Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Side 16
16 EYJAN 9. OKTÓBER 2020 DV
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
SÆNSKA LEIÐIN
Í GEGNUM COVID
Núna þegar sóttvarnaaðgerðir hérlendis
hafa verið hertar er verið að slaka á höft-
um í Svíþjóð. Svíar fóru talsvert aðra og
mildari leið í sóttvörnum en Íslendingar.
Sé hlutfall látinna í Svíþjóð yfirfært á
Ísland myndi það samsvara 207 dauðs-
föllum hérlendis af völdum veirunnar.
Kórónaveiran hefur lagt undir sig heiminn, ef svo má að orði komast.
Ísland vakti athygli í upphaf i
faraldursins fyrir ákveðin og
hörð viðbrögð við faraldrinum
og í byrjun sumars leit út fyrir
að „íslensku viðbrögðin“ hefðu
sigrað faraldurinn og Ísland
varð eins konar fyrirmyndar-
ríki í augum annarra þjóða
sem enn glímdu við vágestinn
COVID-19.
Svíþjóð vakti sömuleiðis at-
hygli fyrir sín viðbrögð. Þau
voru mun vægari en víðast
hvar í heiminum. Afslöppuð
nálgun með tilheyrandi dánar-
tíðni vakti óhug þegar tölur
fóru að berast frá Svíþjóð yfir
fjölda þeirra sem höfðu látið
lífið vegna kórónuveirunnar. Í
kjölfarið voru sænsk yfirvöld
harðlega gagnrýnd.
Síðan leið sumarið. Aftur
glímir heimurinn við veiruna
í því sem hefur verið nefnt
önnur, og jafnvel þriðja, bylgja
faraldursins.
Annað er þó upp á teningun-
um í Svíþjóð. Þar er nú verið
að slaka á sóttvarnaaðgerðum
og ekkert bólar á annarri
bylgjunni. Þetta hefur vakið
mikla athygli. Var sænska
leiðin kannski rétta leiðin eftir
allt saman? DV hafði samband
við Íslending sem býr í Sví-
þjóð og hefur fylgst vel með
þróun mála. Viðkomandi vill
ekki koma fram undir nafni.
Faraldur eftir skíðaferðir
Kórónaveiran er talin hafa
borist til Svíþjóðar í lok janú-
ar þegar sænsk kona sneri til
baka úr ferðalagi til Wuhan í
Kína, en kórónaveiran er talin
eiga uppruna sinn á því svæði.
Konan greindist jákvæð fyrir
veirunni við komuna til lands-
ins en ekki er talið að hún hafi
valdið frekara smiti. Hins
vegar hófst samfélagssmit
ekki fyrr en nokkru síðar
þegar fjöldi Svía sneri til baka
úr ferðalögum, meðal annars
til skíðasvæða í Ölpunum, en
þangað hefur gífurlegur fjöldi
tilfella verið rakinn, bæði á Ís-
landi sem og í Svíþjóð.
„Þetta brast á í Svíþjóð í lok
mars/apríl í vor þegar tug-
þúsundir Svía komu til baka
úr skíðaferðalögum. Við erum
ekki að tala um einhverja tugi
manna sem voru að koma frá
Austurríki eins og með flugi
Icelandair til Keflavíkur. Við
erum að tala um tugi þúsunda
sem voru að koma til baka, en
Svíar fara mikið á skíði,“ segir
viðmælandinn.
Síðan þá hafa tæplega
hundrað þúsund Svíar greinst
með kórónaveiruna og tæp-
lega sex þúsund látist. Flest
voru dauðsföllin í vor og upp-
hafi sumars, eða fljótlega eftir
að faraldurinn skall á Svíum
af fullum þunga. „Þess vegna
byrjaði þetta með svo miklum
látum hér. Þess vegna varð
svona alvarlegt og almennt
smit strax í upphafi. Miðað
við þessar aðstæður þá voru
varnir á til dæmis heimilum
eldri borgara, öldrunarheim-
ilum, dvalarheimilum, svo litl-
ar. Þess vegna varð svo mikið
mannfall í upphafi. Smitið var
svo almennt, menn áttuðu sig
ekki á hvað var að gerast og
þetta gerðist svo hratt.“
Tilmæli fremur en reglur
Svíar fóru aðra leið en Ís-
lendingar þegar kom að því
að marka stefnu og setja á
takmarkanir vegna veirunnar.
Svíþjóð hefur þá sérstöðu að
lögum samkvæmt eru það
heilbrigðisyfirvöld sem leggja
línurnar og marka stefnu í
gegnum faraldurinn og stjórn-
málamenn hafa mun minni
afskipti af aðgerðum heldur
en víða annars staðar í heim-
inum.
Eins hefur í Svíþjóð fremur
verið farin sú leið að beina
leiðbeiningum og tilmælum
til íbúa, frekar en að binda
sóttvarnaráðstafanir í lög og
reglur enda þykir það brjóta
gegn stjórnarskrá landsins
að setja lög sem eigi að hefta
frelsi íbúa til ferðalaga og at-
hafna.
„Svíar eru agaðir. Þeir
fylgja reglum. Reglur um fjar-
lægðartakmarkanir eru virtar
og fólk fer eftir því. Hefð-
bundnir skemmtistaðir eru
ekki opnir. Leikhús eru lokuð
– eða voru það. Nú er verið að
rýmka reglur um sviðslistir
og íþróttir. Það á að heimila í
auknum mæli að hleypa fólki
inn í leikhúsin og á íþrótta-
leiki – þó með ströngum skil-
yrðum.“
Markvissar aðgerðir
Hann segir að Svíar hafi farið
í mjög stöðugar aðgerðir sem
hafi haldist nánast óbreyttar
allt frá því í byrjun apríl.
„Þessar stöðugu, markvissu
og ákveðnu sóttvarnaaðgerðir.
Þær hafa skilað árangri. Land-
inu var aldrei lokað og okkur
voru settar ákveðnar megin-
reglur sem var svo farið eftir.“
Viðmælandi DV segir þetta
töluvert ólíkt þeim aðgerðum
sem farið var í á Íslandi þar
sem harðar takmarkanir voru
settar á landamærin, þeim af-
létt og svo komið á aftur, eða
samkomutakmarkanir sem
voru settar á, hertar, slakað
á og teknar af til skiptis allt
frá því í mars. Slíkt skapi
óvissu og þreytu. Svíar finni
minna fyrir hinni svonefndu
farsóttarþreytu þar sem að-
gerðirnar hafi verið mark-
vissar og stöðugar og nokkuð
fyrirsjáanlegar.
„Ég held að Svíum hafi tek-
ist að halda þessu í skefjum
með innanlandsaga og með
því að fylgja þeim reglum
sem voru settar. Ég held að
það hafi borið árangur líka að
vera ekki að hlaupa fram og til
baka með nýjar reglur í hina
og þessa áttina. Það voru bara
settar takmarkanir í reglur og
þær hafa verið í gildi allt þar
til núna.“
Opin landamæri
Landamæri Svíþjóðar hafa
verið opin í gegnum farald-
urinn og ferðamenn áfram
boðnir velkomnir.
„Það er ekki skimun við
komu og ekki krafa um
sóttkví. Ef Íslendingur er að
koma frá Keflavík til Stokk-
hólms þá er hann ekki krafinn
um vottorð eða skimunarstað-
festingar. Hann bara kemur
hingað inn eins og hver annar
ferðamaður.“
Sóttvarnalæknir, Anders
Tegnell, hefur dregið í efa
gagnsemi harkalegra aðgerða
á borð við útgöngubann eða
lokun landamæra og engar
rannsóknir bendi til þess að
slíkar aðgerðir séu gagnlegar
í baráttunni við veiruna. Þvert
á móti sé það ljóst af sögulegu
samhengi að lokun landamæra
sé með öllu tilgangslaus. Í
besta falli gæti það tafið far-
aldurinn í eina viku auk þess
sem slík lokun færi gegn ráð-
leggingum Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar.
Hann segir að þótt Svíar
ferðist minna innanlands sé
það ekki svo að ekkert líf sé
í Svíþjóð. „Það má segja að
þetta hafi bitnað á ferðaþjón-
ustu innanlands. Menn eru
ekki mikið að fara í lestar-
ferðir út á land, í innanlands-
flug eða annað. En hins vegar
er ekki mikil lokun í gangi.
Hótel eru enn með opið og það
er líf í samfélaginu. Það er
ekki alkul og Svíþjóð er opið
land og það flæðir fólk hingað
inn. Svíar eru að ferðast sjálf-
ir til að mynda til Kanaríeyja
og svona.
Grímunotkun er ekki al-
menn hér. Það er mælst til
þess að þær séu nýttar í al-
menningssamgöngum eða þar
sem fólk er þétt saman. En þú
sérð ekki grímur á götum úti,
eða í verslunum. Sóttvarna-
læknir hefur sagt að fyrir því
séu nokkrar ástæður. Það þýði
ekki að segja ákveðnum hluta
þjóðarinnar að nota grímur en
sleppa öðrum – það eigi jafnt
yfir alla að ganga – og eins
geti menn sett grímurnar vit-
laust á sig og með því skapað
falskt öryggi sem er hættu-
legt.“
Ekki hjarðónæmi
Misskilnings gætir oft í um-
ræðunni um viðbrögð Sví-
þjóðar við kórónaveirufaraldr-
inum. Sumir virðast halda að
til engra aðgerða hafi verið
gripið og markmiðið sé að ná
fram hjarðónæmi. Sóttvarna-
læknir Svíþjóðar, Anders
Tegnell, hefur hafnað þeim
Dauðsföll vegna COVID-19
Látnir Íbúar
Svíþjóð 5.892 10.343.000
Ísland 10 364.134