Fréttablaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 42
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@
frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Tónlistarmaðurinn ungi Haraldur Fannar hefur k veðið sér hljóðs, undir sviðsnafninu Harald, á Spotify og öllum helstu streymis-
veitum, með laginu Fullkomin.
„Þetta er fyrsta lagið á svokall-
aðri EP-plötu og það allra róleg-
asta,“ segir Harald, sem stefnir á að
fylla plötuna með fjórum lögum til
viðbótar á næstunni. „Ég er mjög
spenntur fyrir hinum lögunum
og að þau komi út af því að það er
mikið líf í þeim.“
Harald er 21 árs og kemur úr
Kópavoginum þar sem hann ólst
upp umvafinn tónlist, eins og hann
orðar það, og byrjaði snemma að
læra á hljóðfæri. Hann er jafn-
vígur á gítar og píanó og syngur
lögin sín sjálfur. Sjálfsagt má með
erfðafræðum rekja þetta að hluta
til föður hans, Arngríms Fannars,
Adda Fannars Skímó.
Gítarstrengur milli feðga
Harald segist vissulega njóta þess
að eiga „nokkra mjög sjóaða ráð-
gjafa“ að í sínum innsta hring, en
þess vegna hafi hann lagt mikla
áherslu á að finna sinn eigin hljóm
áður en hann byrjaði að gefa út,
þannig að áhrif föður hans á hann
eru helst fólgin í góðum ráðum
auk þess sem hann lagði syninum
til gítarinn sem hann samdi nýja
lagið á.
„Þetta er amerískur Fender og
er sjúklega góður,“ segir Harald og
bætir við að í hljóðfærinu, sem er
mun eldra en hann sjálfur, leynist
mikil saga. „Það eru til myndir af
pabba með þennan gítar þegar
hann er jafngamall og ég er núna.
Hann keypti hann 1996 og hefur
haldið í hann og það mætti segja
að hann sé pínu erfðagripur þann-
ig lagað og það er ekki séns að ég láti
hann frá mér. Pabbi hefur gripið í
hann þegar hann þarf en annars
hef ég fengið að hafa hann,“ segir
Harald sem hefur fengið Fenderinn
til varðveislu.
Eftirsótt eintak
„Þetta er mjög vandað eintak, Amer-
íkutýpa, og það er búið að spila hann
vel til eins og maður segir. Ég fékk
hann lánaðan hjá honum í sumar
þegar Skítamórall kom saman og
spilaði í Hörpunni,“ segir Addi Fann-
ar og staðfestir orð sonarins um að
Fenderinn sé sjúklega góður.
„Ég veit ekki alveg hversu gamall
hann er. Ég keypti hann notaðan í
Gítarnum á Laugavegi og ég frétti
seinna að annar þekktur íslenskur
gítarleikari hafi nú verið með auga-
stað á honum. En hann tafðist.
Kom við á knæpu á Laugaveginum
og náði aldrei upp í búðina. Hann
frétti svo seinna að ég hefði eignast
þennan gítar og bölvaði því mikið
að hann hefði misst af honum, en
það er nú önnur saga.“
Addi Fannar segist ekki hafa ýtt
syninum út á tónlistarbrautina þótt
hann leggi honum til hljóðfæri og
góð ráð ef svo ber undir. „Ég hef í
rauninni ekkert sérstaklega hvatt
hann til þess að feta þessa braut, en
hann hafði snemma mikinn áhuga
og vildi læra á hljóðfæri sem mér
fannst bara hið besta mál. Þannig
að hann er tónlistarskólagenginn
og lærði á klassískan gítar og píanó
og trommur.“
Stoltur pabbi
„Þetta lag er samið á þennan gítar
og í raun tekið allt upp á hann líka,“
segir Harald um frumraunina Full-
komin, sem hann lýsir sem uppgjöri
við ástina og fortíðina. „Þetta eru í
rauninni bara vangaveltur í huga
ungs manns og þegar maður rýnir
inn í þögnina og hlustar á hjartað
þá er þetta eitthvað sem kemur út
frá því.
Lagið sjálft er samið um það sem
er í gangi og ég held að manneskjan
sem lagið er samið um hafi ekki hug-
mynd um að lagið er samið um sig,“
segir Harald og gerist nokkuð leynd-
ardómsfullur þegar hann er spurður
hvort hann sé ekki fullungur til þess
að gera upp við ástina og fortíðina.
„Ég er mjög stoltur og hann hefur
algerlega gert þetta á sínum forsend-
um og með sínum hætti. Mér finnst
eðlilegt að vera ekkert að skipta mér
of mikið af,“ segir Addi Fannar, sem
heyrði Fullkomin fyrst þegar loka-
útgáfan var tilbúin.
„Hann er búinn að leyfa mér að
heyra ýmislegt meira sem hann er
með í bígerð og mér líst mjög vel
á bæði þetta lag og það sem mun
koma í framhaldinu. Hann er bara
svolítið með þetta strákurinn.“
toti@frettabladid.is
Sögulegur Fender
tengir tónlistarfeðga
Fyrsta lag tónlistarmannsins unga Haraldar Fannars er komið á
Spotify, en lagið samdi hann á „sjúklega góðan“ Fender, sögulegan
gítar sem pabbi hans er búinn að spila vel til með Skítamóral.
4. okt. kl. 20.00
Flóa, Hörpu
Stjórnandi: Samúel J Samúelsson
ÍSLENSKI
KATALÓGURINN
Harald, Haraldur Fannar, með Fender Telecaster erfðagripinn sem hann samdi lagið Fullkomin á, en eftir alls
konar tilraunir er hann búinn að finna tóninn sem hann er tilbúinn til að deila með öðrum. MYND/ ÓLÖF ERLA
Addi Fannar í ham með Fenderinn á Þjóðhátíð 2009. MYND/ SIGURJÓN RAGNAR
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................
Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
PREN
TU
N
.IS
Þessa vöru þarf að sérpanta. S. 561 1433
Netfang: bjornsbakari@bjornsbakari.is
1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R28 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð