Fréttablaðið - 10.10.2020, Page 58
Þegar við tökum á móti okkar fyrstu blæðing-um á unglingsárunum hefjum við nýtt tíma-bil, tímabil sem litast af þeirri hringrás sem
tíðahringurinn er og varir að með-
altali í 40 ár,“ útskýrir Helga. „Það er
svo mikilvægt að horfa á þetta svo-
leiðis, hringrás með fjórum tímabil-
um, ólíkt kannski því sem yfirleitt
er í forgrunni sem eru blæðing-
arnar sjálfar en þær eru aðeins eitt
af þessum tímabilum,“ segir Helga
og bendir á að tíðahringurinn og
vandamál honum tengd séu þung-
bærar fyrir hóp kvenna og mikil-
vægt sé að mæta þeim með virðingu
og viðeigandi aðstoð. „Meirihluti
kvenna hefur hins vegar tækifæri
til að dansa meira í takt við tíða-
hringinn sinn og mæta sér þar sem
þær eru hverju sinni.“
Árstíðirnar fjórar
„Það getur verið skemmtilegt að
horfa á þessa hringrás eins og árs-
tíðirnar, vetur, vor, sumar og haust.
Svo mikill blæbrigðamunur er á
líðan og hegðun konunnar eftir
tímabilunum, þó það sé auðvitað
persónubundið hversu mikill mun-
urinn er.
Þetta er auðvitað bara ein leið
fyrir konu að skoða sína hringrás af
forvitni og sjá hvað hún tengir við.
Blæðingar eru þá veturinn, þegar
líkaminn vinnur við að losa legs-
límuna úr leginu og þá daga er gott
að hvíla líkamann, hægja á sér og
hlusta inn á við. Hugsa losunina í
víðara samhengi, losa reynslu eða
tilfinningar úr síðasta hring úr
kerfinu.
For-egglos er þegar eggjastokkar
byrja að þroska egg og undirbúa
egglos, og er það þá vorið. Líkaminn
er orðinn léttari og konan er eins
og hún sé að vakna til lífsins aftur,
sköpunarkraftur, einbeiting, orka
einkennir hana og hún er opnari út
á við.
Egglosið er sumar, þá er ævin-
týrabragur yfir konunni, leikgleði,
daður og næmni einkenna líðan-
ina. Sjálfstraustið er í hámarki og
stemmning fyrir lífinu.
Fyrir-tíðir, eftir að ljóst er að
eggið sem losnaði hefur ekki
frjóvgast, er haustið. Þá þyngist
stemmningin aðeins. Konan fer
meira inn á við, þessi tími hentar vel
fyrir hugmyndavinnu og lærdóm.
Líkaminn kallar á meiri kolvetni
og margar konur finna fyrir því
sirka 10 dögum fyrir blæðingar og
fyrirtíðaspenna getur gert konuna
pirraða og óþolinmóða.“
Óþægilegt umræðuefni
Umræðuefnið er mörgum óþægi-
legt þó fátt sé eðlilegra og segir
Helga margar kenningar um það
hvers vegna tíðahringur kvenna
varð tabú.
„Það eru árþúsund síðan fyrstu
heimildir sýna viðhorf eins og að
konan sé skítug þegar henni blæðir
og megi raunar ekki vera nálægt
neinum á meðan. Lang- og við-
varandi neikvæð viðhorf til tíða-
hrings og tíðablóðs kvenna er samt
ástæðan fyrir því hversu djúpstæð
þau eru og þar með því að mörgum
finnst þetta óþægilegt umræðuefni
enn í dag. Þetta er kynslóðaarfur
sem er tímabært að losa okkur við,“
segir hún ákveðin.
Helga bendir á að í mörgum
trúarbrögðum megi finna hefðir
sem hafi þyngt þessa byrði, þar sé
litið svo á að konan sé skítug meðan
á blæðingum standi. Því megi ekki
stunda kynlíf með henni, sums
staðar þurfi hún bókstaf lega að
vera í öðrum húsakynnum á meðan
á þeim standi, hún megi ekki mat-
reiða og fleiri takmörk.
„Það er talað um að í enn eldri
samfélögum, hafi sú hefð við-
gengist að konum hafi blætt í takti
við tunglið, og því komið saman á
hverju nýju tungli í mánuði og blætt
saman, í svokölluðu rauðu tjaldi.
Þar sátu þær og heiðruðu þennan
part kvenleikans og deildu visku
og reynslu á meðal sín.“
Slæmt að hunsa
skilaboð líkamans
Helga vill meina að konur séu
almennt ekki meðvitaðar um hvaða
áhrif sveif lur tíðahringsins hafi á
líðan sína.
„Því miður ekki, og tel ég að
veganesti okkar f lestra sé þar um
að kenna. Okkur er frá fyrstu blæð-
ingum kennt að þær séu eitthvað
sem þurfi að komast í gegn um, að
þær eigi í raun ekki að hafa áhrif á
líf okkar, frekar en að þetta sé heil
hringrás sem gott að er að kynnast.“
Helga vill meina að þær sem upp-
lifi verki eigi ekki bara að stilla þá
með verkjalyfjum og halda áfram
eins og aðra daga. „Þar með erum
við að hunsa skilaboð líkamans um
að hægja á, hlusta hvað hann er að
segja okkur með verkjunum, hvað
þurfum við þessa daga? Spurningin
sem vaknar hjá mér snýst um hvað
gerist ef við hunsum þessi skilaboð
í áratugi, mun líkaminn ekki bara
senda sterkari og sterkari skilaboð, í
formi meiri verkja eða annarra ein-
kenna?
Að lifa með sveiflunum
Annað dæmi er framkvæmdaorka,
sem er mjög mismunandi eftir tíma-
bilum tíðahringsins og algengt að
konur séu ekki meðvitaðar um það
og refsi sér fyrir að standa sig ekki
nógu vel, í stað þess að hvíla í þeirri
vissu að framkvæmdaorkan er mjög
mikil hluta hringsins og minni aðra
hluta.“
Helga segist sjálf hafa breytt
hegðun sinni og mánaðarlega taki
hún minna að sér, hvíli sig meira og
taki því almennt rólegar.
„Það þýðir að ég segi upphátt
við makann að nú séu þessir dagar
komnir og bið hann að taka hitann
og þungann af hversdagsverkunum.
Svo er hann líka farinn að fylgjast
með hvar ég er í tíðahringnum til
að vera undir það búinn þegar ég
er komin með fyrirtíðaspennu og
önugri en venjulega. Því þó mér
finnist hann og ýmislegt í umhverf-
inu pirrandi þessa daga er það ekki
persónulegt, heldur þetta samkven-
lega sem er í gangi. Þetta gengur
ekkert alltaf fullkomlega og verk-
efnið okkar í dag er að læra að dansa
saman í takt við mína hringrás. Að
læra að lifa með sveiflunum en ekki
reyna að laga þær.“
Ég heyri líka af karlmönnum sem
fylgjast með tíðahring sinnar konu
því þeir upplifa breytingarnar á
henni. Oft snýst það um að vera
undir það búinn að pirringur og
vanlíðan geri vart við sig í aðdrag-
anda blæðinganna – um haustið.
Það er líka svo mikilvægt að upp-
hefja umræðu um tíðir og tíðablóð
þegar kemur að líkamlegri nánd,
að konur og karlar geti mætt tíða-
blóði af virðingu í þeim aðstæðum.
Kynlíf á blæðingum getur einmitt
verið mjög ánægjulegt, en fyrst þarf
að losna við þessar neikvæðu hug-
myndir og viðhorf,“ segir Helga að
lokum.
Vill losna við kynslóðaarfinn
Helga Snjólfsdóttir vill að konur hætti að hunsa skilaboð líkamans og læri frekar að lifa með sveiflunum en reyna að laga þær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
MEIRIHLUTI KVENNA
HEFUR HINS VEGAR TÆKI-
FÆRI TIL AÐ DANSA MEIRA
Í TAKT VIÐ TÍÐAHRING-
INN SINN OG MÆTA SÉR
ÞAR SEM ÞÆR ERU HVERJU
SINNI.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Helga Snjólfsdóttir
jógakennari og verk-
fræðingur hefur
haldið bæði jóga- og
hugleiðslunámskeið
og námskeið um
kynhegðun og nánd.
Hún segir vandamál
varðandi tíðahring-
inn og skort á með-
vitund um hann,
oftar en ekki koma
til tals þar. Hún vill
breyta því hvernig
litið er á og talað um
þessa hringrás sem
varir í um 40 ár.
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð