Fréttablaðið - 12.09.2020, Blaðsíða 38
Að 2F Húsi Fagfélaganna standa:
Byggiðn - Félag byggingamanna
Félag iðn- og tæknigreina (FIT)
Matvæla- og veitingafélag Íslands (MATVÍS)
Rafiðnaðarsamband Íslands (RSÍ)
Samiðn - Samband iðnfélaga
Nánari upplýsingar um starfið
veitir Pálmi Finnbogason (palmi@2f.is).
Umsóknir sendist á netfangið logmadur@2f.is.
Umsóknarfrestur er til 22. september.
LÖGFRÆÐINGUR ÓSKAST TIL STARFA
Lögfræðingur óskast til starfa
hjá 2F Húsi Fagfélaganna
Helstu verkefni eru að veita ráðgjöf varðandi túlkun ráðningar-
samninga, kjarasamninga og laga. Aðkoma að starfshópum á
vegum iðnaðarmannasamfélagsins, þátttaka í kjaraviðræðum,
umsagnir og málarekstur þegar svo ber undir.
Gerð er krafa um að umsækjendur hafi lokið meistaraprófi í
lögfræði og æskilegt er að hafa málflutningsréttindi. Þekking og
reynsla af vinnumarkaðsmálum er kostur.
Um er að ræða nýtt og spennandi starf í krefjandi starfsumhverfi.
Lögfræðingur mun heyra undir skrifstofustjóra 2F sem er
þjónustuskrifstofa iðnaðarmannasamfélagsins að Stórhöfða 31.
Þjóðgarðsvörður
Askja og Herðubreiðarlindir
Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir starf þjóðgarðsvarðar á hálendi norðursvæðis laust til umsóknar.
Leitað er að metnaðarfullum og framsýnum stjórnanda með mikla samskiptahæfni og áhuga á
náttúruvernd og umhverfismálum.
Hér er auglýst staða þjóðgarðsvarðar á norðursvæði með fasta starfsstöð í Mývatnssveit og umsjónarsvæði sem nær t.d. til Öskju,
Herðubreiðar, Holuhrauns og Gæsavatnaleiðar. Þjóðgarðsvörður mun eiga náið samstarf við þjóðgarðsvörð í Ásbyrgi og aðra
þjóðgarðsverði. Næsti yfirmaður þjóðgarðsvarðar er framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs en þjóðgarðsvörður mun einnig
vinna náið með svæðisráði norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.
Frekari upplýsingar um starfið: Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttar-
félags. Umsóknarfrestur er til og með 22. september 2020. Sótt er um starfið á Starfatorgi og skal umsóknum fylgja ítarlegt
yfirlit um menntun og starfsferil ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið. Við hvetjum bæði karla og konur til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin.
Um Mývatnssveit: Í Mývatnssveit búa um 500 manns. Þar er fjölskylduvænt, heilsueflandi samfélag með ríka áherslu á
sjálfbærni og nýsköpun. Þar er öflugt leikskóla- og grunnskólastarf og boðið upp á ókeypis skólamáltíðir fyrir börn og ókeypis
frístund.
Nánari upplýsingar um starfið veita Magnús Guðmundsson, framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs,
magnus.gudmundsson@vjp.is og Ragnheiður Björgvinsdóttir, mannauðsstjóri, ragnheidur.bjorgvinsdottir@vjp.is
Helstu verkefni
- Umsjón með daglegum rekstri og stjórnun svæðisins
- Framkvæmd stjórnunar- og verndaráætlunar
þjóðgarðsins
- Leiða starf við landvörslu og fræðslu á svæðinu
- Samskipti og samvinna við hagsmunaaðila s.s.
fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, skóla og íbúa á
nærsvæðum þjóðgarðsins
- Þátttaka í þróun og stefnumótun þjóðgarðsins
- Almenn stjórnsýsla og útgáfa leyfa fyrir hálendi
norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af stjórnun, rekstri og/eða mannaforráðum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking á umhverfismálum, náttúruvernd eða
f erðaþjónustu
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og leiðtogahæfileikar
- Þekking á öryggismálum og reynsla af ferðalögum til
fjalla er kostur
- Þekking á starfsemi þjóðgarða og friðlýstra svæða er
kostur
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
LAVANGO ehf leitar að
sölustjóra
Lavango ehf leitar að sölustjóra fyrir innlendan markað.
Sölustjórinn mun halda utan um samskipti við ört stækk-
andi hóp viðskiptavina félagsinns. Starfið krefst þekkingar
á vinnslutækni í sjávarútvegi, fiskiðnaði, fiskeldi og öðrum
matvælaiðnaði. Sölustjórinn veitir faglega ráðgjöf til við-
skiptavina og sinnir gerð sölutilboða, arðsemisgreininga
ásamt aðkomu að mótun sölu- og markaðsstarfs félagsins.
Við leitum að einstaklingi með háskólamenntun og/eða
reynslu sem nýtist í starfi. Einstaklingurinn þarf að vera
skipulagður, sjálfstæður, og lipur í mannlegum samskiptum.
Sölustjórinn þarf að hafa frumkvæði og vera lausnaþenkj-
andi og sjá möguleika á að skapa aukið virði fyrir viðskipta-
vini okkar. Viðkomandi þarf að tala og skrifa íslensku og
ensku. Farið er fram á góða tölvukunnáttu (Office). Reynsla
af teiknivinnu í AutoCad eða öðrum sambærilegum forritum
er kostur.
Sölustjórinn mun starfa á söluskrifstofu félagsins í Mos-
fellsbæ en reikna má með ferðalögum til viðskiptavina á
Íslandi og til birgja erlendis.
Umsóknir með ferilskrá sendist til lavango@lavango.is
fyrir 20. september næstkomandi.
Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R