Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Side 25
H inn 12. febrúar 2010 byrjaði sem hefð-bundinn skóladagur
í háskólanum í Alabama í
Bandaríkjunum. Amy Bishop,
prófessor í taugavísindum,
mætti til vinnu að venju,
kenndi nemendum sínum og
mætti svo á starfsmanna-
fund með kollegum sínum í
líffræðideild skólans.
Amy var 45 ára gömul.
Dökkhærð og fölleit. Hún
þótti afburðagreind og stát-
aði af doktorsprófi í tauga-
vísindum frá hinum virta
Harvard háskóla. Hún átti
eiginmann og fjögur börn og
dreymdi um að verða rithöf-
undur.
Hún sat þögul á fundinum,
sem var nokkuð ólíkt henni.
Hins vegar gaf fas hennar
ekkert til kynna um þann
hrylling sem fram undan var.
Neitað um fastráðningu
Ljóst var að skólaárið 2009-
2010 yrði síðasta ár Bishop
við skólann, þar sem henni
hafði verið neitað um fast-
ráðningu tæpu ári fyrr. Bis-
hop var vonsvikin vegna
þess, en virtist þó taka tíðind-
unum af yfirvegun.
Mikil harka getur verið
í bandaríska vísindasam-
félaginu og eru fastráðningar
við háskóla eftirsóttar, enda
fylgir því mikið starfsöryggi.
Að sama skapi þykir það setja
blett á feril vísindamanns
þegar honum er neitað um
fastráðningu.
Þegar um klukkustund var
liðinn af fundinum lét Amy
til sín taka. Hún stóð á fætur,
greip byssu upp úr handtösku
sinni, miðaði henni á sessu-
naut sinn og tók í gikkinn.
Alls voru tólf starfsmenn líf-
fræðideildarinnar viðstaddir
þennan fund. Bishop skaut
sex þeirra og áttu þrír eftir
að láta lífið af sárum sínum.
Baðst vægðar
Á fundinum var stödd kona að
nafni Debra Moriarity. Henni
og Bishop var ágætlega til
vina. Moriarity leitaði skjóls
undir fundarborðinu eftir að
Bishop hóf skothríðina.
Hún reyndi af veikum mætti
að koma viti fyrir kunningja-
konu sína. Hún greip í fætur
Bishop undan borðinu og baðst
vægðar: „Hugsaðu um dóttur
mína, hugsaðu um barna-
barnið mitt.“
Amy Bishop var þó hvergi
af baki dottin. Hún beindi
byssunni að höfði Moriarity
og enn og aftur greip hún í
gikkinn.
En ekkert gerðist. Byssan
stóð á sér. Þetta veitti Mori-
arity færi á að koma sér út
úr fundarherberginu. Bis-
hop fylgdi í humátt á eftir og
greip ítrekað í gikkinn, án
árangurs.
SAKAMÁL
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
Moriarity tókst að komast
undan Bishop, aftur inn í
fundarherbergið. Þá gafst
loks færi á að hringja eftir
aðstoð.
Hringdi í eiginmanninn
Þegar lögreglu bar að garði
stóð Amy Bishop fyrir utan
skólann. Hún hafði losað sig
við byssuna og hringt í eigin-
mann sinn, sem hún bað um
að sækja sig í vinnuna eins og
hann var vanur. Virtist Bis-
hop illa áttuð og ekki gera sér
grein fyrir gjörðum sínum.
Taldi hún sig meðal annars
ekki hafa verið á staðnum og
neitaði að trúa því að kollegar
hennar væru látnir.
Vegna þessa töldu margir
ljóst að Bishop ætlaði sér að
bera við geðveiki í málsvörn
sinni fyrir dómi, en hún var
ákærð fyrir manndráp af ein-
beittum ásetningi, auk þriggja
morðtilrauna og fór ákæru-
valdið fram á dauðarefsingu.
Fortíðin grafin upp
Skotárásin vakti mikinn óhug.
Hvernig gat þetta gerst? Bis-
hop var 45 ára, fræðimaður
og móðir. Hvað fékk slíka
manneskju til að fremja jafn
svívirðilegan glæp?
Fyrst um sinn töldu margir
að mál Bishop væri sláandi
dæmi um þær hörðu kröfur
sem gerðar eru til vísinda-
manna innan bandaríska há-
skólasamfélagsins og hvað
baráttan fyrir fastráðningu
getur verið krefjandi.
Flestir skiptu þó snarlega
um skoðun eftir að farið var
að grafast fyrir um fortíð
Bishop. Fortíð sem varpaði
ljósi á myrka hlið vísinda-
konunnar.
Banaði bróður sínum
Árið 1986, þegar Amy Bishop
var 21 árs gamall háskóla-
nemi, hringdi móðir hennar
viti sínu fjær í lögregluna.
Amy hafði skotið bróður
sinn til bana í eldhúsi fjöl-
skyldunnar. Móðir hennar
var vitni að harmleiknum og
hefur alla tíð haldið því fram
að um slys hafi verið að ræða.
Amy hafði verið að fikta
með haglabyssu sem faðir
hennar átti og óvart hlaðið
vopnið og kunni ekki að tæma
það aftur. Þegar Amy ætlaði
að sýna bróður sínum, Seth,
vopnið, reið af skot sem hæfði
Seth í magann, og lést hann
úr sárum sínum á eldhúsgólf-
inu fyrir framan systur sína
og móður. Hryllilegt slys var
niðurstaða lögreglunnar.
Eftir skotárásina 2010 var
harmleikurinn frá 1986 rifj-
aður upp og fóru þá að renna
á menn tvær grímur. Ef um
slys var að ræða, hvers vegna
brást Amy við með því að
flýja af vettvangi og reyna að
að ræna bíl af bílasölu í ná-
grenninu – enn vopnuð hagla-
byssunni? Samkvæmt vitnum
kom hún inn á bílasöluna,
með haglabyssuna og heimt-
aði að þeir afhentu henni
bíllykla. Eftir að lögreglu
bar að garði þurftu lögreglu-
menn ítrekað að skipa henni
að leggja frá sér vopnið,
áður en hún varð við því. Við
skoðun á vopninu kom í ljós
að eftir að Amy skaut bróður
sinn, hlóð hún byssuna aftur
og auk þess fannst aukaskot í
jakkavasanum hennar.
Rörasprengja
Árið 1993 hafði Bishop einn-
ig verið yfirheyrð vegna
rörasprengju sem var send á
heimili leiðbeinanda hennar í
doktorsnáminu, en þau höfðu
átt í útistöðum. Vitni höfðu
heyrt Bishop og eiginmann
hennar ræða um hvernig
hægt væri að útbúa röra-
sprengju, auk þess sem vitað
var að Bishop hafði aðgang að
efni sem er notað til að búa til
sprengiefni. Ekki voru næg
sönnunargögn til að ákæra
Amy og er málið óupplýst enn
í dag.
Ákæruvaldið hóf aftur skoð-
un á andláti bróður Bishop,
eftir að hún var handtekin
árið 2010. Kom þá á daginn að
lögregluskýrslur hefðu verið
ófullnægjandi og ákæruvaldið
aldrei fengið allar upplýsingar
um meint slys, upplýsingar
sem hefðu gefið fullt tilefni til
að ákæra Amy Bishop fyrir
að hafa banað bróður sínum
af ásetningi. Árið 2010 var of
seint að gefa út slíka ákæru,
þar sem brotið var fyrnt.
Rannsókn á andláti bróður
Amyar hefur verið harðlega
gagnrýnd undanfarin ár. Er
talið að ef rétt hefði verið
staðið að verki, hefði Amy Bis-
hop verið ákærð fyrir morð
þegar hún var 21 árs gömul.
Þá hefði hún aldrei fengið
vinnu við háskólann í Ala-
bama og hefði aldrei mætt
á þennan örlagafulla starfs-
mannafund þann 12. febrúar
og þeir þrír kollegar hannar
sem hún myrti væru enn á
lífi. n
STARFSMANNAFUNDURINN
BREYTTIST Í MARTRÖÐ
Amy Bishop var 45 ára fjögurra barna móðir og háskólaprófessor í
taugavísindum. Engan grunaði að þegar henni var neitað um fast-
ráðningu myndi það hafa banvænar afleiðingar í för með sér.
Amy játaði brot sín til að sleppa við dauðarefsingu.
Amy og eiginmaður hennar, James Anderson. MYNDIR/YOUTUBE.Seth og Amy voru náin systkini, þar til Amy skaut hann til bana.
FÓKUS 25DV 9. OKTÓBER 2020