Fréttablaðið - 10.10.2020, Page 12
Ódýrt
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Mexíkósk
Nýtt!
1099 kr.stk.
Krónu súpa, 1 lítri, blómkáls/aspas
Mmm ...
Súpur fyrir alla
fjölskylduna!
1589 kr.stk.
Krónu súpa, 1 lítri, kjúklinga/kjötÓd
ýrt
RÚS S L AND Utanríkisráðherrar
Armeníu, Aserbaísjan og Rúss-
lands funduðu í Moskvu í gær til
að freista þess að koma á friði á
milli Armena og Asera. Minnst
380 manns hafa látist í átökum í
Nagornó-Karabak-héraði síðustu
vikur og hafa þúsundir flúið heimili
sín. Þá herma óstaðfestir heimildir
að yfir 50 óbreyttir borgarar, þar á
meðal börn, hafi fallið í átökunum
Héraðið tilheyrir Aserbaísjan en
hefur í áratugi verið undir stjórn
Armena. Mikill ótti ríkir um að
átökin breiðist út og hafa Íranir ótt-
ast áhrif þess að Tyrkir hafi fengið
vígamenn frá Sýrlandi til að berjast
við hlið Asera. Frakkar og Banda-
ríkjamenn hafa hvatt ríkin til frið-
ar. „Við stefnum á að binda enda á
átökin í kvöld eða á morgun,“ sagði
Emmanuel Macron Frakklandsfor-
seti við AFP í gær.
Ilham Aliyev, forseti Aserbaísjan,
hét því að átökin myndu halda
áfram þangað til héraðið væri aftur
í höndum Asera. Staða Armeníu
er veik þar sem Rússar, sem eru
með þeim í bandalagi, hafa ekki
verið reiðubúnir að koma þeim til
aðstoðar með beinum hætti. Aliyev
birti yfirlýsingu á Twitter um þorp
sem að Aserar eiga að hafa náð á sitt
vald af Armenum og fagnaði þeirri
niðurstöðu ákaft. Þær upplýsingar
höfðu ekki verið staðfestar. „Við
gefum Armenum tækifæri til að
ljúka þessu friðsamlega. Þetta
er þeirra síðasta tækifæri,“ sagði
Aliyev við Al Jazeera. „Við munum
með einum eða öðrum hætti ná
tökum á okkar landi.“
Í umfjöllun Al Jazeera um fund-
inn kom fram að skipuleggjendur
hans vonuðust til að í versta falli
myndu Armenar og Aserar fallast
á tímabundið vopnahlé til þess að
skiptast á hermönnum sem teknir
hefðu verið höndum sem og að gera
stríðandi fylkingum kleyft að sækja
lík þeirra sem fallið hafa í átök-
unum. – ab
Funduðu um
frið í Moskvu
Ilham Aliyev forseti Asera. MYND/EPA
Þúsundir hafa verið teknar af lífi án dóms og laga í eiturlyfjastríði Duterte forseta síðan 2016. MYND/GETTY
Enginn vafi að þrýstingurinn
á Duterte hafi borið árangur
Utanríkisráðherra segist sannfærður um að samstarf með stjórnvöldum á Filippseyjum sé rétta leiðin til
að koma á úrbótum fyrir almenna borgara og stöðva frekari blóðsúthellingar. Einnig að þrýstingur og
málafylgja Íslendinga hafi skipt sköpum til að fá Duterte að samningaborði Sameinuðu þjóðanna.
Standi stjórnvöld á
Filippseyjum ekki
við sín fyrirheit mun mann-
réttindafulltrúinn væntan-
lega upplýsa mannréttinda-
ráðið um það.
Guðlaugur Þór
Þórðarson, utan-
ríkisráðherra
FILIPPSEYJAR Guðlaugur Þór Þórð-
arson utanríkisráðherra segir engan
vafa leika á að þrýstingur alþjóða-
samfélagsins hafi borið árangur
á Filippseyjum. Önnur ályktun
Íslands var samþykkt í mannrétt-
indaráði Sameinuðu þjóðanna í
vikunni en nú í samstarfi við stjórn-
völd í Maníla. Í júní var birt skýrsla
Sameinuðu þjóðanna um „stríðið
gegn fíkniefnum“ þar sem kom fram
að þúsundir hefðu verið tekin af lífi
án dóms og laga og án ábyrgðar.
„Sú ályktun sem Ísland lagði
fram í fyrra sendi skýr skilaboð og
var mikilvægt skref í að tryggja að
stjórnvöld á Filippseyjum fyndu
fyrir þrýstingi alþjóðasamfélags-
ins,“ segir Guðlaugur.
„Skýrslan sem útbúin var af
hálfu skrifstofu mannréttindafull-
trúa Sameinuðu þjóðanna og lögð
fram í mannréttindaráðinu í sumar
var bein afleiðing af fyrri ályktun
okkar. Staðfesti skýrslan þannig
málflutning þeirra sem lýst höfðu
áhyggjum af alvarlegum mannrétt-
indabrotum í hinu umdeilda „stríði
gegn eiturlyfjum“ á Filippseyjum.“
Segir Guðlaugur að hin nýja
ályktun staðfesti að málafylgja
Íslands hafi haft þau áhrif að Fil-
ippseyjar hafi loks fengist að samn-
ingaborðinu.
Undirstrikar hann þó að langur
vegur sé að bættri stöðu mannrétt-
inda í landinu. „En það er okkar trú
að samstarf við ríki um úrbætur í
mannréttindamálum sé líklegast
til árangurs – sé umrætt ríki tilbúið
í slíkt samstarf.“
Amnesty, Mannréttindavaktin
og f leiri hafa gagnrýnt Sameinuðu
þjóðirnar fyrir að ganga ekki nógu
langt. Rachel Chhoa-Howard hjá
Amnesty, hefur bent á Camilo Cas-
colan, „arkítekt eiturlyfjastríðsins“,
hafi nýlega verið gerður að ríkislög-
reglustjóra og orðræða Durte te sé
enn mjög hörð. „Mitt starf er að
hræða fólk, ógna fólki og drepa
fólk,“ sagði Duterte í ræðu í mars.
Þá hafi fjölmiðlakonan Maria Ressa
verið æmd fyrir meiðyrði og ABS-
CBN sjónvarpsstöðinni lokað.
„Við vitum að ekki eru allir sáttir
við að ekki skuli hafi verið gengið
lengra og skil ég það vel, með hlið-
sjón af þeim mannréttindabrotum
sem framin hafa verið,“ segir Guð-
laugur. „Hitt liggur í augum uppi
að ef samstarf við Filippseyjar um
úrbætur í mannréttindamálum, þar
sem Sameinuðu þjóðirnar fá skil-
greint hlutverk, á að takast verður
að nálgast verkefnið af raunsæi.
Þess vegna skiptir miklu máli að
frekara samstarf Filippseyja við
Sameinuðu þjóðirnar hefur nú
komist á.“
Segist hann sannfærður um að
þessi leið sé hin rétta og geti leitt til
úrbóta fyrir venjulegt fólk.
Með ályktuninni hafa stjórnvöld í
Maníla skuldbundið sig til að vinna
með mannréttindafulltrúanum að
endurbótum.
Verkefnið sé til tveggja ára og feli
í sér aðgerðir gegn refsileysi, gagna-
söfnun um lögregluna, styrkingu
frjálsra félagasamtaka, aðlögun
löggjafar að hryðjuverkum og að
aðgerðir gegn eiturlyfjum muni
taka mið af mannréttindum.
„Standi stjórnvöld á Filippseyjum
ekki við sín fyrirheit mun mann-
réttindafulltrúinn væntanlega upp-
lýsa mannréttindaráðið um það. .“
Aðspurður um hvort hægt verði
að draga Duterte til ábyrgðar segir
Guðlaugur að það sé á ábyrgð hvers
ríkis að tryggja að farið sé að lögum
og alþjóðaskuldbindingum.
„Ef stofnanir laga og réttar í við-
komandi ríkjum bregðast er það
aftur á móti skylda alþjóðasam-
félagsins að draga þá til ábyrgðar
sem sök eiga á alvarlegum mann-
réttindabrotum. Við höfum hins
vegar lagt upp með að reyna að bæta
stöðuna núna og reyna þannig að
koma í veg fyrir frekari blóðsúthell-
ingar án dóms og laga,“ segir hann.
kristinnhaukur@frettabladid.is
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð