Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR 9. OKTÓBER 2020 DV
Hættuleg
einangrunar-
stefna
C laudia Ashanie Wilson var fjórtán ára þegar hún ákvað að verða lög-
fræðingur. „Ég var alltaf að
horfa á lögfræðidramað The
Practice og fannst þetta vera
mjög spennandi starf. Sér-
staklega var ég hrifin af lög-
fræðingnum Ellenor og vildi
vera eins og hún. Ég man að
kennarinn minn sagði að ég
yrði örugglega fínn lögfræð-
ingur því ég talaði svo mikið,“
segir Claudia og hlær.
Hún er fædd og uppalin í
Montego Bay, annarri stærstu
borg Jamaíka, en ævintýra-
þráin leiddi hana til Íslands
þegar hún var aðeins 18 ára
gömul. „Ég stefndi alltaf á að
verða viðskiptalögfræðingur,
keypti mér kennslubók í við-
skiptalögfræði aðeins 14 ára
gömul en skildi ekkert í henni.
Ég lét það ekki stoppa mig og
kom með bókina með mér
þegar ég flutti til Íslands.“
Það er heldur ólíkt að alast
upp á Jamaíka eða á Íslandi.
Hún bjó í stóru húsi með for-
eldrum, ömmu, afa, frændum,
frænkum og fjórum systkin-
um. Pabbi Claudiu er prestur
en mamma hennar sjálfstætt
starfandi, rak um tíma leigu-
bílaþjónustu og verslun.
Örlagarík bréfaskipti
„Við krakkarnir vorum mikið
að klifra í trjánum, tína ávexti
og synda í ánni. Stundum
veiddum við fisk og elduðum
hann jafnvel bara við ána.
Yfirleitt var ég úti allan dag-
inn. En það eru breyttir tímar
og ég er viss um að krakkar á
Jamaíka eru jafn mikið í sím-
anum og tölvuleikjum eins og
krakkar hér.“
Claudia var alltaf góður
námsmaður og frá sjö ára
aldri hafði hún það sérstaka
hlutverk að lesa fyrir afa sinn
sem var ólæs og hafði aldrei
gengið í skóla. „Ég las fyrir
hann öll bréf sem hann fékk
og skrifaði líka fyrir hann.
Alltaf þegar hann hóaði í mig
og kallaði Teacher! þá vissi
ég að ég ætti að koma að lesa
eða skrifa fyrir hann. Ég var
sannfærð um að ég yrði kenn-
ari, alveg þar til ég byrjaði að
horfa á The Practice.“
Líklega hefur fjórtán ára
Claudiu ekki órað fyrir fram-
haldinu. Hún kom til Íslands
árið 2001 og átti þetta bara
að vera heimsókn. Hún hafði
þá staðið í bréfaskriftum við
ungan íslenskan mann sem
bauð henni að heimsækja sig
en á þessum tíma hafði hún
aldrei einu sinni komið til
Evrópu. Til að gera langa sögu
stutta varð þessi maður síðar
eiginmaður Claudiu og þau
eignuðust saman tvíburana
Owen Rúnar og Aaron Frey
sem verða 15 ára í desember.
Claudia segist alltaf hafa ver-
ið með mikla réttlætiskennd,
en áhugi hennar fyrir mann-
réttindalögfræði og jafnréttis-
málum jókst eftir skilnað.
Varð meðeigandi í sumar
Claudia útskrifaðist frá laga-
deild Háskólans í Reykjavík
árið 2014 og hlaut lögmanns-
réttindi árið 2016. Lokaritgerð
hennar fjallaði um Dyflinnar-
reglugerðina og rétt hælisleit-
enda til að andmæla endur-
sendingu til öruggs þriðja
ríkis.
Hún er fyrsti innflytjandinn
frá landi utan Evrópu til að
öðlast lögmannsréttindi á Ís-
landi. Claudia hefur starfað
hjá lögmannsstofunni Rétti
– Aðalsteinsson & Partners,
frá árinu 2013 og í sumar var
tilkynnt um að hún væri orðin
meðeigandi.
Helstu starfssvið Claudia
eru mannréttindi, útlendinga-
og flóttamannaréttur, gjald-
þrotaskipti og refsiréttur. Þá
hefur hún sérhæft sig í öflun
atvinnuleyfa fyrir erlenda
sérfræðinga til að starfa hjá
íslenskum fyrirtækjum sem
og erlendum fyrirtækjum með
starfstöðvar hérlendis. Sam-
hliða lögmannsstörfum sínum
er Claudia stundakennari við
Háskóla Íslands, Jafnréttis-
skóla Háskóla Sameinuðu
þjóðanna og situr í fagráði
SOS barnaþorpa á Íslandi. Þá
hefur hún nýlega tekið sæti í
fagráði Jafnréttissjóðs Íslands
og stjórn í Íslandsdeildar Am-
nesty International.
Sterkar fyrirmyndir
Um tíma sat Claudia í stjórn
Samtaka kvenna af erlendum
uppruna og segir þá reynslu
hafa skipt hana miklu. „Skiln-
aðurinn hafði mikil áhrif á
mig. Það var erfitt að ganga
í gegnum skilnað svona langt
frá fjölskyldu minni og mér
fannst ég vera svolítið ein. Ég
átti þó góða að og fór að hugsa
um hvernig þetta væri fyrir
aðrar konur af erlendum upp-
runa þegar þetta var erfitt
fyrir mig sem þó þekkti að-
eins inn á réttarkerfið á þeim
tíma, þekkti samfélagið og
talaði góða íslensku. Ég ákvað
að taka þátt í starfi Samtaka
kvenna af erlendum uppruna
til að hjálpa öðrum konum
en á endanum voru það allar
hinar konurnar sem hjálpuðu
mér,“ segir Claudia auðmjúk.
Áður hafði hún aðallega séð
í fjölmiðlum fjallað um kon-
ur af erlendum uppruna sem
hluta af einhvers konar sam-
félagslegu vandamáli og þær í
hlutverki fórnarlamba. Þarna
kynntist Claudia hins vegar
metnaðarfullum og sjálfstæð-
um konum sem höfðu komið
sér vel fyrir í íslensku sam-
félagi.
„Þetta opnaði augu mín
fyrir því að þó að ég sé af er-
lendum uppruna þá á það ekki
að koma í veg fyrir að ég geti
verið virkur samfélagsþegn.
Þarna voru sannkallaðar
kjarnakonur, í góðum störf-
um með góða menntun. Þær
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
sýndu mér að allt er hægt.
Sannarlega eru kerfisbundnar
takmarkanir þegar kemur að
möguleikum kvenna af erlend-
um uppruna en saman getum
við minnkað skaðleg áhrif
þeirra og breytt viðhorfinu.“
Hún segir mikilvægt að
hafa sterkar fyrirmyndir og
er þakklát fyrir að geta nú
sjálf talist vera sterk fyrir-
mynd fyrir konur af erlendum
uppruna á Íslandi. „Í fyrra var
ég í viðtali á RUV English og
deildi eftir það leigubíl með
konu sem var með mér í við-
talinu. Hún sagði þá að hana
hefði lengið langað að hitta
mig og þakka mér fyrir. Hún
hafði þá lesið viðtal við mig í
Morgunblaðinu sem var tekið
eftir að ég útskrifaðist úr lög-
fræðinni 2014 og þá fannst
henni hún líka geta gert það
sem hún vildi. Hún hafði
menntað sig sem arkitekt í
heimalandinu og dreif í að fá
námið viðurkennt hér, þrátt
fyrir margs konar hindranir.
Konan lét það ekki stöðva sig
að hún fengi ekki vinnu eftir
að hafa fengið viðurkenningu
á menntun og stofnaði hún
bara sitt eigið fyrirtæki. Það
gladdi mig mikið að hafa veitt
henni innblástur og það geng-
ur allt mjög vel hjá henni að
mér vitandi.“
Heiður að læra af Ragnari
Þegar Claudia hóf að leita að
lögmannsstofu til að vinna á í
starfsnáminu varð fljótt ljóst
hvaða stofa yrði fyrir valinu.
„Ég las mér til um hvaða stof-
ur væru mannréttindasinn-
aðar og alltaf kom upp nafn
Ragnars Aðalsteinssonar og
Réttur. Ég ákvað því að sækja
um þar. Það er ekki hægt að fá
betri kennslu en frá Ragnari
Aðalsteinssyni. Hann er gang-
andi alfræðiorðabók og honum
eru mannréttindi í blóð borin.
Það er heiður að vera lær-
lingur hans.“
Hún sagði Ragnari strax
frá áhuga sínum á málefnum
útlendinga og flóttamanna og
það var þá auðfengið að vinna
að verkefnum þeim tengdum.
„Ásamt þessu vann ég með
öðrum samstarfsfélögum mín-
um og var þeim til aðstoðar.
Ég hef því breiðan þekkingar-
grundvöll. Þó að mín helstu
Claudia Ashanie Wilson vinnur að bættum
hag hælisleitenda og flóttafólks. Hún segir
mikilvægt að konur af erlendum uppruna
hafi sterkar fyrirmyndir. Claudia varð í sumar
meðeigandi að lögmannsstofunni Rétti.