Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.09.2020, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 12.09.2020, Qupperneq 12
1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT ENSKI BOLTINN Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu karla hefst í dag með fjórum leikjum. Tímabilið hefst þar eftir snarpt undirbúningstíma- bil liðanna í deildinni, þar sem leikmenn voru uppteknir í lands- liðsverkefnum í miðjum undir- búningnum. Áfram eru áhorfendur ekki leyfðir ekki á leikvöngunum en Bretum hefur gengið illa að ná tökum á kórónaveirufaraldrinum og eru hertar sóttvarnaaðgerðir boðaðar í landinu til þess að freista þess að hemja faraldurinn. Því er ekki víst hvenær áhorf- endum verður hleypt inn á völlinn á nýjan leik en vonast var til þess að stuðningsmenn gætu mætt í byrjun október. Chelsea hefur verið stórtækt á félagaskiptamarkaðnum í sumar en annars hefur markaðurinn verið nokkuð rólegur, en lokað verður fyrir félagaskipti í upphafi október- mánaðar og liðin hafa því enn tíma til þess að lappa upp á leikmanna- hópa sína. Eftir þrjátíu ára bið eftir meistara- titli er Liverpool í nýjum aðstæðum til að verja meistaratitilinn í ár. – hó Liverpool Liverpool hefur látið lítið fyrir sér fara í félagaskiptaglugg- anum. Gríski bakvörðurinn Konstantinos Tsimikas er eini leikmaðurinn sem Jürgen Klopp hefur bætt við hópinn. Mest er rætt um það hvort spænski miðvallarleikmaðurinn Thiago komi, en þá er líklegt að Gini Wijnaldum fari í hans stað. Veislan hefst á ný Enska úrvalsdeildin hefst á ný í dag eftir stutt frí. Ekkert lið átti roð í Liverpool í fyrra en í ár má búast við meiri spennu á toppnum. Manchester City Manchester City hefur bólstrað hóp sinn á sumum stöðum og stoppað í göt sem hafa myndast á öðrum stöðum á vellinum. Nathan Aké hefur bæst í varnarlínu liðsins. Phil Foden, sem kom heim með skottið á milli lappanna eftir dvöl sína á Íslandi um síðustu helgi, fær líklega það verkefni að fylla skarðið sem David Silva skilur eftir sig og Ferran Torres var fenginn til þess að leysa Leroy Sané af hólmi. Sergio Agüero kemur meiddur inn í tímabilið og Pep Guardiola gæti bætt sóknarmanni við hópinn. Gylfi Þór Sigurðsson Gylfi Þór Sigurðsson mætir til leiks með töluvert að sanna, eftir að hafa átt rólega leiktíð hvað marka- skorun og stoðsendingar varðar á síðasta tímabili. Gylfi Þór lék tölu- vert aftar á vellinum en hann á að venjast með félagsliðum sínum á síðustu leiktíð og flakkaði mikið á milli leikstaða á vellinum. Carlo Ancelotti hefur styrkt miðsvæðið hjá Everton-liðinu svo um munar en hinn kraftmikli miðjumaður Abdoulaye Douco- ure, leikstjórnandinn Allan og hinn skapandi James Rodriguez, hafa bæst við hópinn á síðustu dögum. Gylfi Þór og Ancelotti hafa báðir rætt í fjölmiðlum um að samstarf þeirra sé gott síðan Ítalinn tók við og líklegt er að Gylfi Þór sé enn í stóru hlutverki hjá Everton. Hafa verður einnig í huga að Rodriguez er að koma úr tímabili þar sem hann spilaði átta deildar- leiki með Real Madrid. Þá mun fjölhæfni Gylfa Þórs, sem er takt- ískt sterkur og getur leikið ýmsar stöður á vellinum í hinum ýmsu leikkerfum, koma honum til góða hvað spiltíma varðar. Gylfi Þór bar fyrirliðabandið undir lok síðustu leiktíðar og því kæmi það á óvart ef mikil bekkjarseta yrði hlutskipti hans á komandi keppnistímabili. Jóhann Berg Jóhann Berg mun vonandi ná að skilja að baki sér meiðslum stráð keppnistímabil sitt í fyrra og ná að spila reglulega með Burnley í vetur. Það er allt í senn virkilega mikilvægt fyrir Jóhann Berg sjálfan, lið Burnley, þar sem hann er lykilleikmaður þegar hann er heill, og íslenska lands- liðið sem þarf sárlega á kröftum hans að halda þegar liðið mætir Rúmeníu í undanúrslitum umspils um laust sæti í loka- keppni Evrópumótsins í byrjun okóber. Jóhann Berg hefur fengið góðan tíma til þess að ná sér að fullu af þeim meiðslum sem hafa verið að plaga hann síðustu mánuðina. Hann hefur notið skilnings á stöðu sinni hvað endurhæfinguna varðar hjá Sean Dyche, knattspyrnustjóra Burnley. Vonandi eru meiðslin úr sögunni í bili, Jóhann Berg á það skilið að fá meiðslalaust tímabil eftir þrautagöngu hans við að ná sér almennilega góðum af meiðslum sínum síðustu miss- erin. Burnley mun áfram spila sinn beinskeytta bolta og von- andi að sköpunargáfa Jóhanns fái að lífga upp á þann leikstíl sem liðið hefur upp á að bjóða. Tottenham Hotspur Tottenham hefur bætt við sig varnarmanninum Matt Doherty og miðjumanninum Pierre-Emil Højbjerg. Stuðningsmenn Spurs óska þess að fá varaskeifu fyrir Harry Kane, sem hefur verið brothættur undanfarin ár. Gott væri fyrir Mourinho að geta létt á álaginu á Kane og um leið eiga ás uppi í erminni á bekknum. Manchester United Félagið hefur ekki keypt jafn marga leikmenn og stuðnings- menn liðsins vonuðust eftir. Donny van de Beek eykur á breiddina inni á miðsvæðinu og getur einnig spilað í vængstöð- unum. Stuðningsmenn United eru margir hverjir á því að liðið þurfi á miðverði og vinstri bak- verði að halda. Miklar líkur eru á því að Jadon Sancho verði orðinn leikmaður Manchester United áður en lokað verður fyrir félagaskipti. Chelsea Chelsea hefur hrist verulega upp í hópi sínum síðustu vikurnar. Thiago Silva var fenginn til þess að koma stöðugleika á varnarleikinn og Ben Chilwell er kominn í vinstri bakvörðinn. Sóknarlína Chelsea hefur síðan fengið verulega upp- lyftingu í sumar en Timo Werner, Hakim Ziyech og Kai Havertz eru mættir á Stamford Bridge. Talið er svo að Frank Lampard ætli að fá Édouard Mendy til að veita Kepa Arrizabalaga samkeppni um mark- mannsstöðuna hjá liðinu. Arsenal Arsenal hefur styrkt vörnina með Gabriel og William Saliba. William var fenginn til þess að bæta vopnabúrið í sóknar- leiknum, en mesta gleðiefnið er að Pierre-Emerick Aubameyang virðist ætla að halda tryggð sinni við Skytturnar. Skattfrádráttur rannsóknar- og þróunarverkefna Umsóknarfrestur er til og með 1. október Nánari upplýsingar rannis.is Nýsköpunarfyrirtæki, sem eru eigendur að rannsóknar- og þróunarverkefnum og hlotið hafa staðfestingu Rannís, eiga samkvæmt lögum rétt á frádrætti gegnum skattkerfið. Stuðningur við verkefni getur numið allt að 35% af útlögðum kostnaði í tilviki lítilla og meðalstórra fyrirtækja, en 25% í tilviki stórra fyrirtækja.* *skattárin 2020 og 2021 (til endurgreiðslu 2021 og 2022)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.