Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Page 33
Matseðill Geirs Gunnars Morgunmatur Hafragrautur úr tröllahöfrum, chia-fræjum, möndlum, kókos- flögum, niðurskornu epli og kanil. Þessi klikkar aldrei og hefur haldið mér gangandi frá því að ég man eftir mér. Millimál nr. 1 Lífkornabrauðsneið eða hrökk- brauð með smjöri, osti og gúrk- um. Hálf appelsína og eitt egg. Þetta er svona týpískt. Hádegismatur Ýmis eldaður matur á vinnu- stöðum mínum, annars afgangar að heiman. Millimál nr. 2 Lúkufylli af möndlum, epli og ein teskeið hnetusmjör. Kvöldmatur Heimilismatur. Síðasta kvöld- máltíðin mín var soðin ýsa með soðnu grænmeti og ég bætti við súrkálinu mínu og nokkrum tóm- ötum. Í eftirrétt er alltaf eitt gott epli. Borða ekkert eftir klukkan 19 og aðhyllist 12:12 föstu sex daga vikunnar. Það er að segja ég borða ekkert í tólf klukku- stundir, frá sjö á kvöldin til sjö á morgnana, en borða reglulega hinar tólf klukkustundirnar. Það er hægt er að fylgjast með Geir Gunnari á Facebook og Insta gram undir „Heilsugeirinn“. Gúllassúpa lögfræðingsins (konunnar) Nú er haustið komið og við erum þó nokkuð með súpur og matarmikil gúllassúpa er eitthvað sem klikkar ekki núna þegar farið er að kólna í veðri. Ekki skemmir fyrir að dætur mínar elska þessa súpu. 500 g nautagúllas 2-3 rauðlaukar 2 msk. ólífuolía 2 nautateningar 1 grænmetisteningur 2 dósir hakkaðir tómatar 3 tsk. tómatkraftur/puré 2 lítrar vatn 1 -2 tsk. paprikuduft 6 hvítlauksrif 6-8 kartöflur, skornar 4 gulrætur, skornar 1 paprika 1 peli rjómi Salt, pipar og timían Fersk steinselja Sýrður rjómi Hitið olíu og snöggsteikið lauk og kjöt. Bætið þá hvítlauk, papriku og tómatkrafti út í og eldið í 10 mín. Bætið síðan vatni út í ásamt tómöt- um, krafti, paprikudufti, kartöflum og gulrótum og látið sjóða í a.m.k. 1 klst. Hellið rjómanum saman við og kryddið með salti, pipar og timían. Látið sjóða í aðra klst. og lengur ef tími gefst. Það ætti eiginlega að vera sér töluliður, en á þessum tveimur tímum sem súpan fær að malla er virkilega mikilvægt að smakka til og krydda og smakka svo meira. Jafnvel að bæta krafti út í ef með þarf. Berið fram toppað með sýrðum rjóma og steinselju. Hugmynd að framreiðslu Borið fram með nýbökuðu brauði til að dýfa í súpuna. Rauðvín smakkast alveg sérlega vel með þessari súpu fyrir þá sem það þiggja. Geir Gunnar fær sér að minnsta kosti tvö til þrjú epli á dag. MYND/STEFÁN G eir Gunnar Markússon starfar sem næringar-fræðingur á Reykja- lundi. Hann er ritstjóri heima- síðu Náttúrulækningafélags Íslands, nlfi.is, og skrifar mikið um hin ýmsu heilsu- tengdu málefni. Hann sinnir einnig næringar- og heilsuráð- gjöf í formi fyrirlestra í fyrir- tækjum, félagasamtökum og íþróttafélögum, en þó lítið undanfarna mánuði vegna COVID-19. Við fengum Geir Gunnar til að fara yfir venjulegan dag í lífi sínu. „Flesta virka daga vakna ég um klukkan sex og útbý minn daglega morgun- mat, sem ég hef gert síðan ég man eftir mér. Kem mér svo hjólandi í vinnuna og seinni- partinn eftir vinnu næ ég í dæturnar í skóla, skutlast í frístundir, eltist við dæturnar heima, elda mat og kem dætr- unum niður. Kvöldin eru róleg og oftast er ég dauðþreyttur eftir langa daga. Ég reyni að vera kominn í háttinn fyrir klukkan 22.30 svo ég fái nægi- legan svefn. Æfingar síðustu árin hafa aðallega verið í formi 20-30 kílómetra hjólreiðatúra til og frá vinnu. Um helgar hleyp ég, eða hjóla, lengri túra og hef sérlega gaman af því að hlaupa tvær til þrjár ferðir á Helgafellið í Hafnarfirði. Ef tími gefst til næ ég einni til tveimur styrktar æfingum á viku í vinnunni, eða á kvöldin ef ég hef orku, sem er sjaldn- ast,“ segir hann. Alæta með áherslu á „flexitarian“ Geir Gunnar segist ekki fylgja neinu ákveðnu matar æði. „En ætli mitt mataræði sé ekki mest í ætt við „flexi tarian“ mataræði þar sem áherslan er á jurtafæði, en dýraafurðir eru takmarkaðar og þá sér- staklega rautt kjöt. Af kjötaf- urðum er meira neytt af fiski, alifuglakjöti og eggjum. Mikið af próteinum kemur úr hnetum og baunum. Þetta mataræði á einnig að stuðla að meiri sjálf- bærni og umhverfis vernd og rímar það vel við mig, sem er mikill umhverfisverndar- sinni,“ segir hann. „En ég er enginn 100 pró- sent „flexitarianisti“ og fæði mitt er alætufæði. Sem nær- ingarfræðingur reyni ég að borða sem fjölbreyttast, fiskur tvisvar í viku, borða reglulega, mikið af græn- meti og ávöxtum, að minnsta kosti tvö til þrjú epli á dag og drekka aðallega vatn. Allt er þetta nú mjög týpískt en þetta þrælvirkar fyrir mig og þetta gefur mér þá orku sem ég þarf yfir daginn. Minn helsti löstur í mataræði væri of mikil kaffidrykkja.“ Samdi við konuna Aðspurður hvort hann verji miklum tíma í eldhúsinu og sé góður kokkur segir Geir Gunnar: „Ég veit ekki hvort ég á að segja þetta, en jú, ég MATARMIKIL GÚLLASSÚPA Á KÖLDU HAUSTKVÖLDI Næringarfræðingnum Geir Gunnari er mjög umhugað um heilsu. Hann fylgir fjölbreyttu mataræði með áherslu á svokallað „flexi­ tarian“ mataræði. Hvað ætli hann borði á venjulegum degi? Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is læt það flakka. Ég var orðinn svo þreyttur á spurningunni: „Hvað eigum við að hafa í matinn?“ að ég samdi við kon- una fyrir nokkrum mánuðum um að við myndum skiptast á, á vikufresti, að sjá um mat- inn og matarinnkaupin. Þetta hefur gengið vonum framar og ég er hættur að fá þessa leiðindaspurningu. Ég hvet fleiri pör til að prófa þetta, það einfaldar lífið og útrýmir leiðinlegustu spurningu allra tíma,“ segir hann. „Almennt er ég nú ekki mik- ill matgæðingur eða kokkur og konan segir stundum í gríni að ég gæti bitið gras og skolað því niður með lýsi, ef það gæfi mér öll næringarefni sem ég þarf.“ n MATUR 33DV 9.OKTÓBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.