Fréttablaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 8
Könnunin var gerð
dagana 23.–28. september
2020. Hún var send til 2.500
manna könnunarhóps
Zenter rannsókna, 18 ára og
eldri. Svarhlutfallið var 51
prósent og voru svörin
vigtuð eftir kyni, aldri og
búsetu.
55%
Framsóknarmanna van-
treysta sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra mest
allra ráðherra.
Tímapantanir á opticalstudio.is
og í síma 511 5800
SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK
Sjónmælingar
eru okkar fag
Framsóknarformaður
á flugi í sínum flokki
Traust til Sigurðar Inga Jóhanns-
sonar hefur aukist verulega frá
síðustu könnun, þegar rúm tvö
prósent treystu honum best. Nú
treysta 6,2 prósent honum best.
Þá hafa kjósendur Framsóknar-
flokksins tekið formann sinn í
sátt. Í fyrra naut Lilja Alfreðs-
dóttir mun meira trausts, þegar
rúm 62 prósent flokksmanna
treystu henni best. Það traust
er nú fallið í 36,6 prósent og 40
prósent flokksmanna treysta
nú formanni flokksins best allra
ráðherra, samanborið við 15
prósent í síðustu könnun.
Traust til Lilju í Miðflokknum
hefur einnig fallið síðan í fyrra,
þegar tæpur helmingur kjós-
enda flokksins treysti henni
best. Aðeins 11 prósent þeirra
treysta henni best í dag. Þeir
ráðherrar sem kjósendur Mið-
flokksins treysta best eru Bjarni
Benediktsson (31%) og Áslaug
Arna Sigurbjörnsdóttir (25%).
Heimsfaraldur-
inn virðist hafa
töluverð áhrif
á traust til ráð-
herra en heil-
brigðisráðherra
nýtur nú meira
trausts en áður.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARIKatrín Jakobsdóttir for-sætisráðherra nýtur y f irburðatrausts í samanburði við aðra ráðherra, samkvæmt nýrri könnun sem
Zenter rannsóknir framkvæmdu
fyrir Fréttablaðið. Fylgi við hana
hefur þó ekki aukist frá síðustu
könnun blaðsins um traust til ráð-
herra, sem gerð var í júní í fyrra,
þegar hún naut fylgis 18,1 prósents
þátttakenda. Hún nýtur nú trausts
18,5 prósenta þeirra sem tóku þátt
í könnuninni. Á eftir henni koma
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra með 10,8 prósent og Lilja
Alfreðsdóttir, mennta- og menning-
armálaráðherra, með 10,7 prósent.
Niðurstöðurnar eru nokkuð frá-
brugðnar síðustu könnun sem gerð
var í júní í fyrra. Þá naut Lilja mests
trausts með 20,5 prósent. Svandís
Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra
hefur einnig rétt verulega úr kútn-
um en 7,2 prósent segjast bera mest
traust til hennar, samanborið við 3
prósent í síðustu könnun.
Stuðningur við Katrínu kemur
úr öllum áttum. Hún nýtur þó
meira fylgis meðal kvenna en karla.
Stuðningurinn er nokkuð jafn í
öllum aldurshópum, þó mestur með
þeirra yngstu og elstu. Traustið eykst
einnig með auknu menntunarstigi,
en fólk með háskólapróf er líklegast
til að treysta henni best. Hún nýtur
yfirburðastuðnings í eigin f lokki,
en 82 prósent kjósenda VG treysta
henni best allra ráðherra. Kjósendur
Viðreisnar nefna Katrínu líka oftast,
eða í 30 prósentum tilvika, og fjórð-
ungur kjósenda Samfylkingarinnar.
Svandís er þó vinsælli meðal Sam-
fylkingarfólks en 30 prósent þess
treysta henni best. Stuðningur við
Lilju meðal jafnaðarmanna hefur
hins vegar dalað síðan í fyrra.
Líkt og í fyrra treysta flestir Sjálf-
stæðismenn Bjarna Benediktssyni,
formanni flokksins, eða 51 prósent
kjósenda flokksins. Katrín Jakobs-
dóttir nýtur hins vegar meira trausts
meðal Sjálfstæðismanna en aðrir
ráðherrar f lokksins. Rúm 13 pró-
sent Sjálfstæðismanna treysta henni
best. Tæp 11 prósent þeirra treysta
Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur
best og 7,6 prósent nefndu Þórdísi
Kolbrúnu R. Gylfadóttur. Innan við 4
prósent nefndu Guðlaug Þór Þórðar-
son og Kristján Þór Júlíusson.
Formenn stjórnarflokkanna styrkjast
Formaður Framsóknarflokksins réttir úr kútnum í nýrri könnun um traust til ráðherra. Heilbrigðisráðherra nýtur einnig meira
trausts en í síðustu könnun. Menntamálaráðherra nýtur ekki sama yfirgnæfandi trausts og hún gerði í kjölfar Klausturmálsins í fyrra.
Vantraust mest í garð
fjármálaráðherrans
Þegar spurt er hvaða ráðherra
þátttakendur beri minnst
traust til er Bjarni Benediktsson
nefndur oftast allra ráðherra,
eða í 25 prósentum tilvika.
Hlutfallið er þó töluvert lægra
en í fyrra, þegar tæp 35 prósent
báru mest vantraust til hans.
Vantraust til heilbrigðisráðherra
hefur einnig minnkað umtals-
vert, en hún naut næstmesta
vantraustsins í fyrra. Í stað
hennar er Kristján Þór Júlíusson
nú næstoftast nefndur á eftir
Bjarna. Í fyrra vantreystu 8,7
prósent Kristjáni mest, en tæp
19 prósent bera minnst traust
til hans í dag.
Vantraust til Bjarna er mest
meðal þeirra sem hafa lægstar
tekjur, minnsta menntun og
tilheyra yngsta aldurshópnum,
en vantraustið til hans minnkar
með hækkandi aldri þátttak-
enda. Konur vantreysta honum
líka frekar en karlar.
✿ Hvaða ráðherra berð þú mest traust til? / Hvaða ráðherra berð þú minnst traust tli?
Katrín
Jakobsdóttir
Bjarni
Benediktsson
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Þórdís Kolbrún
R. Gylfadóttir
Guðlaugur
Þór Þórðarson
Ásmundur
Einar Daðason
Kristján Þór
Júlíusson
18,5%
5,9%
1,5%
9,4%
1,5% 2%
6,4%
18,8%
10,8%
Svandís
Svavarsdóttir
5,8%
7,2%
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
4,6%
6,3% 6,2% 4,7% 3,8% 2,3% 2% 0,8%
2019 2020
Veit ekki 23,1% 20,3%
Vil ekki svara 7,1% 6,4%
2019 2020
Veit ekki 14,5% 13,7%
Vil ekki svara 4% 3,2%n September 2020 n September 2020 n Júní 2019
M
es
t t
ra
us
t
M
in
ns
t t
ra
us
t
24,9%
Aðalheiður
Ámundadóttir
adalheidur@frettabladid.is
Lilja
Alfreðsdóttir
2,3%
10,7%
1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð