Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Síða 14
14 FRÉTTIR 9. OKTÓBER 2020 DV
TRUMP, COVID OG BARÁTTAN
Hver skellurinn á fætur öðrum skekur herbúðir Donalds Trump þessa dagana. Nú
blasir við allt önnur kosningabarátta en hann hafði vonast til að geta háð. Demókrat-
ar geta náð stjórn á Hvíta húsinu og báðum deildum þingsins með þessu áframhaldi.
Donald Trump Bandaríkjaforseti á skrifstofu sinni á hersjúkrahúsinu Walter Reed í útjaðri Washingtonborgar. MYND/GETTY
Þ egar rétt rúmar þrjár vikur eru til kosninga í Bandaríkjunum blasir
við kjósendum þar undar-
legur og gjörbreyttur veru-
leiki frá því fyrir viku síðan.
Um síðustu helgi greindi for-
setinn, Donald Trump, frá því
að hann hefði greinst með CO-
VID-19. Í vikunni gerðust svo
atburðir sem fáa hefði getað
órað fyrir.
Trump lagðist inn á Walter
Reed-hersjúkrahúsið í útjaðri
Washingtonborgar skömmu
síðar. Ekki lauk sögunni þar,
en á Twitter og í sjónvarps-
útsendingu frá forsetaskrif-
stofu sjúkrahússins sagði
Trump meðal annars að hann
hefði það „stórkostlega“, að
honum hefði „ekki liðið bet-
ur í mörg ár“, að ekki væri
ástæða til að óttast COVID, og
að COVID ætti ekki að stjórna
lífi fólks.
Líklegt er talið að rót smits-
ins sem nú gengur manna á
milli innan Hvíta hússins sé
viðburður sem Trump hélt
í Rósagarðinum við Hvíta
húsið þann 26. september. Til-
kynnti Trump þar tilnefningu
hans á Amy Coney Barrett í
sæti hæstaréttardómara sem
losnaði við fráfall Ruth Bader
Ginsburg fyrr í mánuðinum.
Að minnsta kosti tíu hafa
greinst með smit sem voru á
þeim viðburði.
Fyrir utan hinn augljósa
skell að greinast með veiru
sem dregið hefur yfir 200.000
Bandaríkjamenn til dauða
á örfáum mánuðum, þá er
pólitíski skellurinn Trump
þungur. Nánast frá upphafi
faraldursins hefur Trump
gert lítið úr honum og tillög-
um sérfræðinga að viðbrögð-
um, gert lítið úr viðbrögðum
Demókrata í borgum eins og
New York, sem fór mjög illa
úr faraldrinum, og hæðst að
grímunotkun mótframbjóð-
anda síns, Demókratans Joes
Biden.
Skellur á skell ofan
Pólitískur skellur Trumps er
margþættur. Fyrir utan þá
neyðarlegu stöðu að vera nú
smitaður eftir allt sem að ofan
var lýst, þá eru þrír Repúblik-
anar í öldungadeildinni smit-
aðir af COVID. Er nú ljóst að
fresta verður nefndarfundum
í öldungadeildinni sem fara
þurfa fram samkvæmt reglum
um staðfestingu á tilnefndum
dómurum í Hæstarétt. Óvíst
er hvenær nefndin getur kom-
ið saman, en ljóst er að Trump
á mikið undir því að nefndin
klári sitt verk sem allra fyrst.
Það yrði mikill sigur fyrir
Trump að koma Barrett í
dómarasætið fyrir kosningar
enda myndi það bæði styrkja
stöðu hans meðal íhaldssama
og kristilega vængs flokks
hans, og það mun óneitanlega
setja þau málefni sem gerir
Barrett umdeilda aftur á dag-
skrá. Tæknilega hafa Trump
og samflokksmenn hans til 20.
janúar á næsta ári til að klára
staðfestinguna á Barrett,
og fjögur ár í viðbót skyldi
Trump sigra. Þó er ljóst að
þeir munu reyna allt til þess
að klára dæmið fyrir 3. nóv-
ember, kjördag.
Trump sárvantar einmitt
að koma málefnunum á dag-
skrá og færa umræðuna frá
COVID. Sem fyrr segir eru
200.000 látnir og milljónir til-
fella um allt landið. Hagkerfi
landsins hefur fengið mikinn
skell og eftir að myndir birt-
ust af honum sjálfum, bindis-
lausum, bersýnilega veikum,
þá kunna margir Bandaríkja-
menn að spyrja sig: Ef hann
getur ekki verndað sjálfan sig,
hvernig getur hann verndað
mig?
Þriðji pólitíski skellurinn
er að hann er nú fastur inni.
Trump hefur frá upphafi sótt
styrk sinni í fjölmenna fjölda-
fundi. Þar nýtur hann sín ber-
sýnilega best, umkringdur
stuðningsmönnum og í þeim
kringumstæðum hefur hann
vakið hvað mesta athygli. Það
sýnir sig ef til vill best í því að
svo til öll „stóru mál“ Trumps
í kosningabaráttunni 2016,
veggurinn á landamærunum
við Mexíkó, harðari innflytj-
endastefna, að vernda banda-
rísk störf og tryggja þjóðinni
hagstæðari viðskiptasamn-
inga voru öll tilkynnt á þeim
vettvangi.
Kosningabarátta Trumps
fer nú að mestu leyti fram á
Twitter. Trump hefur meira
að segja þurft að draga úr
auglýsingaherferð sinni sök-
um fjárskorts hjá framboðinu.
Forskot Bidens eykst
Trump hefur allt árið átt í
vök að verjast og hefur fylgi
Bidens frá formlegri til-
nefningu hans sem forseta-
frambjóðandi Demókratanna
óslitið mælst hærra en fylgi
Trumps. Trump mátti því alls
ekki við atburðum vikunnar.
En eins og DV fór yfir í síð-
asta blaði þá eru það fyrst og
fremst niðurstöður einstakra
ríkja sem skipta máli. Trump
varð jú forseti árið 2016 með
minnihluta atkvæða. Því er
ekki úr vegi að skoða hvernig
staða Trumps er eftir ríkjum.
Eins og svo oft áður eru
allar líkur á því að endurkjör
Trumps muni standa og falla
með Flórída. Miðað við skoð-
anakannanir sem gerðar voru
eftir ævintýralegar kappræð-
ur kappanna í þarsíðustu viku
er Biden að auka forskot sitt
um allt landið. Eftir stendur
að nánast óhugsandi er að
Trump sigri í kosningunum
án sigurs í Flórída. Það er þó
ekki nóg. Hann þyrfti að snúa
Pennsylvaníu, Georgíu, Ohio,
Michigan og Norður-Karól-
ínu til sín. Það mun reynast
honum þrautin þyngri. Skoð-
anakannanir sýna Biden með
meirihluta í öllum þessum
ríkjum. Ólíkindatólið Trump
er þó líklegt til alls og ljóst að
Repúblikanar hafa ekki, og
munu ekki, gefast upp.
Leggja kapp á að halda
í öldungadeildina
Meirihluti í öldungadeildinni
er jafnframt undir í næstu
kosningum. Benda kannanir
til þess að Repúblikanar gætu
verið að missa meirihluta sinn
í efri deildinni. Fari svo að Re-
públikanar missi Hvíta húsið
og öldungadeildina fengi Biden
nokkuð öflugt veganesti inn í
fyrsta kjörtímabil sitt. Barack
Obama, forveri Trumps í Hvíta
húsinu, fékk sams konar vega-
nesti en þótti hafa nýtt sér
það illa. Síðasti Demókratinn
til að njóta þess munaðar á
undan Obama var Bill Clinton
á sínum fyrstu tveimur árum í
embætti, 1993-1995.
Kosið er um 35 sæti í öld-
ungadeildinni að þessu sinni
og benda skoðanakannanir til
þess að Demókratar eigi vísan
sigur í 14 þeirra og Repúblik-
anar í 18. Fleiri Repúblikanar
eru nú að verja sæti sín en
Demókratar og kosningarnar
því Repúblikana að tapa. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum
eins og þær blasa við í dag
eiga Demókratar 49 sæti vís
og Repúblikanar 48. Of lítill
munur er á frambjóðendum
í Montana, Iowa og Norður-
Karólínu til að hægt sé að spá
fyrir um úrslitin með nokkru
móti. Mega íbúar þessara
þriggja ríkja því búast við að
sjá öll auglýsingapláss í blöð-
um, sjónvarpi og neti undir-
lögð kosningaáróðri. n
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is