Fréttablaðið - 12.09.2020, Page 33
Umsóknarfrestur er til 27. september. Með umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veita Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, stefania@hagvangur.is og Hlynur Atli Magnússon, hlynur@hagvangur.is.
Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins leitar að reynslumiklum verkefnisstjóra með
bakgrunn kerfisstjóra og sterka tæknilega þekkingu á Microsoft hugbúnaði til að stýra
innleiðingu á nýju málaskrárkerfi fyrir Stjórnarráðið. Hið nýja kerfi er hjartað í málavinnslu
ráðuneytanna, fjölmörgum ferlum og samvinnu innan ráðuneyta. Starfið krefst mikilla
samskipta við ráðuneyti, stofnanir og birgja.
TÆKNILEGUR VERKEFNISSTJÓRI
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Innleiðing á nýju samskipta- og
upplýsingastjórnkerfi fyrir ráðuneyti
og stofnanir
• Samvinna við framleiðanda og þjónustuaðila,
skjalastjóra og aðra sérfræðinga innan
ráðuneytanna í tengslum við innleiðingu
og útfærslu kerfisins
• Ábyrgð á daglegum rekstri kerfisins og
áframhaldandi þróun á virkni og ferlum
í samvinnu við kerfisstjóra Umbru,
skjalastjóra ráðuneytanna og þjónustuaðila
• Önnur tilfallandi verkefni í tengslum við þróun
og rekstur Umbru á Microsoft 365 og
Sharepoint umhverfi
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Nám í tölvunarfræði, kerfisfræði eða
sambærilegt nám eða reynsla
• Reynsla af verkefnastjórnun, innleiðingu og
rekstri tölvukerfa
• Þekking á skjalastjórnun og tengdum kerfum
er mikill kostur
• Góð þekking á Sharepoint og öðrum Microsoft
365 hugbúnaði
• Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
• Rík vitund um upplýsingaöryggi
• Frumkvæði, góð samskipta- og leiðtogahæfni,
ásamt ríkri þjónustulund og ögun í
vinnubrögðum
• Metnaður til að ná árangri og hæfni til að
tileinka sér nýjungar og breytingar
Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins
er miðlæg þjónustueining ráðuneytanna
sem sér um tiltekna rekstrarlega þætti og
annars konar þjónustu fyrir ráðuneyti og
stofnanir. Starfsmenn eru 35 og notendur
þjónustunnar á sjötta hundrað. Umbra er
ISO27001 vottuð.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því
að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr.
reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á
lausum störfum, með síðari breytingum.
Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins leitar að kerfisstjóra með sterka tæknilega
þekkingu á miðlægum Microsoft lausnum til að sinna kerfisstjórn og þjónustu við
notendur ráðuneyta og stofnana.
KERFISSTJÓRI
Helstu verkefni:
• Þátttaka í rekstri Microsoft 365 kerfa þar sem
staðbundnum og skýjalausnum er blandað
saman
• Kerfisstjórnun og notendaþjónusta
• Innleiðing og uppsetning nýrra kerfa
og lausna
• Taka þátt í vali á lausnum í takt við
tækniþróun á hverjum tíma
• Önnur tilfallandi verkefni í tengslum við þróun
og rekstur á innri kerfum Umbru
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Nám í tölvunarfræði, kerfisfræði eða
sambærilegt nám eða reynsla
• Reynsla af rekstri útstöðva, SCCM
og PowerShell
• Reynsla af rekstri og innleiðingu tölvukerfa
• Góð þekking á Microsoft 365 geira (tenant) og
á skýja- og staðbundnum lausnum Microsoft
æskileg
• Góð almenn þekking og reynsla af Microsoft
hugbúnaði, t.d. Active Directory, Azure, Intune,
Exchange, Teams og Sharepoint
• Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
• Rík vitund um upplýsingaöryggi
• Frumkvæði og góð samskiptahæfni, ásamt ríkri
þjónustulund
• Metnaður til að ná árangri og hæfni til að
tileinka sér nýjungar og breytingar
• Sjálfstæði í starfi og ögun í vinnubrögðum
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is