Hvöt - 01.04.1952, Side 19

Hvöt - 01.04.1952, Side 19
H V Ö T 17 Eftir Parker ’52 PROLOGUS Svo sem vonlegl er, liefur lesendum þessa blaðs mjög þótt vanta pistil ein- hvers konar, sem verið gæti þeirn upp- örfun og andlegur styrkur, þá er þeysi- dögg þýzkra endursagna birgir mönn- um sólarsýn og miklar prófaplágur hrjá og pína skólalýð allan. — Pistli þeirn, sem hér hefur göngu sína, er ætlað að bæta úr þessu ófremdarástandi að einhverju leýti. En þar eð maður sá, sem spjall þetta út úr sér kreistir, er hvorki alvís né alskyggn, fer hann þess á leit við lesendur, að þeir verði hon- um innan handar og sendi blaðinu línu eða hafi samband við það á einlivern annan liátt, og tjái oss þannig hörm- ungar sínar og hundalíf. Ennfremur mættu þeir á það minnast, livað mark- vert getur og skemmtilegt í skólum þeirra; hversu liitinn er hár og ill- bærilegur í liinum jarðnesku helvítum, eins og vistarverur þessar eru rétt nefndar. HETJA Á HUNDASUNDI Engan furðar á því nú orðið, þótt háreysti og óhljóðan sé þar, sem íþróttamenn og unnendur þeirra eru sarnan komnir, og vart er slíkt í frá- sögn færandi. Þó viljum vér vekja athygli manna á nýbreytni, er fram kom í þessu efni á sundmóti skólanna ekki alls fvrir löngu. A sundmóti þessu bar svo við, að nemendur frá einum skólanna auð- kenndu sig á all forkostulegan máta. Að sjálfsögðu reyndu þeir, ekki síður en aðrir, að bera sveit sína tii sigurs með ópi og argi, en þar að auk báru þeir smáflögg, sem þeir veifuðu til manna sinna eggjunarorðunum til frek- ari áherzlu. Hinir, sem engin flögg höfðu, tóku nú að óttast mjög um árangur sinna manna. En liér fór sem jafnan fyrr, að skjótt skipast veður í lofti. Á úrslitastundu ærðist mesti kappi flaggberanna og brá sér á liunda- sund, en slíkt brýtur í bág við öll siðgæðislögmál sundmanna, enda var liðið allt frá leik dæmt. HITLERS JUGEND Á ISLANDI? Atburður sá, er vér liöfum að fram- an lýst, verður að teljast æði merki- legur, enda vakli hann upp forvitni vora á fólki þessu. Við eftirgrennsl- an höfum vér orðið þess áskynja, að nemendur þessa skóla eru miklu betur

x

Hvöt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.