Fréttablaðið - 10.10.2020, Qupperneq 19
FÓTBOLTI Strákarnir okkar fá tæki-
færi til að hefna fyrir fyrri kynslóðir
og reka dönsku grýluna í kaf annað
kvöld þegar Ísland mætir Dönum.
Þetta verður í 24. sinn sem þessi lið
mætast og hafa Íslendingar ekki enn
unnið nágranna okkar og frændur.
Danir hafa farið illa með Íslendinga
til þessa og bera ábyrgð á stærsta
tapi Íslands frá upphafi í 14-2 sigri
Dana árið 1967. Í þessum 24 leikjum
hafa Danir unnið tuttugu sinnum
en fjórum sinnum hefur lokið með
jafntefli, síðast árið 1991.
Gullkynslóð karlalandsliðsins
sem er einum leik frá því að kom-
ast á þriðja stórmótið hefur ekki
fengið mörg tækifæri til að kljást
við Danina. Flestir komu þeir við
sögu í æfingaleik á vordögum 2016
í aðdraganda Evrópumótsins í 2-1
sigri Dana og þá komu einhverjir
við sögu í leikjum liðanna í undan-
keppni EM 2012, þegar margir af
reyndari leikmönnum liðsins í dag
voru að stíga fyrstu skref sín með
landsliðinu. Það er óvíst hvenær
Ísland fær jafngott tækifæri til að
binda enda á þessar ógöngur.
Á fimmtudaginn tókst Íslandi
að vinna Rúmeníu í fyrsta sinn í
þriðju tilraun. Hefur karlaliðið nú
unnið 37 af þeim 54 aðildarþjóðum
sem eru nú hluti af evrópska knatt-
spyrnusambandinu en þeir hafa
aldrei mætt Bosníu, Gíbraltar, San
Marínó eða Serbíu. Telst Ísland því
hafa unnið leiki gegn 37 af þeim 50
aðildarþjóðum UEFA sem Ísland
hefur mætt. Eftir standa Aserba-
ísjan, Belgía, Búlgaría, Danmörk,
Frakkland, Hvíta-Rússland, Ísrael,
Portúgal, Pólland, Skotland, Svart-
f jallaland, Sviss og Þýskaland.
Strákarnir okkar hafa ekki fengið
mörg tækifæri gegn þjóðum eins
og Aserbaísjan, Hvíta-Rússlandi,
Ísrael, Svartfjallalandi og Þýska-
landi, en Danir eru sú þjóð sem
Ísland hefur mætt oftast án þess að
vinna leik. – kpt.
Gullkynslóðin getur náð fram hefndum gegn Danmörku
Verður í annað sinn sem gullkynslóðin tekst á við Dani. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Ekkert varð úr viður-
eign U21 árs liðs Íslands og Ítalíu
sem átti að fara fram á Víkings-
velli í gær, eftir að ítalska liðið var
sett í sóttkví. Liðin áttu að mætast
seinni partinn en fyrir hádegi barst
tilkynning frá KSÍ um frestun leiks-
ins á leikdegi.
Fyrr í vikunni höfðu tveir leik-
menn ítalska hópsins greinst með
smit og í gær kom í ljós að það
væru fleiri smit innan leikmanna-
hópsins sem og þjálfarateymisins.
Niðurstaða íslenska smitrakningar-
teymisins var að liðið þyrfti að fara
í sóttkví og var leiknum því frestað.
Um er að ræða afar mikilvægan
leik í riðli Íslands fyrir EM U21 á
næsta ári þar sem Ísland er í harðri
baráttu við Svíþjóð og Ítalíu. – kpt
Frestuðu vegna
COVID-smits
Ísak Bergmann og félagar þurfa að
bíða eftir leiknum gegn Ítalíu.
FÓTBOLTI Arnar Grétarsson sem
tók við þjálfun karlaliðs KA í knatt-
spyrnu í júlí síðstliðnum, hefur skrif-
að undir nýjan tveggja ára samning
við félagið. KA-menn greindu frá
þessu í frétt á heimasíðu sinni í gær.
Undir stjórn Arnars hefur KA-
liðið gert níu jafntef li á Íslands-
mótinu, haft betur í tveimur
d e i l d a r l e i k j u m o g b e ð i ð
ósig ur í einum leik í deildinni, sem
var á móti Val, toppliði deildarinnar.
KA siglir lygnan sjó í deildinni, en
liðið situr í sjöunda sæti með 21
stig og er 13 stigum frá fallsvæði
deildarinnar þegar fjórar umferðir
eru eftir og 10 stigum frá sæti sem
veitir þátttökurétt í undankeppni
Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð.
„Ég er bæði ánægður og stoltur með
þessa niðurstöðu. Arnar er afar
metnaðarfullur og einstaklega fag-
legur í allri sinni vinnu og viðhorfi
til félagsins. Það ríkir mikil ánægja
með hans störf meðal leikmanna
okkar sem og allra KA manna.
Við væntum þess að Arnar haldi
áfram að móta liðið sem og einstaka
leikmenn okkar, en innan félagsins
er, auk reynslubolta okkar, fjöldinn
allur af efnilegum metnaðarfullum
strákum sem bíður þess að bera
uppi framtíðarlið okkar KA manna,“
ritaði Hjörvar Maronsson, formaður
knattspyrnudeildar KA, af þessu til-
efni. – hó
Arnar áfram í
herbúðum KA
KA hefur aðeins tapað
einum deildarleik af tólf
undir stjórn Arnars.
InductionAir Plus tryggir ferskt loft í opna eldhúsinu þínu og gerir gestgjafahlutverkið um
leið að leik einum – þökk sé þessu nýtískulega spanhelluborði sem státar af öflugum
innbyggðum gufugleypi í miðjunni. siemens-home.bsh-group.com
Framtíðin flyst inn.
Siemens heimilistæki
BS
H
-s
am
st
ey
p
an
e
r
le
yf
is
h
af
i v
ö
ru
m
er
ki
s
í e
ig
u
S
ie
m
en
s
A
G
Þannig fæst alltaf
rétta andrúmsloftið
Siemens heimilistækin fást hjá
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19L A U G A R D A G U R 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0