Fréttablaðið - 10.10.2020, Blaðsíða 18
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands
liðið í knattspyrnu heldur áfram í
vegferð sinni að tryggja sér sæti á
EM 2022 sem haldið verður í Eng
landi, þegar liðið fer í annan topp
slag við Svíþjóð í lok þessa mánaðar.
Leikurinn fer fram á Gamla Ullevi
leikvanginum í Gautaborg 27. októ
ber. Undirbúningur íslenska liðsins
verður sérstakur í ljósi þess æfinga
og keppnisbanns sem nú er í gildi á
Íslandi vegna COVID19.
Jón Þór Hauksson, þjálfari
Íslands, valdi í gær hópinn fyrir
leikinn gegn Svíum. Jón Þór segir
að aðstæður sem honum eru færðar
í hendur til þess að búa liðið undir
jafn mikilvægan leik og fram undan
er, séu vissulega ekki ákjósanlegar.
Hann segir leikmenn íslenska liðs
ins hins vegar blessunarlega búa að
reynslu af því að takast á við að vera
í æfinga og keppnisbanni frá því
síðasta vor. Þá sé hugarfar gott og
aginn það mikill að hann hafi ekki
áhyggjur af líkamlegu og andlegu
formi leikmanna. Hins vegar muni
leikformið ekki vera upp á það besta
hjá þeim leikmönnum sem spila hér
heima, sem sé bagalegt.
„Þeir leikmenn sem spila með
íslenskum liðum munu koma
saman til æfinga 20. október, ef
núverandi tímarammi í reglum um
sóttvarnir mun standast og aðstæð
ur breytast ekki. Við munum ekki
kalla þá leikmenn sem eru að spila
úti til Íslands, heldur mun hópur
inn sameinast í Gautaborg fjórum
dögum fyrir leik og hefja undir
búninginn saman þar. Þetta er besti
undirbúningurinn sem í boði er við
núverandi aðstæður að okkar mati,“
segir Jón Þór, en þeir leikmenn sem
spila hér heima hafa, þegar kemur
að leiknum við Svía, þá ekki spilað
leik í tæpan mánuð og ekki æft með
liðum sínum í rúmar þrjár vikur.
„Auðvitað er þetta ekki drauma
undirbúningur en við verðum bara
að tækla stöðuna eins og hún er og
undirbúa okkur eins vel og mögu
legt er. Það jákvæða við þetta er að
leikmennirnir hér heima eru í góðu
leikformi eins og staðan er núna og
þá eru félögin farin að GPSmæla
æfingar sínar, sem gefur mér mögu
leika á að sjá hvernig líkamlegt form
þeirra er. Þá eru leikmenn komnir
með reynslu í því að halda sér í sínu
besta líkamlega formi með einstakl
ingsæfingum, eftir samkomubann
ið sem sett var á í upphafi sumars.
Þá er hugarfar leikmanna liðsins
það sterkt að ég hef ekki áhyggjur
af andlegu hliðinni hjá þeim.“
Liðin, sem eru jöfn að stigum á
toppi riðilsins með 13 stig hvort lið,
mættust á Laugardalsvellinum í lok
september og gerðu 11 jafntefli. Jón
Þór gerir eina breytingu á hópnum
frá þeim leik, en Andrea Rán Snæ
feld Hauksdóttir kemur inn fyrir
liðsfélaga sinn Rakel Hönnudóttur.
Svíar standa betur að vígi en
Íslendingar, þar sem sænska liðið
hefur betri markatölu þar sem
munar fjórum mörkum. Efsta liðið
fer beint í lokakeppni Evrópu
mótsins, en liðin þrjú með bestan
árangur í öðru sæti í riðlunum níu í
undankeppninni fá einnig farseðil
til Englands. Eins og staðan er núna
er Ísland í þriðja sæti af þeim liðum
sem sitja í öðru sæti. Eftir þennan
leik eiga liðin tvo leiki eftir í riðli
sínum, en íslenska liðið mætir Sló
vakíu og Ungverjalandi ytra, mán
aðamótin nóvember og desember.
hjorvaro@frettabladid.is
Engin draumastaða fyrir þjálfarana
Þjálfari kvennalandsliðsins segir það enga óskastöðu að flestir leikmenn liðsins séu í fríi frá æfingum og leikjum í aðdraganda stór-
leiksins gegn Svíum í undankeppni EM. Þrátt fyrir það telur hann að reynsla úr fyrri bylgjunni geti hjálpað til við undirbúninginn.
Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2021
Lýðheilsusjóður óskar eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til
heilsueflingar og forvarna á sviði geðræktar, næringar, hreyfingar og
tannverndar auk áfengis-, vímu- og tóbaksvarna.
Áhersla er lögð á eftirfarandi:
• Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu.
• Aðgerðir til að efla félagsfærni og draga úr einmanaleika.
• Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði, svefni og hreyfingu.
• Áfengis, vímu- og tóbaksvarnir.
• Verkefni sem tengjast kynheilbrigði.
• Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu.
Við úthlutun verður tekið mið af eftirfarandi stefnum:
• Lýðheilsustefna og aðgerðir sem stuðla að heilsueflandi samfélagi
• Stefna í áfengis- og vímuvörnum til 2020
• Stefna og aðgerðaráætlun í geðheilbrigðismálum til 2020
Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang:
- Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila í samfélaginu.
- Verkefni með eigin fjármögnun og/eða aðra fjármögnun.
Verkefnin eiga að byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr
markmið. Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn
og skal skila framvinduskýrslu að verkefni loknu.
Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2020 og skal sótt um á vefsvæði
Lýðheilsusjóðs, http://lydheilsusjodur.sidan.is/pages/.
Nánari upplýsingar í síma 510 1900 eða á vef embættis landlæknis.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum í gegnum vefsvæði sjóðsins.
Embætti landlæknis - Katrínartúni 2 - 105 Reykjavík - Sími 5101900 - lydheilsusjodur@landlaeknir.is - www.landlaeknir.is
FÓTBOLTI Forráðamenn félaganna
í ensku úrvalsdeildinni í knatt
spyrnu karla hafa ákveðið að heim
ilt verði að kaupa áskrift til að horfa
á þá leiki sem ekki eru sýndir í sjón
varpi í október. Mögulegt verður þá
að kaupa áhorf á staka leiki.
Er þetta gert til þess að mæta því
tekjutapi sem félögin í deildinni
verða fyrir, þar sem áhorfendur
mega ekki mæta á leiki deildarinn
ar það sem eftir lifir mánaðarins.
Félögin eru enn fremur að mæta
þörfum stuðningsmanna sinna sem
geta ekki séð liðin sín á vellinum
eða í sjónvarpi.
Forráðamenn ensku úrvalsdeild
arinnar stefndu að því að hleypa
áhorfendum aftur inn á vellina í
byrjun október, en nýjasta bylgja
kórónaveirufaraldursins frestaði
þeim áformum. Leikið hefur verið
fyrir luktum dyrum í deildinni
síðan um miðjan mars síðastliðinn
vegna faraldursins.
Ekki eru allir sáttir við þessa
auknu þjónustu, en Gary Neville
telur þetta slæma þróun fyrir ensku
úrvalsdeildina. Þá hafa samtök
knattspyrnuáhugamanna gagn
rýnt verðið sem greiða þarf fyrir
að horfa á hvern leik, sem er tæp 15
pund sem samsvarar tæpum 3.000
íslenskum krónum.
Þá séu það hjákátleg rök fyrir
verðinu að styrkja eigi félögin, í ljósi
þess að félögin hafi varið rúmum
milljarði punda í leikmannakaup
og fengið styrk frá breska ríkinu til
þess að greiða starfsmönnum sínum
laun. – hó
Halda áfram að sýna frá
öllum leikjum í Englandi
Hægt verður að kaupa
stakan leik fyrir 15 pund
sem er um þrjú þúsund
íslenskar krónur.
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Jón Þór, ásamt Hlín og Söru, sem bætir leikjametið í næsta leik. MYND/VALLI
Titilvörn Liverpool skall á vegg í Birmingham á dögunum. MYND/EPA