Fréttablaðið - 02.09.2020, Síða 28
Jóhanna María
Einarsdóttir
johannamaria@frettabladid.is
Rafn segir þó að áhuginn hafi ekki kviknað af alvöru fyrr en hann kynntist kraft-
lyftingum. „Upprunalegur bak-
grunnur minn er sófakartafla.
Sem krakki prófaði ég nánast allar
íþrótt ir sem hverfið bauð upp á,
en fannst alveg hræðilega leiðin-
legt í nánast öllum og beitti öllum
brögðum til að skrópa og sleppa
æfingum. Svo kynntist ég lyft-
ingum í gegnum félaga minn. Eftir
fyrstu æfinguna þá small einhver
rofi í hausnum á mér og ég varð
alveg heltekinn. Á stuttum tíma
fór ég frá því að skrópa á öllum
æfingum sem ég gat til að sitja í
sófanum heima, horfa á línulega
dagskrá og borða grillaðar sam-
lokur, yfir í að verða ástfanginn af
lyftingum sem þróuðust síðan yfir
í kraftlyftingar.
Ég stundaði síðan kraftlyftingar
alveg þangað til fyrir þremur árum
en þá færðist fókusinn á önnur
mið. Núna snýst hreyfingin meira
um að viðhalda skrokknum
og halda öllum strengjum vel
stilltum,“ segir Rafn.
Áhugi á mannslíkamanum
Rafn hefur verið í einkaþjálfara-
brans anum í hátt í tíu ár. „Mér
finnst það ótrúlegt afrek miðað
við það að meðalferill einka-
þjálfara er yfirleitt ekki nema 1-3
ár. Þegar ég áttaði mig á því að
ég gæti verið að fá greitt fyrir að
kenna öðrum að stunda líkams-
rækt, var ég snöggur að skrá mig
í þjálfaranám. Þetta hefur síðan
þróast hjá mér með árunum og
áhugasviðið víkkað innan heilsu-
geirans. Ég fékk brennandi áhuga á
mannslíkamanum og öllu sem við
kemur heilsu og því að rækta raun-
verulegt heilbrigði. Þá byrjaði ég
að kynna mér betur fræðin á bak
við, um lífsstílsþætti eins og svefn,
næringu og streitustjórnun. Í dag
er ég að klára nám sem snýr að því
að vinna á ýmsum lífsstílssjúk-
dómum með mataræði og öðrum
lífsstílsþáttum,“ segir Rafn.
360° Heilsa
Rafn býður upp á fjölbreytt
líkamsræktar- og heilsuprógrömm
undir yfirskriftinni 360° Heilsa.
Einnig heldur hann úti forvitni-
legu hlaðvarpi undir sama nafni
þar sem hann ræðir við fróða ein-
staklinga um heilsu og líkamsrækt
í víðum skilningi.
„360° Heilsa byggir á þeirri
hugmynda fræði að raunveru-
legt heilbrigði sé margþætt. Það
skiptir ekki máli þó svo mataræðið
sé upp á tíu. Ef þú sefur alltaf illa
verður heilsan ekki upp á marga
fiska. Það er ekki hægt að upp skera
raunverulegt heilbrigði án þess að
huga að öllum þeim lífsstílsþáttum
sem steypa grunninn. Ég brýt
þetta niður í fjóra undirstöðuþætti
sem eru hreyfing, næring, svefn
og svo það sem ég kalla „jafnvægi“
en undir þann þátt falla streitu-
stjórnun, félagsleg tengsl, tilgangur
og slíkt.“
Þrjú ráð Rafns
Rafn segist hafa fundið fyrir
aukinni aðsókn fólks í þjónustu
sína í kjölfar COVID-19 farald-
ursins. „Ég átti ekki von á því en
aðsóknin hefur verið gríðarlega
góð í COVID. Það finnst mér frá-
bært enda trúi ég að heilbrigður
líkami sé besta leiðin til að takast
á við þennan faraldur. Ég vil brýna
fyrir öllum að það er aldrei of seint
að bæta heilsuna. Lykillinn, að
mínu mati, er helst að ætla sér ekki
að sigra heiminn á einum degi.
Með því að koma sér í svokallað
„growth mindset“, eða uppbyggj-
andi hugarfar, þar sem þemað í
lífinu er að verða sífellt betri útgáfa
af sjálfum sér, betri í dag en í gær,
þá byrja lítil skref f ljótt að safnast
upp. Ef ég ætti svo að gefa einhver
ráð til að byrja að bæta heilsuna
núna þá væri það aðallega þrennt:
Reyndu að ná að minnsta kosti
sjö klukkustunda svefni. Lágmark-
aðu viðbættan sykur eftir fremsta
megni og forðastu flestar fræolíur
eða svokallaðar unnar grænmetis-
olíur eins og heitan eldinn. Og
síðast en ekki síst, finndu þér
áhugamál og ræktaðu það. Þá er
mikill plús ef það nærir einhverja
sköpunargáfu í leiðinni.
Hlaðvarp um heilsu
Í einum hlaðvarpsþætti 360°
Heilsu ræðir Rafn við Ásdísi Rögnu
Einarsdóttur grasalækni, um
muninn á því að vera karl í líkams-
rækt og að vera kona. „Við ræddum
saman um heilsu kvenna og hvern-
ig þær gætu þurft að huga öðruvísi
að heilsunni en karlmenn. Þetta
var virkilega áhugavert spjall. Við
snertum á því hvernig hormóna-
kerfi kvenna getur verið viðkvæm-
ara en hjá körlum. Konur eru til
dæmis töluvert líklegri til að þróa
með sér skjaldkirtils vandamál og
sjálfsónæmissjúkdóma. Síðan er
einnig margt sem bendir til þess að
konur upp til hópa séu viðkvæm-
ari fyrir skerðingu á kaloríum og
þurfa því að passa sig meira þegar
kemur að föstum og fleira. Ég held
að ástæðan geti stafað að mörgu
leyti af því að kvenlíkaminn er
töluvert f lóknari vél en karl-
líkaminn. Vél sem er hönnuð til að
rækta líf inni í sér og strúktúrinn
er því vandaðari og þar af leiðandi
viðkvæmari fyrir áreiti.
Í mínu starfi er munurinn á því
að þjálfa konu og karla ekki svo
mikill, sérstaklega þegar kemur
að lyftingaþjálfun. Það fer að
sjálfsögðu mest eftir markmiðum
hvers og eins en æ fleiri konur sýna
áhuga á kraftlyftingum þar sem
fókusinn er á þungar lyftingar. Það
sem ég hef helst í huga í þjálfun
kvenna er að vanda æfingar
kringum blæðingar. Þá geta
liðamót verið lausari og líklegri til
meiðsla og sumar konur eru lík-
legri til að vera með skerta virkni í
djúpkvið vöðvum á þessum tíma.
Þegar kemur að öðrum lífsstíls-
þáttum eins og mataræði og
streitustjórnun eru líka ákveðnir
hlutir sem ég hef bak við eyrað og
fylgist betur með hjá konum.“
Annar þáttur fjallar um heilsu-
þjófana þrjá. „Þar vek ég athygli
á þremur heilsuþjófum sem eru
hlutir í okkar daglega lífi sem eru
í raun að ræna okkur heilsunni.
Heilsuþjófarnir eru þá ofneysla
sykurs, unnar grænmetisolíur og
streita. Þetta eru hlutir sem meira
að segja sjóaðir heilsugúrúar
klikka oft margir hverjir ómeð-
vitað á.“
Rafn er sérlega áhugasamur
um málefni sem tengjast þarma-
flórunni og í nýjasta þætti sínum
ræðir hann við Birnu G. Ásbjörns-
dóttur sérfræðing um þarmaflóru.
„Hún sagði mér frá rannsóknum
sem hún er að gera um þarmaflór-
una í börnum og tengslum hennar
við ADHD og geðræna kvilla.
Það er ótrúlega merkilegt að sjá
hvernig mataræði og lífsstíll hafa
svo miklu víðtækari áhrif heldur
en við gerum okkur grein fyrir.
Þótt lyf séu oft góður og gildur
kostur þá finnst mér nútímasam-
félag orðið alltof háð þessu tóli sem
í f lestum tilfellum er frekar plástur
en langtímalausn á rót vandans. Á
móti kemur að máttur mataræðis,
næringar og lífsstílsbreytinga
hefur ekki fengið þá athygli sem
þau verðskulda í baráttunni við
nútíma lífsstílssjúkdóma og líkam-
lega og andlega kvilla.“
Raunverulegt
heilbrigði er
margþætt
Foreldrar Rafns Franklíns Hrafnssonar lifðu
báðir og hrærðust í líkamsræktarbransanum
og segist hann vera nánast fæddur og uppal-
inn í líkamsræktarsal. Hann á því ekki langt að
sækja áhugann á einkaþjálfun og líkamsrækt. Rafn Franklín Johnson Hrafnsson segir að raunverulegt heilbrigði krefjist nægilegrar hreyf-ingar, rétts mataræðis, nægs svefns og jafnvægis. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI.
Rafn heldur úti áhugaverðu hlað-
varpi sem kallast 360° Heilsa.
… að verða sífellt
betri útgáfa af
sjálfum sér, betri í dag en
í gær, þá byrja lítil skref
fljótt að safnast upp.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R