Fréttablaðið - 10.10.2020, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 10.10.2020, Blaðsíða 54
Daníel Hjálm- týsson og hljómsveit hans hyggjast gefa út sína fyrstu plötu þann 20. nóvember næstkomandi. MYND/GUSTAVO BLANCO Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Helgarnar geta verið langar og einmanalegar ef enginn kemur í heimsókn. Helgin er tími samveru fjöl-skyldu og vina. Nú þegar 20 manna samkomubann hamlar stórum samfundum er hætta á að margir einangrist og finni til einmanaleika. Það er ekki síst eldra fólkið okkar sem þarf sérstaklega á ást, tíma og þolin- mæði að halda og í raun er fátt eins gefandi og gott eins og að verja dýrmætum tíma með elstu kyn- slóðinni. Það er margt sem við getum haft hugfast og gert til að gleðja á samverustundum með gamla fólkinu okkar, en hér eru nokkrar hugmyndir. n Leyfum þeim að rifja upp gamla tíma. Minningarnar eru þeim mikilvægar og stundum það eina sem þau eiga eftir. n Tökum eftir því sem þau segja, jafnvel þótt við höfum heyrt það oftsinnis áður. n Komum fram við þau af virðingu og skilningi, en aldrei eins og lítil börn. n Spyrjum hvað við getum gert til að gera þeim glaðan dag. n Hlustum með þeim á tónlist frá þeirra blómaskeiði og rifjum upp minningar henni tengdar. n Ef við megum ekki koma í heim- sókn vegna heimsfaraldursins, spjöllum þá oft í síma eða á skjánum. n Spilum við þau og lesum fyrir þau úr uppáhaldsbókunum þeirra. n Tökum eftir því sem þau segja, því oftast er það mikil viska og gott veganesti um lífsins veg. n Eigum gott kósíkvöld með þeim, pöntum pítsu, poppum og horfum saman á góða gaman- mynd. n Tölum við þau af hlýju og með blíðlegri röddu. Þökkum fyrir okkur og tjáum þeim væntum- þykju okkar. Snertum þau, þegar má út af kórónaveirunni, höldumst í hendur og gefum koss á kinn. n Dekrum við þau og spillum eins og við getum. Færum þeim góðan mat og góðgæti í dálæti. n Skoðum með þeim gamlar myndir og heyrum sögurnar af fólkinu og tilefnum myndanna. n Leyfum þeim að finna að þau séu mikilvæg og engin byrði, heldur þvert á móti, að við þurfum á þeim að halda. Leyfum þeim líka að gera sem mest sjálfum, í stað þess að stökkva alltaf til og gera hlutina fyrir þau. Gleðjum um helgina Myndbandið við lagið Fear Flows var frumsýnt í gær, en lagið er önnur smá- skífan af væntanlegri þröngskífu (EP-plötu) sem Daníel og hljóm- sveit hans tóku upp síðastliðið sumar. „Platan inniheldur fjögur lög sem samin eru af mér, auk þess sem hljómsveit mín, þeir Hálfdán Árnason, Pétur Hallgrímsson og Skúli Gíslason, leggja sitt af mörkum. Garðar Borgþórsson hefur nú tekið við hlutverki Péturs í hljómsveitinni en platan var tekin upp í júlí og ágúst á þessu ári,“ segir Daníel, en fyrirhugaður útgáfudagur plötunnar er 20. nóv- ember næstkomandi. Fyrsta smáskífan af plötunni, lagið Birds, kom út í byrjun árs en það var valið lag dagsins á KEXP- útvarpsstöðinni í Seattle 5. maí síðastliðinn. „Það eru þrjú ný lög og brothættari útgáfa af Birds á plötunni, en Red Limo kvartettinn spilaði einmitt með mér í því lagi en þeir hafa líka unnið mikið með Lanegan og Eddie Vedder líka.“ Umkringdur goðsögnum Óhætt er að fullyrða að Daníel og hljómsveit hans séu í góðum félagsskap á plötunni, því auk kvartettsins sér tónlistargoð- sögnin Alain Johannes, sem hefur meðal annars unnið með Mark Lanegan, Chris Cornell, PJ Harvey og Queens of the Stone Age, um að hljómjafna plötuna og Belgarnir Aldo Struyf og Fred Lyenn úr Mark Lanegan Band eru sérstakir gestir á plötunni. Jóhannes Birgir Pálma- son sá um upptökur, hljóðblöndun og klippingu. Daníel býr yfir mikilli reynslu sem tónleikahaldari en það var þannig sem hann komst í kynni við Mark Lanegan. „Ég flutti hann inn 2013 til að spila í Fríkirkjunni og þá myndaðist ákveðinn vin- skapur. Þeir höfðu orð á því, fylgdarliðið og bandið hans, að þeir hefðu aldrei áður séð hann tengjast tónleikahaldara eins og hann tengdist mér. Hann faðmaði mig og þakkaði mér fyrir uppi á sviði og þeir sögðust aldrei hafa séð hann í þessum fíling áður. Ég fór svo með hann í Kringluna og við keyptum á hann strigaskó, kíktum á jólasveinana spila á gítar og fengum okkur kaffi.“ Eftir það byrjaði boltinn að rúlla. „Svo út frá því fóru hljóm- sveitarmeðlimir hans að koma í heimsókn til mín, eins og Fred sem spilar í tveimur lögum á plötunni, og ég hef líka farið út og hitt þá. Það var svo í desember á síðasta ári sem ég fór að hitta þá í Camden á tónleikum þar, og kynntist þá nokkrum sem höfðu ekki verið með á Íslandi og líka umboðs- manninum hans, sem er núna umboðsmaðurinn minn. Þá náði ég aðeins að spjalla við Mark aftur og þá kom upp þessi pæling um að strákarnir myndu kannski spila á plötunni hjá mér.“ Ljósaskipti lífsins Daníel lýsir andrúmslofti plöt- unnar sem þungbúnu en tilrauna- kenndu. „Platan er dálítið heavy og dílar mikið við innri baráttu við þunglyndi, kvíða, ótta og óvissu og allt þetta sem er í gangi í dag. Þetta er engin partíplata og kannski ekk- ert allra að hlusta á,“ segir Daníel og skellir upp úr. „Við erum að blanda saman klassík og elektróník, pínu ball- öðufílingi og rokki. Lagið sem kom út í síðustu viku er svona rokkaðasta lagið á plötunni, frekar „straight forward“ rokklag á meðan hin lögin eru kannski tilraunakenndari og tilfinninga- næmari,“ útskýrir hann. „Þetta er tónlist fyrir haustið og veturinn, það er svolítið skamm- degi í þessu. Við eigum eftir að birta plötuumslagið en það gefur betri innsýn í andrúmsloftið. Þetta er dáítið að leita að ljósinu í myrkr- inu, samspil ljóss og myrkurs, eins konar ljósaskipti lífsins.“ Daníel hefur í nógu öðru að snú- ast, en hann býr um þessar mundir á Reyðarfirði þar sem hann kennir í grunnskólanum. „Ég flutti hingað í sumar, kærastan mín býr hérna með syni sínum og ég ákvað að það væri ágætt að prófa eitthvað nýtt. Þetta er líka töluvert skemmti- legri staður fyrir fjögurra ára gutta heldur en Skólavörðuholtið,“ segir hann og hlær. „En ég sakna samt miðbæjarins á hverjum degi.“ Óttinn flæðir í skammdeginu Tónlistarmaðurinn Daníel Hjálmtýsson gaf nýverið út lagið Fear Flows sem hlotið hefur góðar undirtektir en gaman er að geta þess að sjálfur Mark Lanegan deildi laginu á Twitter. Njarðarbraut 11, 260 Reykjanesbær Funahöfði 6, 110 Reykjavík G Æ Ð A D E K K I N Þ Í N F Á S T Ó D Ý R A R I H J Á O K K U R ! 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.