Fréttablaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 15
Þorsteinn Pálsson AF KÖGUNARHÓLI Samtök atvinnulífsins komust að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að minni þjóðarfram­ leiðsla vegna kórónaveirukrepp­ unnar hefði kippt stoðum undan rúmlega ársgömlum kjarasamn­ ingum, sem gilda eiga til 2022. Viðbrögð ríkisstjórnarinnar voru þau að sýna strax nokkrar framhaldsráðstafanir, sem hún var með á prjónunum og ráðgerði að kynna eftir nokkra daga. Þær breyta þó ekki þeim forsendu­ bresti, sem Samtök atvinnulífsins vísuðu til. Eigi að síður féllu þau frá áformum um að segja samningum upp. Forsendur og form Kjarasamningarnir í fyrra stefndu í óefni fram að falli Wow. Niður­ staðan var nær veruleikanum, en byggði samt á veikum efna­ hagslegum forsendum. Kóróna­ veiru kreppan breytti þeim síðan í grundvallaratriðum. En enginn formlegur fyrirvari var gerður vegna hugsanlegs tekjufalls þjóðar­ búsins. Á endanum er það þó alltaf verð­ mætasköpunin sem stendur undir lífskjörum, en ekki formsatriðin. Lækkun vaxta var hins vegar skrifuð sem formleg forsenda inn í samningana. En lækkuðu vextir í kjölfarið vegna þeirra eða bættrar hagstjórnar? Vextir og samdráttur Þegar samningarnir voru gerðir var samdráttur í þjóðarbúskapnum þegar byrjaður. Vaxtalækkunin var því vegna samdráttar, sem þegar var orðinn og sjá mátti fyrir að yrði enn meiri. Fyrsta vaxtalækkunin var þann­ ig afleiðing af því að ekki tókst að varðveita hagvöxtinn. Kóróna­ veiru kreppan keyrði vexti síðan enn lengra niður. Það voru ekki mistök ríkisstjórnar heldur ytra áfall. Vaxtalækkunin var þannig í báðum tilvikum eðlilegt andsvar við samdrætti, en hafði lítið með kjarasamninga að gera. Og enn síður lágu rætur hennar í bættri stjórn peningamála eða ríkisfjár­ mála. Séríslenskar búsifjar Kórónaveirukreppan hefur valdið álíka miklum samdrætti í þjóðar­ framleiðslu hjá okkur og öðrum þjóðum. Að sama skapi hefur atvinnuleysi vaxið hlutfallslega með svipuðum hætti og meðal helstu viðskiptaþjóða. En hér hefur þrennt gerst, sem aðrar þjóðir þurfa ekki að þola: Í fyrsta lagi hrundi gengi krón­ unnar um 20 prósent. Gjaldmiðlar helstu viðskiptaþjóða hafa á hinn bóginn verið nokkuð stöðugir. Í öðru lagi hefur verðbólga meira en tvöfaldast á þessu ári og er nú komin verulega yfir viðmiðunar­ mörk Seðlabankans og fer vaxandi, á meðan hún er mun stöðugri á öðrum Norðurlöndum og í Evrópu. Í þriðja lagi gerðu stjórnvöld til­ raun til að halda gengi krónunnar uppi með því að setja lífeyrissparn­ að almennings í höft. Þessi óábyrga tilraun mistókst hrapallega. En fyrir vikið bítur kreppan lífeyris­ þega meira hér en í grannlöndum. Þannig veldur krónan veru­ legum búsifjum, umfram það sem aðrar þjóðir þurfa að þola vegna kórónaveirukreppunnar. Rökin fyrir krónunni falla á ný Eina röksemdin fyrir því að halda í krónuna er sú að sjálfkrafa lækkun hennar vegna heimatilbúinna mis­ taka eða ytri áfalla styrki útflutn­ ing og komi í veg fyrir atvinnuleysi. Veruleikinn blasir nú við. Þrátt fyrir hrun krónunnar er atvinnu­ leysi það sama hér og hjá þjóðum með stöðugan gjaldmiðil. Eins var þetta í fjármálakreppunni. Rök­ semdin fellur enn á ný. Útflutningur hefur ekki aukist þrátt fyrir hrun krónunnar, vegna þess að stærsti hluti vöruút­ flutnings byggir á fullnýttum auðlindum. Gengislækkun fjölgar ekki fiskum í sjónum. Hún fjölgar heldur ekki virkjunarkostum. Eftir hrun krónunnar í fjármála­ kreppunni var útflutningshag­ vöxtur til að mynda lengur að taka við sér hér en á Írlandi, sem notar evru. Krónan veldur misskiptingu Gengishrunið nú hefur sem sagt ekki bætt hag þjóðarinnar í heild með meiri verðmætasköpun fremur en endranær. En það hefur eftir sem áður skilað útflutnings­ fyrirtækjum fleiri krónum í kassann. Gengishagnaður útflutnings­ fyrirtækja er forsendubati, sem stendur vel undir umsömdum launahækkunum þeirra. En ferðaþjónustan nýtur ekki þeirrar forgjafar núna og heldur ekki fyrir­ tæki sem nota einungis íslenskar krónur. Þannig býr krónuhagkerfið til meiri misskiptingu innbyrðis í atvinnulífinu en fyrirtæki sam­ keppnislandanna þurfa að þola. Þetta er grundvallarvandinn í þjóðarbúskapnum. Og meðan stjórnvöld vilja ekki taka á honum verður norræna vinnumarkaðs­ módelið bara draumsýn. Forsendubresturinn og krónan BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 Bílasala Reykjaness Reykjanesbæ www.bilasalareykjaness.is 419 1881 E N N E M M / S ÍA / N M 0 0 2 6 5 8 4 x a tv in n u b í a a ar e k t aa á r ii a 5 x 2 0 e t *Mánaðargeiðsla miðað við þriggja ára rekstrarleigusamning við lett.is • SMURÞJÓNUSTA • BIFREIÐAGJÖLD • TRYGGINGAR • SUMARDEKK • VETRARDEKK • 20.000 KM Á ÁRI INNIFALIÐ: ATVINNUBÍLAR Á FRÁBÆRU VERÐI Rekstrarleiga er hagkvæm og örugg. Þú velur bílinn sem hentar og greiðir fast mánaðarverð þar sem helsti rekstrarkostnaður er innifalinn. Komdu í heimsókn og reiknaðu dæmið til enda. Rekstrarleiga Leiga: 109.900 kr. án vsk.* RENAULT TRAFIC Verð 4.590.000 kr. m. vsk. Stuttur, 2000 cc dísil, beinskiptur Leiga: 226.900 kr. m. vsk.* NISSAN NAVARA Verð 8.250.000 kr. m. vsk. Acenta, 2300 cc dísil, sjálfskiptur Leiga: 88.600 kr. án vsk.* RENAULT KANGOO Verð 3.590.000 kr. m. vsk. II Express, 1500 cc dísil, beinskiptur Leiga: 79.800 kr. án vsk.* DACIA DOKKER Verð 3.150.000 kr. m. vsk. 1500 cc dísil, beinskiptur Þannig býr krónuhagkerfið til meiri misskiptingu inn- byrðis í atvinnulífinu en fyrirtæki samkeppnisland- anna þurfa að þola. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F I M M T U D A G U R 1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.