Fréttablaðið - 10.10.2020, Blaðsíða 40
Mannauðsstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
Mannauðsstjóri er ný staða á HSS og hefur yfirumsjón með mannauðsmálum stofnunarinnar og vinnur náið með forstjóra og
framkvæmdastjórn. Meginhlutverk mannauðsstjóra verður að þróa og byggja upp mannauðsmál HSS og veita stjórnendum
alhliða ráðgjöf á sviði mannauðsmála. Næsti yfirmaður verður forstjóri HSS.
Leitað er að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi með reynslu af mannauðsmálum.
Ábyrgðarsvið:
• Ábyrgð á að móta og innleiða mannauðsstefnu HSS og að starfsþróun innan stofnunarinnar sé í samræmi við þarfir hennar
hverju sinni
• Ábyrgð á fræðslu stjórnenda og almennra starfsmanna þ.m.t. móttaka og þjálfun nýliða
• Ábyrgð á að skapa eftirsóknarvert starfsumhverfi og jákvæðan starfsanda, ásamt framkvæmdastjórn
• Ábyrgð á launavinnslu og að kjaratengd mál séu í samræmi við lög, kjarasamninga og verklagsreglur stofnunar
• Ábyrgð á jafnlaunakerfi HSS
• Mannauðsstjóri er næsti yfirmaður starfsmanna mannauðsdeildar
Helstu verkefni:
• Leiðir stefnumótun og samhæfingu mannauðsmála innan HSS í nánu samstarfi við framkvæmdastjórn
• Skipuleggur mannauðsmál og stuðning við starfsmenn og stjórnendur
• Vinnur að markvissri starfsþróun í samræmi við þarfir HSS sem byggir á starfsmannasamtölum og skilgreindum starfs-
lýsingum
• Skipuleggur menntun og fræðslu starfsmanna og stjórnenda HSS
• Styður við stjórnendur hvað varðar nýliðun, ráðningar, gerð starfslýsinga og starfslok
• Kemur að gerð stofnanasamninga og hefur samskipti við stéttarfélög fyrir hönd HSS
• Ráðgjöf og stuðningur við starfsmenn og stjórnendur tengt kjaramálum og launasetningu
• Leiðir mótun jafnréttisstefnu og umsjón með eftirfylgni hennar
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf á sviði mannauðsmála, vinnusálfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
• Yfirgripsmikil reynsla af stjórnun mannauðsmála er skilyrði
• Þekking og/eða reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er æskileg
• Þekking á kjaraumhverfi hins opinbera er æskileg
• Starfsreynsla úr heilbrigðisgeiranum er kostur
• Reynsla af þátttöku í mótun og innleiðingu breytinga
• Framúrskarandi samskiptahæfni
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Sjálfstæði, góð skipulagshæfni og færni til að vinna í hópi
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Í boði er spennandi nýtt starf hjá metnaðarfullri stofnun. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi
stéttarfélags. Ráðið verður í starfið frá og með 1. janúar 2021. Umsóknarfrestur er til og með 25. október n.k. Nánari upp-
lýsingar um starfið veitir forstjóri HSS, Markús Ingólfur Eiríksson, netfang: hss@hss.is. Sótt er um starfið á Starfatorgi eða
heimasíðu HSS, www.hss.is
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Störf í blómabúð
Garðheima
Í blómabúð Garðheima starfar glaðlegur hópur
blómaskreyta. Þar fer fram metnaðarfullt starf
í gerð blómaskreytinga af ýmsu tagi. Við óskum
nú eftir tveimur blómaskreytum til að slást í
hópinn til framtíðar:
fAgsTjórI í BlómAbúð
Við óskum eftir fagstjóra í blómabúðina
til að sjá um faglega umsjón á framleiðslu
blómvanda og skreytinga.
Fagstjóri hefur yfirumsjón með
innkaupum og meðhöndlun á blómum og
skreytingarefni, auk almennra starfa sem
blómaskreytir.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af gerð
blómvanda og skreytinga, sem og
menntun blómaskreytis.
Um er að ræða fullt starf.
bLómAskReYtiR
Við óskum eftir blómaskreyti til að sjá um
gerð blómvanda og skreytinga í fullt starf.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af gerð
blómvanda og skreytinga, menntun
blómaskreytis mikill kostur.
Garðheimar bjóða uppá störf í skemmtilegu og
lifandi umhverfi sem leggur áherslu á grænan
lífsstíl. Garðheimar er ölskyldufyrirtæki þar
sem starfa um 60 manns
Umsóknarfrestur er til 19. okt og sendast
umsóknir á umsoknir@gardheimar.is
HlökKum tIl Að HeyRa Frá þér!
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
12 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R