Fréttablaðið - 12.09.2020, Side 23
Opið virka daga frá kl. 8.30 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 14.
Uppþvottavél,
Serie 4
Fullt verð: 149.900 kr.
Afmælisverð (hvít): SMU 46FW01S
116.900 kr.
14 manna. Sex kerfi, þar á meðal
hraðkerfi á 60° C (klukkustund). Þrjú
sérkerfi, meðal annars tímastytting og
sérlega þurrt. Hljóð: 44 dB.
Zeolith-þurrkun. Hnífaparaskúffa.
„aquaStop“-flæðivörn.
A
Espressó-kaffivél,
EQ.6
Fullt verð: 219.900 kr.
Afmælisverð: TE 651319RW
169.900 kr.
Glæsileg vél sem útbýr tvo kaffibolla
í einu með einum hnappi. Hraðvirk
upphitun. Hljóðlát kaffikvörn úr
keramík. Snertiskjár með myndum.
Þrýstingur: 15 bör. Hreinsar
mjólkurkerfi með gufu eftir hverja
notkun.
Kælir: 213 lítrar. Frystir: 94 lítrar.
„hyperFresh“-skúffa sem tryggir lengur
ferskleika grænmetis og ávaxta.
H x b x d: 186 x 60 x 65 sm.
Kæli- og frystiskápar,
iQ300
Fullt verð: 129.900 kr.
Fullt verð: 149.900 kr.
Afmælisverð (stál, kámfrítt):
Afmælisverð (hvítur):
KG 36VVI32
KG 36VUW20
99.900 kr.
117.900 kr.
Þvottavél,
Serie 6
Fullt verð: 137.900 kr.
Afmælisverð: WAT 2849BSN
109.900 kr.
Vindur upp í 1400 sn./mín. Kolalaus,
hljóðlátur og sparneytinn mótor.
Sérkerfi eru meðal annars: Skyrtur,
íþróttafatnaður, mjög stutt kerfi (15
mín.), stutt kerfi (30 mín.), viðkvæmt/
silki, ull o.fl.
9
kg
ADiplomat
Hangandi ljós
Fullt verð: 31.900 kr.
Afmælisverð: AN15698-15
24.900 kr.
Trassel
Hangandi ljós
Fullt verð: 28.900 kr.
Afmælisverð: AN15957-15
22.900 kr.
Helgi Kr. Sigmundsson starfar sem meltingarlæknir á
St.Mary´s Hospital í bænum Huntington í Virginíu fylki.
Atli Steinn Valgarðsson stundar sérnám í skurðlækn-
ingum í bænum Lubbock í Texas fylki. MYNDIR/AÐSENDAR
nánast skipt niður í sóttvarnaum-
dæmi. Ég fór úr öllu úti í bílskúr og
aðhafðist og svaf í einum helmingi
hússins og þau í hinum. Það voru
margar vikur þar sem í raun enginn
vildi hittast utan vinnu og held ég
að það hafi verið sérstaklega erfitt
fyrir eiginkonu mína og börn að í
raun hanga alltaf heima í sjálfskip-
aðri sóttkví.
Grímuskylda var sett á hér mjög
snemma í vor og eru reglurnar
þannig að búðir eða veitingastaðir
eru skylduð til að framfylgja henni.
Fyrst var þetta mjög skrýtið en
núna er maður orðinn vanur því að
fara allt með grímu .“
Óvissan erfiðust
Aðspurður um hvað hafi reynst
erfiðast við ástandið segir Atli það
hafa verið óvissuna: „Ótti við vöru-
skort, ótti við smit og félagslega
einangrun. Síðast en ekki síst ferða-
takmarkanir sem að lokum höfðu
mest áhrif á okkur.
Vöruskorturinn varð í raun aldr-
ei raunverulegur þrátt fyrir að það
hafi verið tímabil þar sem klósett-
pappír og sprittklútar kláruðust.
Hins vegar voru ferðatakmark-
anir sá þáttur sem mest áhrif hafði.
Áætlað var f ljúga til Íslands í vor
þegar þetta var allt í hámarki hérna,
sem varð ómögulegt þar sem miklar
ferðatakmarkanir voru í gildi.
Flest f lug voru felld niður og
okkur leið eins og við værum
föst hérna. Ég sem heilbrigðis-
starfsmaður var skilgreindur sem
„essential employee“, eða nauðsyn-
legur starfskraftur, og gat því ekki
með góðu móti ferðast utan Banda-
ríkjanna. Fjölskyldan vildi koma
og aðstoða okkur en gat ekki. Ég
er með græna kortið, en konan mín
og sonur búa á Íslandi en heimsækja
mig eins og þau geta hérna út. Þau
mega ekki vera lengur en sex mán-
uði, þar sem þau eru núna tæknilega
bara ferðamenn á meðan þau bíða
eftir græna kortinu. Dóttir okkar
fæddist í Bandaríkjunum og er
því ríkisborgari. Ferðatakmarkan-
irnar höfðu því mikil áhrif, konan
og sonurinn komust ekki heim
þegar þau þurftu að fara heim því
vísa þeirra var að renna út, en sem
betur fer sóttum við um undanþágu
og fengum.“
Tvær fylkingar fólks
Atli segir að borið hafi á ótta í borg-
inni í vor. „Fólk skiptist í tvær fylk-
ingar, þá sem tóku þessu mjög alvar-
lega og þá sem hunsuðu algjörlega
öll tilmæli. Með tímanum finnst
mér eins og fólk hafi komist nær
því að feta hinn gullna meðalveg og
nú finnst mér flest ganga, veitinga-
staðir og búðir eru opnar en hins
vegar eru allir með grímur og reyna
að halda sig í hæfilegri fjarlægð.“
Varðandi aðgerðir ríkisstjórnar-
innar bendir Atli á að málið sé ekki
einfalt, enda séu Bandaríkjamenn
330 milljónir og landið skiptist
niður í mörg ríki. „Hvert ríki og
hver sýsla fer með umtalsvert vald
og var mjög mismunandi hvernig
hvert ríki tók á málunum. Ég held
að enn sé of stuttur tími síðan far-
aldurinn hófst til að geta dæmt um
hvaða viðbrögð eru og voru bestu
viðbrögðin.“
Fókusinn á almenna smitgát
„Smit munu halda áfram að grein-
ast og býst ég við að samkomutak-
markanir verði rýmkaðar og hertar
til skiptis næstu misseri. Ég held
að þessi veira sé komin til að vera,
þar til að einhvers konar bóluefni
eða lækning finnst. Þangað til held
ég að almenn smitgát sé það sem
fókusinn þarf að vera á.“
Atli segir ekki laust við að hann
hafi íhugað að færa sig um set í ljósi
aðstæðna. „Alltaf þegar krísur eiga
sér stað vill maður vera í faðmi fjöl-
skyldunnar og var það sérstaklega
erfitt að vera í burtu frá fjölskyldu
og vinum þegar óvissan var hvað
mest og maður upplifði sig mjög
hjálparlausan hérna úti. Núna er
fjölskyldan mín komin til Íslands
en ég get enn ekki ferðast á milli
landa með góðu móti,“ segir Atli að
lokum.
SMIT MUNU HALDA ÁFRAM
AÐ GREINAST OG BÝST ÉG
VIÐ AÐ SAMKOMUTAK-
MARKANIR VERÐI RÝMK-
AÐAR OG HERTAR TIL
SKIPTIS NÆSTU MISSERI
Atli Steinn Valgarðsson
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23L A U G A R D A G U R 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0