Fréttablaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 6
Eyrnamerkingin er
til að þvinga okkur
feðurna til að taka fæðingar-
orlof, því reynslan hefur
sýnt að annars er
það ekki gert.
Ásmundur Einar
Daðason, félags-
og barnamálaráð-
herra
BJÓÐUM UPP Á
35” - 40” BREYTINGARPAKKA
FRÁ ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI ÍSBAND
EIGUM FLESTAR GERÐIR TIL
AFHENDINGAR STRAX
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.547.906 KR. ÁN VSK.
9.359.403 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
HEILBRIGÐISMÁL Fjáröf lun fyrir
nýjum bíl Frú Ragnheiðar, skaða
minnkunarverkefnis Rauða kross
ins, hófst í dag og mun standa yfir
í viku. Verkefnið fagnar ellefu ára
afmæli 8. október.
Elísabet Brynjarsdóttir, hjúkr
unarfræðingur og verkefnastýra,
segir markmiðið að safna tíu millj
ónum króna, sem er kostnaðurinn
við nýjan bíl. Núverandi bíll er
orðinn úr sér genginn og er keyrður
rúmlega 340 þúsund kílómetra. Frú
Ragnheiður er sérútbúinn bíll þar
sem jaðarsettum einstaklingum
er veitt heilbrigðisþjónusta og er
óhætt að segja að verkefnið hafi
stækkað töluvert síðastliðin ár. Í
fyrra þjónustaði verkefnið til að
mynda 519 einstaklinga.
Að sögn Elísabetar er bíllinn
hjarta verkefnisins og mikið lagt
upp úr því að halda þjónustunni
óskertri. „Þess vegna skiptir það
svona miklu máli fyrir okkur að
geta fengið þennan nýja bíl.“
„Þetta er sjálfboðaliðaverkefni og
við leitum á náðir almennings til að
aðstoða okkur,“ segir Elísabet.
Þeir sem vilja leggja söfnuninni
lið geta sent skilaboðin TAKK í
síma númerið 1900 og lagt þar með
2.900 krónur til söfnunarinnar.
Frekari upplýsingar um söfnun
ina og starfsemi Frú Ragnheiðar má
finna á frettabladid.is. – fbl
Þurfa nýjan bíl til að halda Frú Ragnheiði gangandi
Úrræðið Frú Ragnheiður fagnar
ellefu ára afmæli í næstu viku.
DÓMSMÁL Aðalmeðferð í máli Kára
Orrasonar, 22 ára Reykvíkings, fór
fram í Héraðsdómi Reykjavíkur
í gær. Kára er gefið að sök að hafa
óhlýðnast fyrirmælum lögreglu í
anddyri dómsmálaráðuneytisins í
apríl í fyrra, er hann tók þátt í mót
mælum samtakanna No Borders,
sem kröfðust fundar með ráðherra
um málefni hælisleitenda.
Tekist var á milli verjanda og
fulltrúa ákæruvalds um hvort mót
mælin gætu talist friðsöm eða ekki,
notuðu mótmælendur trommur en
beittu ekki of beldi. Þá greindi þá
einnig á um hvort Kári hefði haft
tækifæri til að bregðast við fyrir
mælum lögreglu fyrir handtöku.
Helgi Þorsteinsson, verjandi Kára,
sagði að lögregla hefði verið með
það að markmiði að „kenna þeim
lexíu“, þar sem önnur úrræði hefðu
staðið þeim til boða en að handtaka
mótmælendurna.
Þá sagði stjórnandi á vettvangi
að hópurinn hefði mótmælt á sama
hátt nokkra daga á undan, í þetta
skiptið hefði verið ákveðið að hand
taka og ákæra þá sem færu ekki
eftir fyrirmælum. Dómari stöðvaði
spurningar sem sneru að því hvaða
ákvarðanir hefðu verið teknar fyrir
handtökurnar.
Sjö lögreglumenn báru vitni og
voru sammála um að mótmælend
urnir, sem sátu á gólfi anddyrisins
með hendur hlekkjaðar saman,
hefðu ítrekað verið beðnir um að
fara. „Þetta var marg ítrekað eins og
alltaf. Ég hef verið sakaður um að
vera eins og biluð grammófónplata,“
sagði stjórnandi á vettvangi.
Vitni verjanda, sem var í anddyr
inu til að sýna samstöðu með mót
mælunum, sagði að lögreglumenn
hefðu verið fullir af heift.
Kári neitaði sök og sagði að hann
og aðrir mótmælendur hefðu verið
beðnir um að fara, en lögregla
beðin um að útskýra fyrirmælin
á ensku. Þá hefði ekki gefist mikill
tími til að fara eftir fyrirmælunum.
Farið er fram á að Kári greiði 10
þúsund króna sekt, verjandi segir
að verði Kári dæmdur sekur séu
þeir fimm klukkutímar sem hann
var í haldi lögreglu næg refsing. – ab
Deilt um hvort
mótmæli hafi
verið friðsöm
Kári Orrason í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STJÓRNMÁL „Þegar feður hafa orðið
afar og fara að passa barnabörnin,
þá eru margir sem segjast hafa upp
götvað hvað þeir misstu af, að hafa
ekki tekið meiri þátt í lífi barnanna
þegar þau voru lítil. Þessu vil ég
breyta,“ segir Ásmundur Einar
Daðason, félags og barnamálaráð
herra.
Í gær höfðu meira en hundrað
umsagnir um fyrirhugað frum
varp hans um breytingar á lögum
um fæðingarorlof borist inn í sam
ráðsgátt stjórnvalda. Lögum um
fæðingarorlof var breytt í fyrra, fær
hvort foreldri um sig fjóra mánuði
auk tveggja mánaða sameiginlega.
Um áramótin, ef lögunum verður
ekki breytt, verða sameiginlegu
mánuðirnir fjórir, alls 12 mánuðir.
Með þessum lögum fær hvort for
eldri sex mánuði, en heimilt verður
að færa einn mánuð á milli.
Frumvarpið byggir á tillögum
samstarfshóps sem skipaður var í
fyrra til að vinna að heildarendur
skoðun laga um fæðingar og for
eldraorlof. Í greinargerð segir að
með breytingunum verði feður í
sterkari stöðu gagnvart atvinnu
rekendum þegar kemur að nýtingu
fæðingarorlofsréttar. Þá megi ætla
að feður muni taka meiri þátt í
umönnun barna sinna en ella. Fyrir
komulagið ryðji jafnframt úr vegi
eldri viðhorfum um að faðirinn beri
alfarið eða meginábyrgð á efnahag
heimilisins með tekjuöflun sinni.
„Þegar fæðingarorlofslögin voru
sett á fyrir 20 árum þótti asna
legt að feður tækju fæðingarorlof.
Löggjöfin hefur alla tíð verið gerð,
meðal annars, til að ná fram sam
félagsbreytingum. Núna er verið
að stíga skref, byggt á rannsóknum,
enn frekar í þá átt að tryggja að
feður taki frekar þátt í fyrstu vikum
og mánuðum í lífi barnsins,“ segir
Ásmundur Einar. „Þetta skiptir máli
fyrir barnið, föðurinn og jafnrétti,
til lengri tíma litið. Eyrnamerkingin
er til að þvinga okkur feðurna til að
taka fæðingarorlof, því reynslan
hefur sýnt að annars er það ekki
gert.“
Í mörgum umsögnunum er rætt
um brjóstagjöf, en talað er um í leið
beiningum frá Embætti landlæknis
að börn eigi að vera á brjósti fyrsta
árið. Ásmundur Einar segir að þetta
sé eitt af þeim atriðum sem þurfi
að skoða. „Miðað við hvað nefndin
leggur til, og við setjum í raun frum
varpið óbreytt inn í samráðsgátt
stjórnvalda, þá teljum við að þetta
eigi ekki að hafa neikvæð áhrif til
atvinnuþátttöku, vegna þess að
rannsóknir sýna að engin tengsl
eru á milli lengdar brjóstagjafar og
hvenær mæður fara aftur til vinnu,“
segir hann. „Frumvarpið er í sam
ráðsgátt einmitt til að fá fram þessi
sjónarmið, síðan tökum við púlsinn
áður en það fer til þingsins.“
Snert er á mörgum atriðum í
frumvarpinu, réttindi einstæðra for
eldra eru aukin, í tilfellum þar sem
annað foreldri er í nálgunarbanni og
þegar börn eru ekki feðruð.
Einnig stendur til að stytta tíma
bil fæðingarorlofs úr 24 mánuðum
niður í 18 mánuði og er miðað við
að börn verði komin í dagvistun.
Þó eru dæmi þess nú í haust að börn
fái ekki dagvistun fyrir tveggja ára
aldur.
„Við gerum þetta á þeim grunni
að það séu sem mest tengsl á fyrstu
vikunum og mánuðunum, það
er gríðarlega mikilvægt,“ segir
Ásmundur Einar. „Það er breytilegt
á milli sveitarfélaga hversu vel þeim
hefur gengið að brúa bilið. Það hefur
tekist í meirihluta sveitarfélaga, en
það hefur reynst meiri áskorun hjá
öðrum. Það er metnaður til þess,
og við verðum að hvetja til þess að
sveitarfélögin geri það.“
Ásmundur Einar segir ríkið hafa
stigið myndarlega inn á þessu kjör
tímabili hvað varðar fæðingarorlof.
„Við erum búin að hækka og lengja
greiðslur. Heildargreiðslur sem
renna til fæðingarorlofs hafa hækk
að í 10 milljarða á ári. Þegar allt er
komið í gagnið hækka þær upp í 20
milljarða á ári. Það er ástæða til að
hvetja sveitarfélög til þess að koma
af metnaði inn í þetta verkefni líkt
og ríkið.“
Miðf lokkurinn hefur lýst yfir
andstöðu við breytingarnar. Það
hefur Vilhjálmur Árnason, þing
maður Sjálfstæðisflokksins, einnig
gert. Hefur hann talað um að lögin
feli í sér forræðishyggju og skerði
frelsi fjölskyldna.
Ásmundur Einar segir að því verði
velt upp áður en frumvarpið verður
lagt fram, hvort og með hvaða hætti
verði hægt að koma til móts við
sjónarmiðin sem komið hafa fram.
„Ég á ekki von á því að hægt sé að
samræma sjónarmið allra f lokka
á Alþingi. Sumir vilja hafa þetta
algjörlega frjálst á meðan hér er bent
á jafnréttissjónarmiðin og mikil
vægi feðra. Það er tekið á mikil
vægum málum í þessu frumvarpi
og það yrði mikil synd ef það færi
ekki í gegnum þingið, það verður
hins vegar að koma í ljós.“
arib@frettabladid.is
Tryggja að feður taki þátt
Skiptar skoðanir eru um frumvarp um breytingar á fæðingarorlofi. Ásmundur Einar Daðason, félags- og
barnamálaráðherra, segir mikilvægt að börn myndi tengsl við báða foreldra þegar þau eru sem yngst.
Samkvæmt nýju frumvarpi Ásmundar Einars munu mæður og feður fá
hvort um sig sex mánuði í fæðingarorlof. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
1 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð