Fréttablaðið - 22.09.2020, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 0 4 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 2 2 . S E P T E M B E R 2 0 2 0
REYKJAVÍK „Eftir að skólinn byrjaði
aftur hefur dóttir mín fengið rosa-
leg höfuðverkjaköst. Síðasta mið-
vikudag leið yfir hana. Ég veit að
það eru fleiri börn sem hafa fundið
fyrir einkennum, til dæmis óút-
skýrð útbrot og fleira,“ segir Jónína
Sigurðardóttir, móðir barns í Foss-
vogsskóla.
Framkvæmdir fóru fram í sumar
við húsnæði skólans sem áttu að
tryggja að loftgæði þar væru heil-
næm. Hluta skólans var lokað
tímabundið í fyrra vegna myglu
og ráðist var í framkvæmdir upp á
tæpan hálfan milljarð króna. Eftir
að framkvæmdunum lauk stigu for-
eldrar barna fram sem fundu áfram
fyrir einkennum.
Framkvæmdum lauk í byrjun
ágúst og barst lokaúttekt frá verk-
fræðistofunni Verkís 17. ágúst. Er
nú beðið eftir lokaúttektarskýrslu.
Þrátt fyrir þessar framkvæmdir
segir Jónína að dóttir hennar finni
fyrir einkennum í húsnæðinu.
„Það er búið að útiloka allt annað
en húsnæðið. Hún er búin að fara
til tannréttingasérfræðings, augn-
læknis, sálfræðings, sjúkraþjálfara
og fara í taugapróf. Einkennin
hverfa alltaf þegar hún er ekki í
skólanum,“ segir Jónína. „Það snýst
ekki um námið eða álag, það hefur
aldrei verið jafn mikið álag á henni
og í samkomubanninu, þá voru
engin einkenni. Ég vildi óska þess
að þetta væri eitthvað annað en
húsnæðið.“
Valgerður Sigurðardóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir
að rífa þurfi húsnæðið og byggja
nýtt. „Ég get ekki metið það öðru-
vísi en að þetta húsnæði sé ónýtt og
þurfi að rífa. Ég held að við náum
aldrei öðruvísi að koma í veg fyrir
þetta,“ segir Valgerður. „Í Kópavogi
var Kársnesskóli rifinn vegna myglu
og rakaskemmda. Ég tel að það þurfi
að gera hið sama í tilfelli Fossvogs-
skóla.“ – ab / sjá síðu 6
Telur að rífa þurfi skólahúsið
Móðir stúlku í Fossvogsskóla segir dóttur sína finna fyrir einkennum myglu í skólanum. Ráðist hefur
verið í miklar framkvæmdir en borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur að rífa þurfi skólabygginguna.
Í Kópavogi var
Kársnesskóli rifinn
vegna myglu og raka-
skemmda. Ég tel að það
þurfi að gera hið sama í
tilfelli Fossvogsskóla.
Valgerður Sigurðar-
dóttir, borgarfull-
trúi Sjálfstæðis-
flokksins
HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170
Hann er kominn!
Nýr 100% rafmagnaður Volkswagen ID.3
Komdu í reynsluakstur
#NúGeturÞú
Mælst er nú til þess að fólk beri grímur í framhaldsskólum og háskólum á höfuðborgarsvæðinu. Nemendur í Verslunarskólanum fengu af hentar grímur í gær. Tilkynnt var um 30 ný tilfelli
kórónaveirusmits hér á landi. Samkvæmt tölum almannavarna voru 242 manns í einangrun í gær, þar af 215 á höfuðborgarsvæðinu. Í sóttkví voru samtals 2.012. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
FÓTBOLTI Kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu mætir Svíum í undankeppni
EM í Laugardal. Efsta liðið í riðl-
inum fer beint í lokakeppnina en
þrjú lið með bestan árangur í öðru
sæti fá einnig farseðil. Önnur sex lið
fara í umspil um þrjú laus sæti á EM.
„Svíar eru með líkamlega sterkt
lið en við teljum okkur vera það
líka og við munum mæta þeim af
fullum krafti í baráttunni,“ segir
Jón Þór Hauksson, þjálfari lands-
liðsins, sem kveður íslensku stelp-
urnar munu mæta þeim sænsku af
fullum þunga.
„Vonandi heldur sá góði taktur
sem hefur verið í liðinu áfram í
þessum leik. Það er afar mikilvægt
að ná hagstæðum úrslitum,“ segir
þjálfarinn. – hó / sjá síðu 12
Bak við luktar
dyr er farmiði
til Englands