitti öllum brögðum til að skrópa og sleppa æfingum. Svo kynntist ég lyft- ingum í gegnum félaga minn. Eftir fyrstu æfinguna þá small einhver rofi í hausnum á mér og ég varð alveg heltekinn. Á stuttum tíma fór ég frá því að skrópa á öllum æfingum sem ég gat til að sitja í sófanum heima, horfa á línulega dagskrá og borða grillaðar sam- lokur, yfir í að verða ástfanginn af lyftingum sem þróuðust síðan yfir í kraftlyftingar. Ég stundaði síðan kraftlyftingar alveg þangað til fyrir þremur árum en þá færðist fókusinn á önnur mið. Núna snýst hreyfingin meira um að viðhalda skrokknum og halda öllum strengjum vel stilltum,“ segir Rafn. Áhugi á mannslíkamanum Rafn hefur verið í einkaþjálfara- brans anum í hátt í tíu ár. „Mér finnst það ótrúlegt afrek miðað við það að meðalferill einka- þjálfara er yfirleitt ekki nema 1-3 ár. Þegar ég áttaði mig á því að ég gæti verið að fá greitt fyrir að kenna öðrum að stunda líkams- rækt, var ég snöggur að skrá mig í þjálfaranám. Þetta hefur síðan þróast hjá mér með árunum og áhugasviðið víkkað innan heilsu- geirans. Ég fékk brennandi áhuga á mannslíkamanum og öllu sem við kemur heilsu og því að rækta raun- verulegt heilbrigði. Þá byrjaði ég að kynna mér betur fræðin á bak við, um lífsstílsþætti eins og svefn, næringu og streitustjórnun. Í dag er ég að klára nám sem snýr að því að vinna á ýmsum lífsstílssjúk- dómum með mataræði og öðrum lífsstílsþáttum,“ segir Rafn. 360° Heilsa Rafn býður upp á fjölbreytt líkamsræktar- og heilsuprógrömm undir yfirskriftinni 360° Heilsa. Einnig heldur hann úti forvitni- legu hlaðvarpi undir sama nafni þar sem hann ræðir við fróða ein- staklinga um heilsu og líkamsrækt í víðum skilningi. „360° Heilsa byggir á þeirri hugmynda fræði að raunveru- legt heilbrigði sé margþætt. Það skiptir ekki máli þó svo mataræðið sé upp á tíu. Ef þú sefur alltaf illa verður heilsan ekki upp á marga fiska. Það er ekki hægt að upp skera raunverulegt heilbrigði án þess að huga að öllum þeim lífsstílsþáttum sem steypa grunninn. Ég brýt þetta niður í fjóra undirstöðuþætti sem eru hreyfing, næring, svefn og svo það sem ég kalla „jafnvægi“ en undir þann þátt falla streitu- stjórnun, félagsleg tengsl, tilgangur og slíkt.“ Þrjú ráð Rafns Rafn segist hafa fundið fyrir aukinni aðsókn fólks í þjónustu sína í kjölfar COVID-19 farald- ursins. „Ég átti ekki von á því en aðsóknin hefur verið gríðarlega góð í COVID. Það finnst mér frá- bært enda trúi ég að heilbrigður líkami sé besta leiðin til að takast á við þennan faraldur. Ég vil brýna fyrir öllum að það er aldrei of seint að bæta heilsuna. Lykillinn, að mínu mati, er helst að ætla sér ekki að sigra heiminn á einum degi. Með því að koma sér í svokallað „growth mindset“, eða uppbyggj- andi hugarfar, þar sem þemað í lífinu er að verða sífellt betri útgáfa af sjálfum sér, betri í dag en í gær, þá byrja lítil skref f ljótt að safnast upp. Ef ég ætti svo að gefa einhver ráð til að byrja að bæta heilsuna núna þá væri það aðallega þrennt: Reyndu að ná að minnsta kosti sjö klukkustunda svefni. Lágmark- aðu viðbættan sykur eftir fremsta megni og forðastu flestar fræolíur eða svokallaðar unnar grænmetis- olíur eins og heitan eldinn. Og síðast en ekki síst, finndu þér áhugamál og ræktaðu það. Þá er mikill plús ef það nærir einhverja sköpunargáfu í leiðinni. Hlaðvarp um heilsu Í einum hlaðvarpsþætti 360° Heilsu ræðir Rafn við Ásdísi Rögnu Einarsdóttur grasalækni, um muninn á því að vera karl í líkams- rækt og að vera kona. „Við ræddum saman um heilsu kvenna og hvern- ig þær gætu þurft að huga öðruvísi að heilsunni en karlmenn. Þetta var virkilega áhugavert spjall. Við snertum á því hvernig hormóna- kerfi kvenna getur verið viðkvæm- ara en hjá körlum. Konur eru til dæmis töluvert líklegri til að þróa með sér skjaldkirtils vandamál og sjálfsónæmissjúkdóma. Síðan er einnig margt sem bendir til þess að konur upp til hópa séu viðkvæm- ari fyrir skerðingu á kaloríum og þurfa því að passa sig meira þegar kemur að föstum og fleira. Ég held að ástæðan geti stafað að mörgu leyti af því að kvenlíkaminn er töluvert f lóknari vél en karl- líkaminn. Vél sem er hönnuð til að rækta líf inni í sér og strúktúrinn er því vandaðari og þar af leiðandi viðkvæmari fyrir áreiti. Í mínu starfi er munurinn á því að þjálfa konu og karla ekki svo mikill, sérstaklega þegar kemur að lyftingaþjálfun. Það fer að sjálfsögðu mest eftir markmiðum hvers og eins en æ fleiri konur sýna áhuga á kraftlyftingum þar sem fókusinn er á þungar lyftingar. Það sem ég hef helst í huga í þjálfun kvenna er að vanda æfingar kringum blæðingar. Þá geta liðamót verið lausari og líklegri til meiðsla og sumar konur eru lík- legri til að vera með skerta virkni í djúpkvið vöðvum á þessum tíma. Þegar kemur að öðrum lífsstíls- þáttum eins og mataræði og streitustjórnun eru líka ákveðnir hlutir sem ég hef bak við eyrað og fylgist betur með hjá konum.“ Annar þáttur fjallar um heilsu- þjófana þrjá. „Þar vek ég athygli á þremur heilsuþjófum sem eru hlutir í okkar daglega lífi sem eru í raun að ræna okkur heilsunni. Heilsuþjófarnir eru þá ofneysla sykurs, unnar grænmetisolíur og streita. Þetta eru hlutir sem meira að segja sjóaðir heilsugúrúar klikka oft margir hverjir ómeð- vitað á.“ Rafn er sérlega áhugasamur um málefni sem tengjast þarma- flórunni og í nýjasta þætti sínum ræðir hann við Birnu G. Ásbjörns- dóttur sérfræðing um þarmaflóru. „Hún sagði mér frá rannsóknum sem hún er að gera um þarmaflór- una í börnum og tengslum hennar við ADHD og geðræna kvilla. Það er ótrúlega merkilegt að sjá hvernig mataræði og lífsstíll hafa svo miklu víðtækari áhrif heldur en við gerum okkur grein fyrir. Þótt lyf séu oft góður og gildur kostur þá finnst mér nútímasam- félag orðið alltof háð þessu tóli sem í f lestum tilfellum er frekar plástur en langtímalausn á rót vandans. Á móti kemur að máttur mataræðis, næringar og lífsstílsbreytinga hefur ekki fengið þá athygli sem þau verðskulda í baráttunni við nútíma lífsstílssjúkdóma og líkam- lega og andlega kvilla.“ Raunverulegt heilbrigði er margþætt Foreldrar Rafns Franklíns Hrafnssonar lifðu báðir og hrærðust í líkamsræktarbransanum og segist hann vera nánast fæddur og uppal- inn í líkamsræktarsal. Hann á því ekki langt að sækja áhugann á einkaþjálfun og líkamsrækt. Rafn Franklín Johnson Hrafnsson segir að raunverulegt heilbrigði krefjist nægilegrar hreyf-ingar, rétts mataræðis, nægs svefns og jafnvægis. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI. Rafn heldur úti áhugaverðu hlað- varpi sem kallast 360° Heilsa. … að verða sífellt betri útgáfa af sjálfum sér, betri í dag en í gær, þá byrja lítil skref fljótt að safnast upp. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.