Fréttablaðið - 10.10.2020, Qupperneq 38
Teymisstjórar
hjá félagsþjónustu
Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum
til að taka þátt í mikilvægum félagsþjónustuverkefnum og
í umbóta- og þróunarverkefnum á fjölskyldusviði Árborgar.
Í sveitarfélaginu, þar sem búa rúmlega 10 þúsund manns,
er lögð áhersla á þverfaglegt samstarf og framsækið starf í
velferðar-, frístunda- og skólaþjónustu. Fjölskyldusvið sinnir
fjölbreyttri þverfaglegri þjónustu við íbúa Árborgar með
snemmtækan stuðning að leiðarljósi.
Um er að ræða tvær nýjar teymisstjórastöður, annars vegar
til að leiða barnaverndarstarf og hins vegar til að leiða
ráðgjafarstarf félagsþjónustu í samvinnu við deildarstjóra.
Ráðið verður í stöðurnar frá og með 1. desember nk. eða
eftir samkomulagi.
Teymisstjóri barnaverndar
Helstu verkefni
- Ábyrgð á faglegu starfi og skipulagi barnaverndarteymis
- Fagleg yfirumsjón með barnaverndarteymi
- Fagleg yfirumsjón með vinnslu mála skv. ákvæðum barna-
verndarlaga
- Leiðbeinir starfsfólki barnaverndar og veitir því ráðgjöf
- Þátttaka í stefnumótunarvinnu og umbótastarfi
- Ábyrgð og þátttaka í mótun verkferla, skýrslugerð og gerð
starfsáætlana
- Samstarf við aðrar deildir og starfseiningar fjölskyldusviðs
Menntun og færnikröfur
- Háskólamenntun á sviði félags- eða heilbrigðisvísinda, s.s.
félagsráðgjöf til starfsréttinda
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur
- Reynsla og þekking á sviði barnaverndar nauðsynleg
- Reynsla af stjórnun er mikill kostur
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og leiðtogahæfileikar
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og á ensku
Teymisstjóri ráðgjafateymis
Helstu verkefni
- Ábyrgð á faglegu starfi og skipulagi teymis v/félagslegrar
ráðgjafar
- Fagleg yfirumsjón með ráðgjafateymi og vinnslu mála
- Leiðbeinir starfsfólki félagsþjónustu og veitir því ráðgjöf
- Þátttaka í umbótastarfi út frá stefnu sveitarfélagsins og
félagsþjónustulögum
- Samstarf við aðrar deildir og starfseiningar fjölskyldusviðs
Menntunar og færnikröfur
- Háskólamenntun á sviði félags- eða heilbrigðisvísinda, s.s.
félagsráðgjöf til starfsréttinda
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur
- Reynsla og þekking á meginverkefnum félagsþjónustu
nauðsynleg
- Reynsla af stjórnun er mikill kostur.
- Framúrskarandi lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og leiðtogahæfileikar
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Frekari upplýsingar um störfin
Nánari upplýsingar um störfin veitir Heiða Ösp Kristjáns-
dóttir, deildarstjóri félagsþjónustu, heidaosp@arborg.is,
sími 480-1900. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Vakin er athygli á stefnu Árborgar að jafna hlutfall kynjanna
í störfum og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika sam-
félagsins.
Umsóknarfrestur er til og með 25. október
Með umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, kynn-
ingarbréf, rökstuðningur fyrir hæfni í starfið og framtíðarsýn
umsækjanda varðandi þróun velferðarþjónustu hjá sveitar-
félögum. Umsókn ásamt fylgigögnum skal skila í gegnum
ráðningarvef sveitarfélagsins http://starf.arborg.is/
AGR Dynamics leitar að öflugum markaðsstjóra með reynslu af markaðssetningu hugbúnaðarlausna
á alþjóðlega markaði. Við leitum að einstaklingi til að skilgreina og fylgja eftir markaðsáætlun
félagsins til að styðja við vöxt inn á erlenda markaði.
Umsækjendur skulu senda upplýsingar um menntun og starfsreynslu á job@agrdynamics.is
fyrir 19. október. Nánari upplýsingar veitir Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri í
síma 512-1000. Fullum trúnaði heitið.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af markaðssetningu í alþjóðlegu umhverfi
Þekking og haldbær reynsla af stafrænni markaðssetningu á alþjóðlegum markaði
Gott vald og þekking til að skrifa faglegan texta á ensku
Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
AGR Dynamics - Smáratorg 3 - 200 Kópavogur - s: 512 1000 - www.agrdynamics.is
AGR Dynamics er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur frá stofnun, árið 1997, þróað
eigin lausnir til hagræðingar í rekstri aðfangakeðjunnar. Á skrifstofum okkar á Íslandi,
Bretlandi, Danmörku og Kanada starfa 70 manns sem þjónusta alþjóðlegan hóp viðskiptavina.
Markaðsstjóri
Ábyrgðasvið
Áframhaldandi uppbygging á vörumerki AGR á alþjóðlegum mörkuðum
Gerð markaðsáætlunar og eftirfylgni hennar með erlendum starfsstöðvum
Umsjón með stafrænni markaðssetningu á vefsíðu, samfélagsmiðlum og vefgáttum endursöluaðila
Þjónusta og samskipti við erlendar starfsstöðvar varðandi sölu- og markaðsmál
Samskipti við þjónustuaðila á sviði hönnunar, textagerðar, ráðstefna og stafrænnar markaðssetningar
Útgáfa kynningarefnis svo sem viðskiptavinasögur, bæklingar, video-myndefni og vörulýsingar
Til hvers að auglýsa ?
Ef þú auglýsir sjálf-/ur eftir starfsmanni eyðir þú verulegum tíma
í úrvinnslu innsendra umsókna.
Okkar styrkur er öflugur gagnabanki og yfir tveggja áratuga reynsla við að
þjónusta fyrirtæki við leit að starfsmanni.
Sparaðu þér tíma, kostnað og fyrirhöfn - leitaðu aðstoðar
fagmanna með langvarandi reynslu af ráðningarmálum.
STRÁ Starfsráðningar ehf. - Suðurlandsbraut 30 - sími 588-3031
stra@stra.is - gudny@stra.is - www.stra.is.
Með starf
fyrir þig
Starfsemi STRÁ ehf. býr að
aldarfjórðungs reynslu og
þekkingu á sviði starfs-
manna- og ráðningarmála
en stofan hefur unnið fyrir
mörg helstu og leiðandi
fyrirtæki landsins um
árabil.
Rík áhersla er lögð á trúnað
varðandi vörslu gagna og
upplýsinga bæði gagnvart
umsækjendum, sem og
vinnuveitendum.
Ánægðir viðskiptavinir til
margra ára hafa notið
þjónustu STRÁ, en stofan
hefur jafnframt umsjón
með ráðningum í sérfræði-
og stjórnunarstöður.
www.stra.is
10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R