Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Síða 4
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Smit í landsliðinu
Í vikunni bárust fréttir af því að smit hefði komið upp í innsta
hring landsliðsins. Samkvæmt fyrstu fréttum var um að ræða
starfsmann karlalandsliðsins í fótbolta. Kom síðar í ljós að
um væri að ræða Þorgrím Þráinsson, rithöfund og afreks-
íþróttamann. Þorgrímur sagðist vera einkennalaus og frískur.
Síðar reyndist þörf á að senda tvo úr liðinu í sóttkví auk allra
starfsmanna liðsins. Liðið mætti Belgum á Laugardalsvelli
á miðvikudaginn og komu ófarirnar ekki í veg fyrir glæsta
frammistöðu þó að liðið hafi tapað 2-1.
Manntjón í húsbílsbruna á Suðurlandi
Síðastliðinn laugardag bárust fréttir um húsbílsbruna í Grafn-
ingi við bakka Sogsins en ekki væri vitað hvort einhver hefði
verið í bílnum. Seinna sama dag bárust þau sorgartíðindi að
maður hefði látist í brunanum. Á sunnudagsmorgun birtust
svo fréttir af því að Neyðarlínu hefði borist tilkynning um
mikinn eld á svæðinu. Vegna galla í tölvukerfi Neyðarlínunnar
komst tilkynningin aldrei til lögreglu. Oddur Árnason yfirlög-
regluþjónn sagði við tækifærið að þó yfirgnæfandi líkur væru
á því að örlög Einars hefðu þegar verið ráðin þegar tilkynn-
ingin barst, væri tölvugallinn hið versta mál.
Ekkert lát á þriðju bylgju COVID
Þriðja bylgja COVID-19 faraldursins hélt áfram í vikunni og
greindust á fimmta hundrað innanlandssmit síðastliðna viku.
Virk smit eru nú orðin fleiri en þau voru í fyrstu bylgjunni, þó
færri séu á sjúkrahúsi. Reglugerð um sóttvarnaaðgerðir, þar
sem samkomur fólks eru meðal annars takmarkaðar, rennur
út í næstu viku og von er á minnisblaði sóttvarnalæknis á allra
næstu dögum. Nýgengi smita er nú eitt það hæsta í Evrópu,
eða um 270. Í byrjun september var það í kringum 15. Lægst
fór það í 0,5.
„Hvar er nýja stjórnarskráin?“
Á mánudagsmorgun blasti við starfsfólki Sjávarútvegshússins
nýtt listaverk á veggnum sem teygir sig út úr suðvesturgafli
hússins yfir á bílastæði ráðuneytanna sem þar eru. Hafði
hópur fólks tekið sig saman og málað „Hvar er nýja stjórnar-
skráin?“. Það vakti undrun og athygli margra þegar skila-
boðin voru þvegin af samdægurs, þó veggjakrotið sem fyrir
var hefði fengið að standa í mörg ár. Daginn eftir hófust svo
listamenn handa við endursköpun verksins á trévegg um 50
metrum frá nýþrifna steinveggnum.
Frumvarp um mannanafnanefnd
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra mælti fyr-
ir frumvarpi um mannanöfn.
Leggur hún þar til talsverða
rýmkun á reglum um manna-
nöfn frá núgildandi lögum.
Stærsta breytingin verður að
nefndin sjálf verður lögð niður
og hluti verkefna hennar færð
yfir til Þjóðskrár. Í Twitter-
færslu um frumvarpið sagði
Áslaug: „Frelsi til að bera það nafn sem þú kýst, að taka upp
nýtt ættarnafn og engin hámörk á fjölda nafna.“ Þar auglýsti
hún jafnframt eftir reynslusögum fólks sem óánægt væri við
núverandi kerfi.
Ósætti í fjölskyldu hins myrta
Heiða Þórðar, systir bræðranna Gísla Þórs Þórarinssonar og
Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, steig fram með þungar ásak-
anir í viðtali við dv.is. Réttarhöld standa yfir yfir Gunnari sem
varð bróður sínum að bana vorið 2019. Heiða telur verknaðinn
hafa verið slys en segir öll systkini sín þrjú auk barnsmóður
sakborningsins vilja að Gunnar fái sem þyngstan dóm. Enn
fremur krefst hún þess að fá upplýsingar um söfnun vegna
andláts Gísla sem og um erfðamál hans og líftryggingu.
1 Katrín Björk gerði samanburð á verði matvöruverslana – Niður-
staðan kom henni á óvart Katrín
Björk Birgisdóttir gerði óformlegan
samanburð á Krónunni, Nettó og
Bónus. Verðmunurinn reyndist minni
en hún reiknaði með.
2 Ranghugmyndir sagðar á sveimi um manninn sem lést í
húsbílsbrunanum Einar Jónsson
lést ásamt hundum sínum þegar
húsbíll hans brann í Árnessýslu.
Margir héldu að hann hefði verið
utangarðsmaður en það er ekki rétt.
3 Leit á stjúpföður sinn sem pabbann sem hún átti aldrei
– Þar til hún gerði skelfilega upp-
götvun Lauren Brightwood komst
að því að stjúpfaðir hennar myndaði
hana þegar hún var i baði.
4 Missti eiginmann og stjúp-dætur fyrir 10 árum – VÍS segir
konuna vera að ljúga dauða þeirra
og neitar að borga Íslensk kona
fær ekki bætur úr tryggingum því
tryggingafélagið trúir ekki að eigin
maður hennar og stjúpdætur séu
látin.
5 Heiða krefst svara og segir að systkini hennar standi öll gegn
Gunnari – „Mér finnst þetta ofboðs-
lega særandi“ Heiða Þórðar greinir
frá erfiðum fjölskylduerjum eftir
að bróðir hennar, Gunnar Jóhann
Gunnarsson, banaði öðrum bróður
þeirra í Noregi í fyrra.
6 14 ára stúlka tók líklega mynd af morðingja sínum – Enginn
veit hver hann er Vinkonurnar
Liberty German og Abigail Williams
voru myrtar í Bandaríkjunum árið
2017. Önnur þeirra náði mynd af
morðingjanum og birti á Snapchat
en hann hefur enn ekki fundist.
7 Heitir og hæfileikaríkir á lausu DV tók saman lista yfir nokkra
efnilega piparsveina á Íslandi.
8 Vikan á Instagram – „Það eru kannski milljón fiskar í sjónum
en ég er hafmeyja“ Vikan á Insta
gram er fastur liður á dv.is á mánu
dögum og nýtur mikilla vinsælda.
RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR / MORGUNBLAÐIÐ
„Bráðskemmtileg lesning.“
SUNNA DÍS / KILJAN
„... þessi ofgnótt og gleði sem einkennir
Ófeig. Hún er svo skemmtileg.“
ÞORGEIR TRYGGVASON / KILJAN
Stórskemmtilegt og fyndið verk úr frjóum
sagnaheimi Ófeigs Sigurðssonar.
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–16
4 FRÉTTIR 16. OKTÓBER 2020 DV