Fréttablaðið - 10.10.2020, Page 39

Fréttablaðið - 10.10.2020, Page 39
Er Skatturinn á eftir þér? Nú er tækifæri fyrir metnaðarfulla og kraftmikla einstaklinga að slást í góðan hóp starfsmanna á starfsstöð Skattsins í hjarta Akureyrar Þann 1. janúar 2020 sameinuðust embætti tollstjóra og embætti ríkisskattstjóra í eina öfluga og leiðandi upplýsinga – og þjónustustofnun á sviði skatta- og tollamála sem ber heitið Skatturinn. Helstu verkefni og ábyrgð Um fjölbreytt verkefni er að ræða er tengjast m.a. upplýsingagjöf um skatta-, innheimtu- og tollamál, úrvinnslu ýmissa gagna sem viðskiptavinir óska eftir, afgreiðslu erinda, ráðstöfun séreignarsparnaðar til íbúðarkaupa eða greiðslna inn á húsnæðislán og öðru er tengist verkefnum Skattsins. Um er að ræða störf á starfsstöð Skattsins á Akureyri og er starfshlutfall 100%. Á starfsstöð Skattsins á Akureyri starfa í dag 35 frábærir starfsmenn. Menntunar– og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (lágmarksmenntun er bakkalár gráða). • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð. • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli. • Frumkvæði og metnaður. • Fáguð framkoma og lipurð í samskiptum. • Jákvæðni og þjónustulund. • Geta til að vinna undir álagi. • Góð almenn tölvukunnátta. • Hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar um störfin veitir Gunnar Karlsson í síma 442-1000 eða í tölvupósti á gk@skatturinn.is Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins, skatturinn.is eða á vefsíðu Starfatorgs, starfatorg.is. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi. Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsóknarfrestur er til og með 20. október 2020 og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar. Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúi Blönduósbær auglýsir laust til umsóknar starf Menningar-, íþrótta- og tómstundafulltrúa. Um nýtt starf er ræða með starfshlutfalli 80 – 100%. Tilgangur starfsins er að hafa umsjón með öllu menningar-, íþrótta- og tómstundastarfi Blönduósbæjar í góðu samstarfi við hlutaðeigandi aðila. Á Blönduósi er góð aðstaða fyrir öflugt íþróttastarf og skýr framtíðarsýn fyrir styrkingu á núverandi tómstundastarfi fyrir alla aldurshópa í þessu vaxandi samfélagi á NV-landi. Hér er fjölbreytt og skemmtilegt tækifæri fyrir skipulagðan einstakling til móta nýtt starf í samstarfi við fjölmarga aðila á svæðinu. Næsti yfirmaður er sveitarstjóri. Markmið og verkefni: • Verkefnavinna og þátttaka í stefnumótun í þessum mála- flokkum. • Vinna náið með menningar- íþrótta- og tómstundanefnd sveitarfélagsins. • Umsjón og þróunarvinna með starfsemi félagsmið- stöðvarinnar Skjólsins. • Er tengiliður sveitarfélagsins við félagasamtök sem eru með skipulagða íþrótta- og tómstundastarfsemi í sveitar- félaginu, á grundvelli samninga. • Vinnur í nánu samstarfi við stjórnendur grunnskóla og íþróttamiðstöðvar. • Er tengiliður og umsjónaraðili með verkefninu Heilsu- eflandi samfélag. • Verkefnastjórn við undirbúning viðburða á vegum sveitarfélagsins. • Önnur verkefni á þessu sviði sem viðkomandi er falið af sveitarstjóra. Hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfinu, gjarnan á sviði, kennslu, tómstunda- og félagsmálafræði, eða önnur menntun sem nýtist í starfi. • Góðir forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar. • Reynsla og þekking af íþrótta- og tómstundastarfi. • Mikill áhugi á velferð íbúa og hæfni til að eiga samskipti við alla aldurshópa. • Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi. Launakjör erum samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu. Umsækjendur af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar veitir Valdimar O Hermannsson, sveitarstjóri. Upphaf starfs er sem fyrst eða samkvæmt nánara sam- komulagi. Umsóknum skal skilað á netfangið, valdimar@blonduos.is Umsóknarfrestur er til og með 24. október 2020. Þarftu að ráða starfsmann? RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini. FAST Ráðningar www.fastradningar.is Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is ATVINNUAUGLÝSINGAR 11 L AU G A R DAG U R 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.