Fréttablaðið - 12.09.2020, Síða 4

Fréttablaðið - 12.09.2020, Síða 4
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla. Úrval af felgum fyrir Jeep® og RAM Upphækkunarsett í Wrangler Upphækkunarsett í RAM Falcon demparar ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00 ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK. FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI BREYTINGAR Á JEEP®, RAM OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323 UMBOÐSAÐILI Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi sendiherra og ráðherra greindi frá því í Morgunblaðinu að hann hefði verið ákærður fyrir kynferðis- lega áreitni. Það er embætti héraðs- saksóknara sem gefur ákæruna út en það var brotaþolinn í málinu, Carmen Jóhannsdóttir, sem greindi fyrst frá atvikinu í viðtali við Stundina. Málið verður þing- fest í Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku og verða þinghöld í málinu lokuð samkvæmt ákvörð- un dómara. Erla Stefánsdóttir verkefnisstjóri frá Mixtúru tók þátt í verk- efninu Stelpur filma! sem á að rétta hallann í íslenskri kvik- myndagerð. Erla segir vonir bundnar við að námskeiðið geti orðið liður í því að leiðrétta kynjahalla með því að bjóða upp á rými þar sem stelpur fái næði til að þroska kvikmyndahæfileika sína. Jón Óttar Ólafsson fyrrverandi rannsóknar­ lögreglumaður og félög honum tengd fengu 135 milljónir króna frá Samherja fyrir vinnu þeirra sem tengdist rann- sókn Seðlabanka Íslands á meintum gjaldeyrislaga- brotum fyrirtækisins. Samherji fer fram á rúmlega 300 milljónir króna í skaða- og miskabætur frá Seðlabankanum fyrir málarekstur. Þrjú í fréttum Þingfesting, kvikmyndir og bótakröfur SUÐURLAND Bæjarstjórn Horna- fjarðar vill sjá uppbyggingu á örygg- isf lugvelli í Öræfum í ljósi fjölda alvarlegra bílslysa og aðstæðna á svæðinu. Annað hvort í Skaftafelli eða á Fagurhólsmýri. Í lok ágúst fór smárúta með unglingaknattspyrnuliði Sindra út af veginum við Skaftafell og f lytja þurfti sjö með þyrlu til Reykjavíkur. Ekki þótti skynsamlegt að flytja þá 130 kílómetra leið með bíl til Hafnar og hvorki flugvöllurinn í Skaftafelli né á Fagurhólsmýri eru malbikaðir. Á undanförnum árum hafa orðið banaslys á svæðinu. Matthildur Ásmundsdóttir bæj- arstjóri bendir á að það taki þyrlu lengri tíma að komast til og frá svæðinu en flugvél. Ekki sé verið að fara fram á uppbyggingu hefðbund- ins áætlunarflugvallar heldur að til staðar verði malbikuð neyðarbraut. „Þetta er svæði þar sem náttúruvá er yfirvofandi alla jafna og getur einangrast vegna flóða,“ segir hún. Matthildur minnist alvarlegs slyss sem varð í maí árið 2019 þar sem rúta með meira en 30 ferða- mönnum valt út af vegi. „Fyrir til- viljun var nýbúið að hefla f lugvöll- inn á Fagurhólsmýri og f lugvél gat lent þar,“ segir hún. „Heilbrigðis- stofnunin hér getur ekki tekið við nema takmörkuðum fjölda.“ Bæjarstjórn hefur ekki skoðun á því hvor brautin myndi henta betur en fer fram á að stjórnvöld og Isavia meti kostnaðinn við möguleikana. Flugvöllurinn í Skaftafelli er í einka- eigu. Fagurhólsmýri er hins vegar skilgreindur sem öryggisvöllur og ríkið hefur afnotarétt af honum samkvæmt samningi. – khg Bæjarstjórn óskar eftir uppbyggingu öryggisflugvallar í Öræfum Þetta er svæði þar sem náttúruvá er yfirvofandi alla jafna og getur einangrast vegna flóða. Matthildur Ásmundsdóttir, bæjarstjóri DÓMSMÁL Kröfuhafar þrotabús fasteignafélags í Reykjavík hafa beint kröfu til Héraðsdóms Reykja- víkur og krafist þess að skiptastjór- anum verði vikið úr starfi. Skiptastjórinn, Lárus Sigurður Lárusson, seldi einu fasteignina sem skráð er á félagið með tugmilljóna afslætti, en verðmætur byggingar- réttur fylgir fasteigninni sem stend- ur við Skógarhlíð í Reykjavík. Sá sem keypti eignina af þrotabú- inu bauð 200 milljónir fyrir húsið í fyrra en fékk ekki fjármögnun og því varð ekkert af sölunni þá. Hann hefur nú keypt húsið á 130 milljónir. Ágreiningur er um raunveru- legt eignarhald fasteignarinnar en einn kröfuhafanna, Idac ehf., lýsti sértökukröfu í búið og kveðst vera raunverulegur eigandi hússins. Skiptastjórinn hafi verið upplýstur um eignarhaldið áður en kröfum var lýst og var vísað bæði til árs- reikninga og skattframtala búsins, máli kröfuhafans til stuðnings. Í kvörtun Idac ehf. til héraðs- dóms kemur fram að eignin hafi áður verið til sölu hjá Mikluborg þar sem 200 milljóna kauptilboðið var samþykkt í fyrra. Eftir að félagið var tekið til gjaldþrotaskipta og Lárus skipaður skiptastjóri, hafi húsið verið tekið úr sölu hjá Mikluborg en selt stuttu síðar til sama kaup- anda á mun lægra verði í gegnum fasteignasölu eiginmanns og sam- starfsmanns Lárusar, Sævars Þórs Jónssonar. Kröfuhafar fréttu fyrst af söl- unni á skiptafundi 26. júní þar sem skiptastjóri gerði munnlega grein fyrir sölunni og að ákvörðun um hana og um 2,5 prósenta söluþókn- un hefði verið tekin á veðhafafundi. Engin gögn voru lögð fram um söl- una og þegar skiptastjóri neitaði að afhenda gögnin greiddu kröfuhafar atkvæði um að fresta skiptafundi. Í yfirlýsingu frá stærsta veðhafa þrotabúsins, sem fylgir kvörtun- inni, segir hins vegar að enginn veð- hafafundur hafi verið haldinn um söluna og að sölulaun hafi hvorki verið borin undir hann formlega né óformlega. Þá er véfengt að yfirvofandi nauðungarsala hafi ráðið því að eignin hafi verið seld á undirverði, enda hafi staðið til boða, af hálfu veðhafans, að fresta nauðungarsölunni um sex mánuði. Samkvæmt heimildum liggja fyrir verðmöt um að söluverð eignarinnar sé eðlilegt en í kvört- uninni til héraðsdóms eru gerðar alvarlegar athugasemdir við að skiptastjóri hafi selt fasteignina langt undir markaðsverði. Hann hafi neitað að leggja fram umbeðin gögn vegna sölunnar, ekki orðið við ítrekaðri kröfu um að boða til framhaldsskiptafundar, ekki boðað þrotamann til skýrslutöku, og ítrekað veitt kröfuhöfum rangar upplýsingar. Sigurgeir Valsson, lögmaður Idac, segir umbjóðanda sinn einnig hafa kvartað til úrskurðarnefndar Lög- mannafélagsins og krafist þess að Lárus verði beittur agaviðurlögum. Lárus S. Lárusson vill ekki tjá sig um málið, stöðu sinnar sem skipta- stjóra vegna. adalheidur@frettabladid.is Kvarta til Héraðsdóms undan afsláttarkjörum skiptastjóra Kröfuhafar þrotabús krefjast þess að skiptastjóra verði vikið úr starfi og að úrskurðarnefnd Lögmanna- félagsins beiti hann agaviðurlögum. Sagður hafa selt fasteignina Þóroddsstaði með tugmilljóna afslætti. Færði fasteignaviðskiptin til stofu eiginmannsins og neitar að afhenda kröfuhöfum gögn um söluna. Byggingarréttur á lóð Þóroddsstaða gerir eignina mjög verðmæta að mati kröfuhafa. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kaupandi hússins bauð 200 milljónir í það ári áður en hann greiddi 130 millj- ónir fyrir eignina. 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.