Hvöt - 01.04.1952, Síða 17
H V Ö T
15
framvegis yrði tvöföld bókfærsla við-
höfð í reikningslialdi sambandsins.
Svo sem venja er, fluttu hinir ýmsu
fulltrúar skýrslur um störf félaga sinna,
og lýstu jafnframt ástandi í bindindis-
málum bver í sínum skóla. — Víða er
málum þessum vel komið og þó inis-
jafnlega. 1 sumum bindindisfélögum er
allgott starf, önnur eiga erfitt uppdrátt-
ar eða liggja niðri með öllu. Augljóst
varð af skýrslum þessum, að ástandi
í bindindismálum livers skóla er þar
bezt komið, sem ríkt er eftir því geng-
ið, að fylgt sé settum reglum, en sums
staðar er illa á haldið.
Aðalmál þessa þings var frumvarp
að nýjum lögum fyrir sambandið. Þor-
varður ömólfsson hafði sami-ð frum-
varp þetta og var það fram lagt á
fyrra þingdegi. Helztu nýmæli í frum-
varpinu vora ákvæði þau, er mæltu
svo fyrir, að skilvrði til þátttöku í sam-
bandinu yrðu, að hvert félag hefði
tóbaksbindindi í lögum sínum auk
áfengisbindindis. — Ekki voru menn
á eitt sáttir um afgreiðslu þessa máls.
Minnihluti laganefndar, Árni Stefáns-
son (Menntask.), taldi, að með þessu
væri of stórt skref stigið, en leggja bæri
meiri áberzlu á baráttuna gegn áfengis-
neyzlu. Þorvarður Ömólfsson svaraði
ræðu Árna. Hann benti einkum á hin
illu álirif, sem tóbak liefur á mannslík-
amann, og kvað tíma til kominn, að S. B.
S. beitti sér af alefli gegn þeirri plágu,
tóbaksnautninni. Allmargir ræddu þetta
mál auk þeirra, sem nefndir eru bér að
framan. Að lokum var ákvæði þetta
samþ. með þeirri breytingu þó, að ekki
kæmi það til framkvæmda^fyrr en að
ári liðnu.
Ymsar samþykktir vora ennfremur
gerðar á þinginu, en óþarft er að geta
þeirra hér, þar sem þær hafa flestar
verið birtar í blöðum og litvarpi.
Að þessu loknu var gengið til kosn-
inga. Stjórn sambandsins skipa nú:
FormaSur: Öli Kr. Jónsson (Kenn., end-
urkosinn). VaraformaSur: Valdimar
Örnólfsson (Menntask.). MeSstjórnend-
ur: Tómas B. Sturlaugsson (Kenn.),
Ásgeir Jóhannesson (Samvinnusk.) og
Valva Ásgríms (Kvennask.). Eftirlits-
mdSur: Þorvarður Örnólfsson kennari.
íþróttanefnd: Baldur Halldórsson
(Samv.sk) form.
Að loknum þingstörfum var efnt til
sameiginlegrar kaffidrykkju að Röðli.
Þar fluttu ræður þeir Þorvarður Örn-
ólfsson, kennari; Jón Böðvarsson, stud.
mag. og Öli Kr. Jónsson, formaður
sambandsins, er sagði þinginu slitið.
— Að því búnu var stiginn dans til kl.
I í danshúsum S. G. T. og S. K. T.
Svo sem áður er um getið, sat þing
þetta í 'lestrarsal íþöku, bókasafns
Menntaskólans. Skylt er þakka léð lnís-
næði, þó að salurinn væri illa til reiðu
frá hendi húsvarða; kaldur og óræstuð
borðin. — Flestir sættu sig fyllilega
við þingstað þennan, þótt lélegur væri.
Þeir vissu, að ýmislegt hefur breytzt
á 15—20 árum, vissu, að sá tími er
liðinn, þegar sambandið fékk, nær um-
yrðalaust, hátíðasal skólans til afnota
fyrir jiing sín. Þingfulltrúar kærðu sig
kollótta um kuldann, því að aðstæð-
uraar í Iþöku voru aðeins smækkuð