Fréttablaðið - 10.10.2020, Side 68
Banda ríska ljóð skáldið Louise Glück hlýtur bók menntaverð laun Nóbels í ár. Hún er
eitt fremsta núlifandi skáld Banda
ríkjanna, fædd árið 1943. Fyrsta
ljóðabók hennar First born kom
út árið 1968. Á ferlinum hefur hún
hlotið fjölda verðlauna. Áberandi
yrkisefni er dauði, missir, höfnun
og sambönd sem bresta. Rainer
Maria Rilke og Emily Dickinson eru
talin meðal áhrifavalda á ljóðagerð
hennar.
Eitt af okkar bestu núlifandi
ljóðskáldum, Gerður Kristný,
þekkir til ljóða Glück. „Ég var á
tíu vikna löngu rithöfundaþingi
í Iowa árið 2014 og var ákaf lega
blönk allan þann tíma. Loks fékk
ég innleggsnótu í bókabúð fyrir
upplestur og valdi mér ljóðasafnið
hennar af öllu því sem þar fékkst.
Þetta var eina bókin sem ég kom
með heim. Louise Glück er ferlega
gott skáld. Ljóð hennar eru per
sónuleg og hyldjúp. Ég er gífurlega
ánægð með val Nóbelsnefndar,“
segir Gerður.
Persónuleg og hyldjúp ljóð
Nýi Nóbelsverðlaunahafinn Lou ise Glück með Barack Obama.
Váboðar er smásagnasafn eftir Ófeig Sigurðsson en hann fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2014 fyrir skáldsögu sína
Öræfi.
Ófeigur segir sögurnar hafa
verið skrifaðar síðasta vetur. „Ég
var kominn út í lausamölina með
skáldsögu sem ég hef verið að vinna
undanfarin ár og þessar sögur komu
mér óvænt til bjargar. Ég hef aldrei
skrifað smásögur áður og hef ekki
hugmynd um hvað gerðist.
Ég hugsaði þessar sögur ekki
fyrirfram sem heild, en ég geri það
núna. Sögurnar halda hver annarri
á lofti. Heildin myndaðist smám
saman með alls konar óvæntum
tengingum. Kannski er bókin jafn
vel nær skáldsögunni en smásagna
safni, ég veit það ekki, ég hef aldrei
talið mig ráða við smásagnaformið
en sá f ljótt að smásagan er býsna
frjálsleg og opin og meiri leikur í
henni en í skáldsögunni. Það hjálp
ar til að lítil virðing er borin fyrir
smásögunni, hún er oft flokkuð sem
aukaafurð og tilfallandi hjá rithöf
undum. Sem er auðvitað vitleysa en
samt mjög gott viðmið upp á að taka
sig ekki of hátíðlega.
Þetta er samt allt að breytast,
smásagan er búin að klifra upp á
einhvern stall til þess að geta veifað
til fjöldans. En það er satt, það getur
verið mjög snúið að koma saman
velheppnaðri smásögu, jafnvel
þrekraun.“
Sterkasta aflið
Spurður um umfjöll
unarefni smásagnanna
segir Ófeigur: „Sögurn
ar fjalla um ýmislegt,
persónurnar eru mikið
að spá í framtíðina
eða reyna að lesa í
framtíðina, reyna sjá
fyrir óorðna hluti
s vo bæg ja meg i
yfirvofandi hættu
f rá, koma í veg
fyrir dauðsföll. Og
sumum tekst það,
þarna er draum
spakt fólk sem kann
að lesa í táknin sem birtast í draumi
sem gefa okkur vísbendingu um
yfirvofandi vá. Þetta eru því sögur
sem fjalla um kvíða og skelfingu og
umkomuleysi og okkar sterkasta
afl, ástina.“
Blaðamaður spyr Ófeig hvernig
hann myndi lýsa tóninum í sögun
um. „Kannski er tónninn í bókinni
dálítið glettinn, ég veit það ekki,
hann er líka nokkuð harmrænn,“
svarar hann. „Tónninn er undir
nokkrum áhrifum frá Brynjólfi frá
MinnaNúpi, bókum hans eins og
Dulrænum smásögum, þar er ein
hver góðlegur alvarleiki, hlýja og
einfaldleiki gagnvart heiminum,
svona 19. aldar æðruleysi bænda og
sjómanna, eitthvað í þá áttina. Við
horf sem við mættum taka okkur til
fyrirmyndar í dag.“
Las mikið af smásögum
Hann segir ekkert í sögunum hafa
kallað á heimildavinnu. „Ég
vann enga heim
ildavinnu eins og
ég er vanur að gera
í mínum skáld
sögum, heldur las
mikið af smásög
um annarra til að
veita mér innblást
ur. Sögurnar spruttu
nokkurn veginn full
skapaðar fram, nema
ég þurfti að lesa mér
til um apa á Íslandi
frá landnámi til okkar
daga. Ein sagan varð til
í draumi.“
Spurður hvort hann
leggi mikið upp úr því
að fága stíl sinn segir
Ófeigur: „Ég er ekki viss um að ég
geti skrifað fágaðan stíl. En það er
skrítið, það er eins og efnið velji stíl
inn, eða að hver saga velji sinn stíl,
með hvaða hætti hún er framreidd
lesandanum eða hlustandanum. Ég
er alltaf að reyna að leyfa hráleik
anum að vera óáreittum og ofvinna
ekki texta. En ég er afar veikur fyrir
f lúri og geðveiki í texta og get ekki
að því gert.“
Glettni og harmræna
Ófeigur Sigurðsson sendir frá sér fyrsta smásagnasafn sitt. Segir
litla virðingu borna fyrir smásögunni. Ein sagan varð til í draumi.
Ég hef aldrei skrifað smásögur áður, segir Ófeigur. FRÉTTBLAÐIÐ/STEFÁN
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
ÞETTA ERU ÞVÍ SÖGUR
SEM FJALLA UM KVÍÐA
OG SKELFINGU OG UMKOMU-
LEYSI OG OKKAR STERKASTA
AFL, ÁSTINA.
Renndu við og fáðu lyn afgreidd beint í bílinn
www.lyfsalinn.is
BÍLAAPÓTEK
VIÐ VESTURLANDSVEG
1 0 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R36 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING