Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2020, Page 38
38 SPORT 433 9. OKTÓBER 2020 DV
MIKIÐ GENGIÐ Á Í LÍFI KJARTANS
HENRYS UNDANFARNAR VIKUR
Viðtal sem Kjartan Henry Finnbogason fór í við danska fjölmiðla fór illa í forráðamenn
félagsins, íslenski sóknarmaðurinn er harður í horn að taka innan sem utan vallar og
segir hlutina umbúðalaust. Eftir farsælan feril í atvinnumennsku styttist í heimkomu.
Hetja Vejle fyrir nokkrum vikum, en Kjartani var síðan hálfpartinn sparkað út skömmu síðar. MYND/GETTY
Hörður Snævar
Jónsson
hoddi@433.is
Það gekk ýmislegt á í lífi Kjartans Henrys Finnbogasonar í liðinni
viku; þessi 34 ára gamli at
vinnumaður í knattspyrnu
rifti samningi sínum við Vejle
í Danmörku seint á mánudags
kvöld og degi síðar gekk hann
í raðir Horsens skammt frá.
Kjartan þekkir hverja þúfu
hjá Horsens, eftir farsæla
dvöl þar frá 2014 til 2018. Mik
il læti voru á bak við tjöldin
þegar Kjartan yfirgaf Vejle,
en hann treystir sér ekki
enn til að fara út í smáatriði.
Framkoma forráðamanna
Vejle vekur mikla furðu meðal
stuðningsmanna félagsins,
framherjinn hafði leikið með
félaginu í eitt og hálft ár og
raðað inn mörkum. Það liggur
því í augum uppi að eitthvað
annað en frammistaða Kjart
ans innan vallar var ástæða
þess að félagið ákvað allt í
einu að hætta að spila honum.
„Það er ýmislegt búið að
ganga á, ég ætla samt að
sleppa því að fara út í smáatr
iði á þessu augnabliki. Stað
reyndin er hins vegar sú að ég
kom til Vejle þegar liðið var
nánast fallið úr dönsku úrvals
deildinni. Ég átti að koma og
reyna að hjálpa liðinu að halda
sér uppi, en það tókst ekki.
Ég tók ákvörðun um að fram
lengja samninginn og hjálpa
liðinu að komast upp, það
tókst á endanum eftir langt og
strangt kórónaveirutímabil.
Ég endaði sem markahæsti
leikmaður liðsins og allt gekk
í blóma, síðan æxluðust hlut
irnir þannig að minna krafta
var ekki óskað. Það var ýmis
legt sem gekk á sem ég get
ekki farið út í,“ sagði Kjartan
þegar hann var spurður út í
þennan óvænta viðskilnað.
Ekki í þessu til
að eignast vini
Eftir fyrsta leik tímabilsins
fyrir örfáum vikum fór Kjart
an Henry í viðtal við danska
fjölmiðla, þeir furðuðu sig á
því að hann hefði byrjað sem
varamaður. Íslenski framherj
inn sagði hlutina umbúðalaust:
„Þetta er ótrúlega flókið, eig
andi Vejle er ekki danskur, það
er ekki algengt í Danmörku.
Það þótti ekki heillandi að
vera með 34 ára gamlan fram
herja, sem er engin söluvara
lengur. Það var eitthvað annað
en frammistaðan á vellinum
sem hafði áhrif á spilatíma.
Ég er eins og ég er, ég er ekki í
þessu til að eignast vini, heldur
til að ná árangri innan vallar.
Þegar ég er spurður þá svara
ég á hreinskilinn hátt, ég fór í
viðtal eftir fyrsta leikinn þar
sem ég var spurður út í spila
tímann og var heiðarlegur.
Það var ekki tekið vel í það hjá
þeim sem stjórna hjá félaginu.“
Eftir viðtalið sem Kjartan
fór í fann hann að hann átti
enga leið til baka, hann segir
ýmislegt hafa gengið á bak við
tjöldin, sem ekki þoli dagsljós
ið alveg strax. „Ég fann það að
þetta var búið eftir það viðtal,
það var ýmislegt sem gerðist
eftir það sem ég get farið út
í síðar. Ég veit að það er öllu
snarað yfir á dönsku í dag, ég
verð því að passa mig á hvað
ég segi.“
Eiginkonan með í för
þegar samningi var rift
Helga Björnsdóttir, eiginkona
Kjartans, var með í för þegar
hann hélt upp á skrifstofu
Vejle seint á mánudagskvöld
til að rifta samningi sínum.
Helga er menntaður lögfræð
ingur og gat því séð til þess
að allt væri eftir laganna bók
staf. Degi síðar skrifaði hann
undir hjá Horsens, sem líkt
og Vejle leikur í efstu deild.
„Það var ýmislegt í boði en
þetta gerðist allt mjög fljótt,
ég fór niður á völl hjá Vejle
23:30 á mánudagskvöld, með
eiginkonu minni sem er lög
fræðingur, til þess að skrifa
undir riftun á samningi, degi
síðar skrifaði ég undir hjá
Horsens og fór á mína fyrstu
æfingu. Það kom til greina
að koma heim til Íslands en
ég var ekki tilbúinn til þess
núna. Ég skoraði mikið á síð
ustu leiktíð í 1. deildinni og ef
maður getur skorað þar, þá á
maður að geta skorað í efstu
deild. Mér finnst ég eiga það
skilið eftir söguna hérna og
það sem hefur gengið á, að
gefa allt sem ég á í eitt tíma
bil til viðbótar. Það var fullt
af möguleikum, en ekkert lið
frá Íslandi sem hafði samband
við mig.“
Heimkoma á næsta ári
Kjartan á tvö börn sem
þekkja lítið annað en að búa í
Danmörku, hugurinn leitar þó
heim og gæti Kjartan spilað
hér á landi um mitt næsta
sumar. Kjartan hefur alla tíð
leikið með KR hér á landi og
sögur um að hann snúi heim
í Vesturbæinn heyrast reglu
lega. „Strákurinn okkar sem
er fjögurra ára er fæddur
hérna í Danmörku, dóttir mín
er 9 ára og hefur verið hér í
fimm ár og er nánast dönsk.
Við erum alltaf Íslendingar
og komum heim, konan mín
er komin í flotta vinnu. Það
kæmi mér ekki á óvart ef
heimkoman yrði næsti sumar
þegar samningurinn er frá.
Ég átti frábær ár með Hor
sens síðast, við fórum úr því
að verða gjaldþrota yfir í það
að verða flottur klúbbur í úr
valsdeild. Stærsta ástæða
þess að ég valdi að koma
hingað aftur er að ég er
fimmtán mínútur að keyra á
æfingu. Mér líður eins og ég
sé að loka hringnum, ég kom
hingað frá KR 2014 og er núna
að loka hringnum erlendis aft
ur hérna. Mér finnst eitthvað
fallegt við það,“ sagði þessi
öflugi framherji að lokum. n
Ég veit að það
eru öllu snarað
yfir á dönsku í
dag, ég verð því
að passa mig á
hvað ég segi.