Fréttablaðið - 10.10.2020, Síða 80

Fréttablaðið - 10.10.2020, Síða 80
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Óttars Guðmundssonar BAKÞANKAR Verslun í Kringlunni Laugarásvegur 1 Pantaðu á skubb.is OG FÁÐU HEIMSENT Fyrir svanga ferðalanga Með hækkandi aldri fjölgar jarðarförum. Gamlir vinnufélagar, ættingjar og vinir kveðja þennan heim. Sérhver athöfn gerir mig bæði viðkvæman og sjálf hverfan, enda færist ég stöðugt nær grafarbakk- anum. Margar útfarir leysast upp í mína eigin þar sem ég svíf milli veruleika og ímyndunar. Ég er sjálfur í kistunni og skoða útund- an mér kirkjugesti. Mun þetta fólk mæta hjá mér? Oftar en ekki missi ég þráðinn undir ræðu prestsins og fer að ímynda mér eigin lík- ræðu. Ég horfi gagnrýnum augum á veitingar í erfidrykkjunni og fylgist með sálmaskránni og tón- listinni. Hvernig tókst sálmavalið? Voru of mörg dægurlög? Les eftir- mæli Moggans af stakri athygli og legg mat á stíl og innihald. Hinir látnu keppa innbyrðis í fjölda og lengd minningargreina. Vinnings- hafinn náði þremur síðum í vor. Hvernig mun mér vegna í þeirri keppni? Þegar ég kem heim reyni ég að ræða við konuna mína um þessi jarðarfararmál, en mæti full- komnu skilningsleysi. „Þú ert ótrúlega sjálf hverfur. Getur ekki einu sinni einbeitt þér að jarðarför vina þinna vegna þess hversu upp- tekinn þú ert af því að skipuleggja þína eigin,“ segir hún. Einu sinni reyndi ég að selja henni þá hug- mynd að einungis skyldi syngja þunglyndislega sálma eftir Hall- grím heitinn Pétursson í minni jarðarför. Hún var ekki til viðtals um það. „Þú hefur ekkert um þetta að segja, enda ertu dauður þegar þar að kemur.“ „Þú skilur ekki mína kynslóð,“ segi ég þá. „Við erum ekki sjálfmiðuð heldur bara meðvituð um eigin endan- leika.“ „Hættu að vera svona mikil dramadrottning í sjálfsvorkunn! Þú ert eini maðurinn sem ég veit um sem kemur heim úr jarðarför og öfundar líkið.“ Jarðarfararblús Heima er best © Inter IKEA System s B.V. 2020

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.