Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Blaðsíða 36
Hverjar eru
Jill Biden
og Melania
Trump?
Forsetafrúin Melania Trump og kennarinn
Jill Biden gætu varla verið ólíkari. Þær
eiga þó tvennt sameiginlegt. Eiginmenn
þeirra sækjast eftir sömu stöðunni og
þær hafa báðar gegnt fyrirsætustörfum.
Á meðan Melania gerði það að farsælum
ferli, einbeitti Jill sér að náminu og nældi
sér í fjórar háskólagráður.
36 FÓKUS 9. OKTÓBER 2020 DV
FYRIRSÆTUR
Jill Biden og Melania Trump gegndu báðar fyrirsætu
störfum á einhverjum tímapunkti.
FYRRI STÖRF
Melania seldi eitt sinn skartgripi.
Jill er kennari að mennt.
Jill Tracy Jacobs Biden er eiginkona fram
bjóðanda Demókrata, Joe Biden. Jill Biden er
bandarískur prófessor og var varaforsetafrú
Bandaríkjanna á árunum 20092017.
FYRRUM HJÓNABÖND OG BÖRN
Jill fæddist þann 3. júní árið 1951. Hún giftist
Bill Stevenson árið 1970 og skildu þau fimm
árum seinna.
Jill og Joe Biden eiga saman þrjú börn. Líf
fræðilega eignuðust þau saman eina dóttur,
Ashley Biden. Joe átti tvö börn úr fyrra hjóna
bandi, drengina Hunter og Beau Biden. Hann
missti eiginkonu sína og unga dóttur, þær
Neiliu Hunter og Naomi Christinu Biden, í
hræðilegu bílslysi árið 1972. Beau Biden lést
árið 2015 eftir hetjulega baráttu við heilaæxli.
Jill og Joe Biden hafa verið gift síðan árið
1977, en Joe þurfti að ganga töluvert á eftir
framtíðareiginkonu sinni, það tók samtals
fimm bónorð. Í viðtali við Vogue sagðist Jill
vilja vera alveg viss áður en hún gengi að
eiga Joe. Bæði vegna þess að hún vildi ekki
að synir Joe Biden myndu missa aðra móður,
en einnig vegna þess að hún var ekki viss um
hvað sér þætti um að vera í sviðsljósinu. Á
þessum tíma var Joe Biden öldungadeildar
þingmaður með stóra drauma.
NÁM OG STARF
Jill tók sér eitt ár í frí frá námi til að sinna fyrir
sætustörfum. Hún útskrifaðist með BAgráðu
í ensku árið 1975.
Jill vann sem kennari á meðan hún tók mast
ersgráðu í kennsluréttindum (Masters Of
Education), með áherslu á lestur, árið 1981.
Sama ár fæddi hún dóttur þeirra hjóna. Hún
hætti að vinna í tvö ár til að ala upp börnin
þeirra þrjú. Jill nældi sér svo í mastersgráðu
í ensku árið 1987. Hún sneri aftur í skóla á
sextugsaldri og fékk doktorsgráðu í mennta
vísindum árið 2007.
Jill Biden hefur kennt við hinar ýmsu mennta
stofnanir, meðal annars við almenningsskóla
(e. public schools) í þrettán ár. Í dag er hún
enskuprófessor við almenningsháskóla (e.
community college) í NorðurVirginíu í Banda
ríkjunum. Hún segist ekki ætla að hætta að
kenna þó að eiginmaður hennar verði kjörinn
forseti. Hún ætlar að halda áfram að kenna við
háskólann, alveg eins og hún gerði í þau átta
ár sem hún var varaforsetafrú. Það þýðir að
Jill, enskukennari með fjórar háskólagráður,
gæti orðið fyrsta forsetafrúin sem er prófess
or. Hún yrði þá einnig fyrsta forsetafrúin til að
vera í launaðri vinnu, sem býr í Hvíta húsinu.
Jill sagði eitt sinn: „Að vera kennari er ekki
eitthvað sem ég geri, heldur hver ég er.“
Melania Trump er forsetafrú Bandaríkjanna.
Hún er fyrsta útlenda konan til að gegna því
hlutverki síðan árið 1829.
MENNTUN OG FYRRI STÖRF
Melania Trump fæddist Melanija Knavs í Sló
veníu þann 26. apríl árið 1970.
Melania lagði stund á arkitektúr og hönnun í
háskólanum í Ljubljana í Slóveníu í eitt ár, þar
til hún sagði skilið við nám.
Þegar Melania var sextán ára gömul hóf hún
farsælan feril sem fyrirsæta. Hún breytti eftir
nafni sínu í „Knauss“. Þegar hún var átján ára
gömul komst hún á skrá hjá ítalskri umboðs
skrifstofu og þá byrjaði boltinn að rúlla. Hún
hefur setið fyrir á síðum fjölda frægra tímarita
á borð við Vanity Fair og GQ.
ATHAFNAKONA
Melania flutti til Manhattan árið 1996 og
kynntist núverandi eiginmanni sínum í veislu í
september 1998. Þau gengu í það heilaga árið
2005 og eignuðust soninn Barron ári seinna.
Fyrir átti Donald Trump fjögur uppkomin börn,
þau Donald Trump Jr., Eric Trump, Ivönku
Trump og Tiffany Trump.
Árið 2010 byrjaði Melania með eigin skart
gripalínu, Melania Timepieces and Fashion
Jewelry. Hún byrjaði einnig með húðvörulínu
sem var til sölu í verslunum víða um Banda
ríkin. Eftir að Melania varð forsetafrú sleit hún
sambandi sínu við fyrirtækin líkt og embættið
kveður á um, Í kjölfarið lögðust vörulínurnar af.
Forsetafrúin talar fimm tungumál: slóvensku,
serbnesku, ensku, þýsku og frönsku.
MELANIA TRUMP
JILL BIDEN
MYND/GETTY
MYND/GETTY