Fréttablaðið - 12.09.2020, Síða 74

Fréttablaðið - 12.09.2020, Síða 74
ÞETTA ERU ÓLÍK VERK: MÁLVERK, VERK ÚR STEINI, GLERI OG MARMARA. Í aðalsal Hafnarborgar er haustsýningin Villiblómið, í sýningarstjórn Becky Fors­ythe og Penelope Smart, en hugmynd þeirra var valin úr fjölda innsendra tillagna að haustsýningu ársins 2020. Þetta er fyrsta samstarfsverkefni þeirra, en báðar koma þær frá Kanada. Ellefu listamenn, innlendir og erlendir, eiga verk á sýningunni. „Í huga okkar Penelope er villi­ blóm tákn fyrir seiglu, mátt og mýkt og hið hverfula og smáa. Í verkum sínum beina listamennirnir sjónum að plöntum og blómum á norður­ slóðum, en þar er mikið um harð­ gerðar jurtir í hrjóstrugu umhverfi,“ segir Becky. „Þetta eru ólík verk: málverk, verk úr steini, gleri og marmara. Saman mynda verkin heild. Við Penelope skoðuðum verk listamanna og völdum til sýningar það sem okkur fannst mest spenn­ andi.“ Þrjár kanadískar listakonur eiga verk á sýningunni, en þau voru send hingað til lands. „Það var gamall draumur minn að sýna hér verk eftir kanadíska listamenn og tengja við Ísland,“ segir Becky. Elsta verkið á sýningunni er frá árinu 1967 og er eftir Jón Gunnar Árnason, fengið að láni frá Nýlista­ safninu. Unnur Mjöll Leifsdóttir safnfulltrúi lýsir því: „Það er kraft­ mikið og ógnvekjandi um leið. Þarna mætir karllæg orka kvenorku og það myndar mjúka og fallega teikningu í rýminu.“ Unnur segist stolt af sýningunni. „Hér er falleg og góð blanda af lista­ verkum. Þar er unnið með það agnarsmáa og fíngerða sem þrífst í hrjóstrugu og harðgerðu umhverfi og fegurðin í því er dregin fram.“ Sýningin stendur til 25. október. Tákn fyrir seiglu og mýkt Villiblómið er haustsýning Hafnarborgar. Ellefu listamenn eiga verk á sýningunni og beina sjónum að plöntum og blómum. Listamennirnir Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru Arna Óttars­ dóttir, Asinnajaq, Eggert Pétursson, Emily Critch, Jón Gunnar Árnason, Justine McGrath, Katrina Jane, Leisure, Nína Óskarsdóttir, Rúna Þork­ elsdóttir og Thomas Pausz. Í tilefni sýningarinnar kemur út sýningarskrá með textum eftir Becky Forsythe, Penelope Smart, Ágústu Kristófersdóttur, D‘Arcy Wilson, Ingu Björk Marg rétar Bjarnadóttur og Andra Snæ Magnason. Becky Forsythe er annar sýningarstjóra sýningarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Elsta verkið er eftir Jón Gunnar Árnason. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Bó k a m a r k a ð u r F é l a g s íslenskra bókaútgefenda hefur verið opnaður í Hörpu. Markaðurinn var að venju haldinn í febrúar og mars á þessu ári en verulega dró úr aðsókn og sölu síð­ ustu dagana, þegar COVID ástand­ ið lagðist yfir landið. Fjölmargir bókaunnendur urðu því af árlegri heimsókn sinni á markaðinn. Br y ndís Lof t sdóttir, f ram­ k væmd a st jór i ma rk aða r ins , segir útgefendur hafa haft mikinn áhuga á að halda haustmarkað ef hentugt húsnæði fyndist og reglur um f jöldatakmarkanir yrðu rýmkaðar, líkt og nú hefur gerst. „Við komumst hins vegar ekki inn á okkar hefðbundna stað við Laugardalsvöll, á meðan fótboltaleikir standa yfir. Fyrir nokkrum dögum opnaðist hins vegar óvænt tækifæri fyrir upp­ setningu markaðarins í rúmgóð­ um og glæsilegum húsakynnum Hörpu. Þar fer vel um bæði bækur og fólk og aldeilis frábært að geta tyllt sér við lítil borð með útsýni yfir Reykjavíkurhöfn eða umluk­ in ótal ljóðabókum, og gluggað í góðar bækur.“ Á markaðinum eru ríf lega 5.000 bókatitlar sem skiptast nokkurn veginn jafnt á milli skáldverka, barnabóka og fræði­ og hand­ bóka. Barnabækur eru fyrirferðar­ mestar, bæði í fjölda titla og fyrir­ ferð. Þá fá skáldverk í kiljubroti einnig sérstakan sess. Þar eru þýddar bókmenntir í meirihluta en glæpasögurnar fá nú sérstaka deild enda langvinsælasti bóka­ f lokkurinn. „Það er svo ánægju­ legt að sjá að rómantískar bækur, sem einfaldlega hétu einu sinni ástarsögur, eru að vinna sig hratt upp í vinsældum hjá lesendum eftir langt hnignunarskeið. Ást og haust fara líka svo vel saman. Lítið kertaljós í kvöldmyrkrinu eykur rómantíkina og skapar af bragðs lestrarumhverfi,“ segir Bryndís. Bókamarkaðurinn í Hör pu stendur til 27. september og þar er opið alla daga frá kl. 12­20. Fimm þúsund bókatitlar í Hörpu Bryndís Loftsdóttir er framkvæmdastjóri markaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Sinfóníu hljómsveit Íslands býður upp á ókeypis kammer­tónleika í Hörpu á föstudögum kl. 17.30 í september. Þar f lytja hljóðfæraleikarar Sinfóníunnar létta og skemmtilega kammer­ tónlist á klukkustundarlöngum tónleikum á 1. hæð Hörpu. Það er tilvalið að mæta snemma þar sem veitingastaðurinn opnar kl. 16.30 en þar verður hægt að kaupa drykki og tapas­disk. Á næstu tónleikum, föstudaginn 18. september, verða f lutt verk eftir Mozart, Schulhoff og Beethoven. – kb Ókeypis tónleikar í Hörpu mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU AFMÆLISKRINGLUNNI - fyrir 25-30 manns PREN TU N .IS 1 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.