Fréttablaðið - 10.10.2020, Síða 61
ÞÆR STOFNANIR SEM
VÍSINDAMENNIRNIR SEM
LÖGÐU EITTHVAÐ AF
MÖRKUM STARFA FYRIR
HAFA HÁÐ BLÓÐUGT STRÍÐ
UM EINKALEYFI OG HÖF-
UNDARRÉTT.
Emmanuelle Charpentier er 51 árs franskur gena- og örverulíffræðingur. Jennifer A. Doudna er 56 ára bandarískur lífefnafræðingur. MYND/GETTY
sem átti svo sannarlega eftir að bera
ávöxt.
Emmanuelle hafði unnið að bakt-
eríurannsóknum og beint sjónum
að óþekktri sameind sem afvopnar
veirur, sem bakteríuna sýkja, með
því að klippa í sundur erfðaefni
þeirra. Eftir að hafa birt rannsóknir
sínar árið 2011 starfaði Charpentier
með Doudna, við að endurskapa
erfðaskærin svo að auðveldara og
aðgengilegra væri að vinna með
þau og hagnýta.
Í grein sem birtist í vísindaritinu
Science árið 2013, rekja þær Char-
pentier og Doudna söguna á bak við
uppgötvunina.
Sigur grunnrannsókna
Þær líta á hana sem samruna
tveggja rannsóknarsviða innan
erfðafræði og sameindalíffræði:
annars vegar erfðabreytingar og
hins vegar líffræði CRISPR. Í grein
sinni hefja þær söguna árið 1979
og rekja lykiluppgötvanir á hvoru
sviði fyrir sig uns þau sameinast.
Það vekur athygli hversu margir
vísindamenn af ólíkum sviðum
koma að verkinu og hve erfitt hefur
verið að sjá fyrir hversu mikil-
vægar rannsóknirnar ættu eftir að
reynast. Þannig mætti líta á þessa
mikilvægu tækni sem sigur grunn-
rannsókna.
Með því að veita tvíeykinu verð-
launin batt Nóbelsverðlaunanefnd-
in enda á áralangar vangaveltur um
það hver fengi stærsta heiðurinn af
hönnun CRISPR/Cas9. Tæknin er
notuð víða um heim í dag og unnu
þær stöllur mikilvæga vinnu á
fyrstu stigum þróunar hennar.
Fjölmargir aðrir vísindamenn
hafa þó einnig verið nefndir til
sögunnar, til að mynda Feng Zhang,
George Church og Virginijus Siks-
nys.
Einkaleyfisbaráttan,
siðfræðin og framtíðin
Um leið og grunnrannsóknum
sleppir og hagnýting er handan við
hornið vaknar spurningin um hver
fái einkaleyfi á þessari nýju tækni.
Þær stofnanir sem vísindamenn-
irnir sem lögðu eitthvað af mörkum
starfa fyrir hafa háð blóðugt stríð
um einkaleyfi og höfundarrétt.
Enda er eftir miklu að slægjast:
frægð og frami fyrir vísindamenn-
ina, álitlegar vegtyllur fyrir stofnan-
irnar og síðast en ekki síst er einka-
leyfið metið á milljarða dollara.
University of Californa, heima-
stofnun Doudna, hafur barist fyrir
framlagi Charpentier (nú við Max
Planck en við Umeo þegar vinnan
átti sér stað) til einkaleyfisins en
Broad Institute (sem er samvinnu-
verkefni MIT og Harvard) fyrir
hlutdeild Feng og Church. Ekki eru
enn öll kurl komin til grafar í því
stríði og það sýnir svart á hvítu eftir
hversu miklu er að slægjast.
Ótti við misnotkun
Þeim f jölmörgu hagnýtingar-
möguleikum sem strax eru ljósir
fylgir einnig ótti við misnotkun.
Til dæmis ábyrgðarlausar erfða-
breytingar á mönnum. Skömmu
eftir að þær Emmanuelle og Jennifer
skrifuðu undir ákall vísindasam-
félagsins til stjórnmálamanna, um
að draga lagaramma um tæknina,
og þá sérstaklega erfðabreytingar
manna, birtust fyrstu fregnir frá
Kína um að He Jiankui hefði erfða-
breytt fóstrum.
Sú tilraun gerði ekkert til fram-
gangs tækninni og var harkalega
fordæmd. Hins vegar sýnir hún
glögglega að erfitt verður að halda
henni í skefjum. Hægt er að reyna að
ímynda sér framtíð CRISPR með því
að horfa til fortíðar. Hvað sáu menn
fyrir sér átta árum eftir uppgötvun
sprengihreyfilsins eða átta árum
eftir uppgötvun tölvunnar? Og
þegar við hugsum til annars vegar
orða Rudolf hér að ofan um að allir
geti gert þetta og hins vegar þess að
tæknin er ekki það dýr í framkvæmd
getum við verið á upphafsreit bylt-
ingar þar sem tæknin – og framþró-
un hennar – verður almannaeign.
Á bak við CRISPR-tæknina felast
því ótal sögur. Sögur um sigurgöngu
grunnvísinda, sögur um baráttu
um frægð, frama og fé. Og saga um
sigurgöngu kvenna í vísindum.
arionbanki.is
Í ljósi aðstæðna og tímabundinna lokana á útibúum býður Arion banki
eldri borgurum hraðþjónustu í þjónustuverinu í síma 444 7000.
Með því að velja 4 þegar hringt er í þjónustuverið fá eldri borgarar forgang
að þjónusturáðgjöfum sem aðstoða við hvaðeina sem snýr að bankaþjónustu.
Við tökumst á við þetta saman
Aukin þjónusta
við eldri borgara
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 29L A U G A R D A G U R 1 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0