Fréttablaðið - 10.10.2020, Side 4
COVID-19 Í fyrstu bylgju kóróna
veirufaraldursins dró úr aðsókn til
sálfræðinga enda héldu sig f lestir
innandyra og líðan fólks ekki mark
vert verri. Nú er staðan önnur.
„Aðsóknin til sálfræðinga hefur
aukist og má segja að það sé komið
svolítið annað hljóð í strokkinn.
Fólk hefur aðlagast ógninni og er
jafnvel minna kvíðið en það var
fyrst sem merkja má á því að fólk er
meira á ferðinni en fyrst var,“ segir
Sóley Dröfn Davíðsdóttir, forstöðu
sálfræðingur á Kvíðameðferðar
stöðinni. Slíkt gerist oft þegar fólk
er útsett fyrir langvinna ógn.
„Líkt og á stríðstímum, fólk verð
ur að halda áfram með sitt líf.“
Sóley segir fólk vera farið að átta
sig á því að faraldurinn sé ástand
sem muni líklega vara talsvert lengi
og þá reyni á úthaldið.
Aðspurð segir hún að fólk á öllum
aldri leiti sér aðstoðar en fæstir
komi vegna faraldursins sem slíks.
„Þó er vaxandi hópur sem þorir
ekki út úr húsi vegna ótta sem er
áhyggjuefni, sérstaklega í ljósi þess
að veiran virðist ætla að vera meðal
vor í talsvert langan tíma. Þeir sem
voru kvíðnir og áhyggjufullir fyrir
eru auðvitað viðkvæmari fyrir
nú, eins þeir sem glímt hafa við
depurð. Þó sjáum við lítið af því að
fólk sé óvinnufært vegna óttans við
kórónaveiruna, en þá á það við um
einhverja sem eiga erfiðara með að
vinna heiman frá sér.“
Störf sálfræðinga eru erfiðari
þessa dagana að sögn Sóleyjar.
Kvíðameðferð gengur út á að láta
fólk horfast í augu við óttann án
varúðarráðstafana. Það gengur ekki
þegar raunveruleg ógn á í hlut.
„Þá þarf að feta ákveðinn milli
veg, hvetja fólk til að fylgja leið
beiningum um sóttvarnir en ganga
ekki mun lengra en svo, þannig
að það komi verulega niður á lífs
gæðum. Þá er mikilvægur liður í
þunglyndismeðferð að hvetja fólk
til aukins félagslífs og hreyfingar
sem reynist erfiðara nú. Því þarf
að finna lausnir innan þess ramma
sem okkur er settur.“
Fólk á í vaxandi mæli erfitt með
að f jármagna sálfræðimeðferð
vegna þrenginga. Sóley segir það
vonbrigði að ekki hafi verið gert ráð
fyrir niðurgreiðslu á sálfræðiþjón
ustu í fjármálaáætlun, þar sem yfir
gnæfandi meirihluti Alþingis sam
þykkti í vor að fella þjónustu undir
greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga.
„Vissulega tekur tíma að ganga
frá samningum um með hvaða
hætti niðurgreiðslunni skuli háttað
en brýnt er að f lýta samningum
sem mest í ljósi ástandsins.“
Sóley hvetur fólk með kvíða til að
viðhalda daglegri rútínu eins vel og
hægt er, hafa sig til þótt einhverjir
vinni heima, vera duglegt að halda
sambandi við vini og ættingja yfir
síma og net og nýta sér aðstæður til
að rækta ný áhugamál.
„Svo eru þessar aðstæður kjörið
tækifæri til að æfa sig í því að þola
við í óvissunni, sem lífinu óhjá
kvæmilega fylgir. Hvernig væri lífið
ef allri óvissu væri eytt og við viss
um alltaf nákvæmlega hvað gerist
næst? Sennilega ekki mjög spenn
andi enda gefur það lífinu líka lit að
allt getur gerst og lífið getur komið
skemmtilega á óvart.“
ingunnlara@frettabladid.is
Líkt og á stríðs-
tímum, fólk verður
að halda áfram með sitt líf.
Sóley Dröfn Davíðs-
dóttir, forstöðu
sálfræðingur
TAKMARKAÐ MAGN
BÍLA Í BOÐI
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
JEEP ® CHEROKEE
Helsti staðalbúnaður Jeep® Cherokee Longitude Luxury:
• 2.2 lítra 195 hestafla díselvél, 9 gíra sjálfskipting
• Jeep Active Drive I Select Terrain
með 4 drifstillingum,
• Rafdrifin snertilaus opnun á afturhlera
• Leðurinnrétting
• 8,4” upplýsinga- og snertiskjár
• Íslenskt leiðsögukerfi
• Bakkmyndavél með bílastæðaaðstoð
• Hágæða Alpine hljómflutningskerfi með
bassaboxi
• Apple & Android Car Play
• Bluetooth til að streyma tónlist og síma
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
FRÁBÆRT VERÐ: 7.990.000 KR.
ÖFLUG DÍSELVÉL - 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING
SPARNEYTINN - HLAÐINN LÚXUSBÚNAÐI
915
sæta nú einangrun á Íslandi
vegna COVID-19.
6
milljörðum verður varið í ný
störf hjá Orkuveitunni.
30
þúsund króna sekt mun bíða
þeirra sem svindla sér um borð í
strætó.
20
þúsund tonn verður árleg fram-
leiðslugeta nýrrar landeldis-
stöðvar í Þorlákshöfn.
67
prósent Reykvíkinga eru já-
kvæð gagnvart göngugötum.
Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra
sagðist í
aðsendri
grein sinni í
Fréttablaðinu
stefna að
því að leggja
fram frumvörp
um breytingar á
stjórnarskránni í nóvember.
Katrín telur að í samfélaginu
sé ríkur vilji til að fjallað sé um
auðlindir í stjórnarskránni.
Gylfi Þór Sigurðsson
fótboltamaður
skoraði bæði
mörk íslenska
karlalands
liðsins í
knattspyrnu
í 21 sigri gegn
Rúmenum á
Laugardalsvelli.
Þetta var í fjórða sinn sem Gylfi
skorar tvö mörk fyrir Ísland í
sama leik. Sigurinn þýðir að
Íslendingar mæta Ungverjum í
hreinum úrslitaleik um sæti á
Evrópumeistaramótinu þann
12. nóvember.
Agnes M. Sigurðardóttir
biskup Íslands
sagðist í opnu
bréfi til presta,
djákna,
organista og
formanna
sóknarnefnda
og útfararstjóra,
mælast til þess
að opið helgihald muni falla
niður í október og að kirkju
starf eigi að taka mið af hertum
sóttvarna aðgerðum stjórn
valda. Í stað hefðbundins helgi
halds hvetur hún kirkjur til
þess að streyma messuhaldinu í
gegnum netið.
Þrjú í fréttum
Ráðherra,
fótboltamaður
og biskup
Kvíði fólks í þriðju bylgjunni
minnir um margt á stríðstíma
Kvíði í þriðju bylgju kórónaveirufaraldursins er talsvert öðruvísi en í fyrstu bylgjunni samkvæmt Sól-
eyju Dröfn Davíðsdóttur, forstöðusálfræðingi á Kvíðameðferðarstöðinni. Þyngra hljóð er í fólki og meiri
depurð og uggur í garð vetrarins en áður. Vaxandi hópur fólks þorir ekki út úr húsi af ótta við veiruna.
Sóley segir það algengt að fólk verði minna kvíðið þegar það aðlagast langvarandi ógn eins og nú er. MYND/STEFÁN
TÖLUR VIKUNNAR 04.10.2020 TIL 10.10.2020
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð