Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR 16. OKTÓBER 2020 DV
GLERAUGUN VORU TUGUM ÞÚSUNDA ÓDÝRARI
167 ÞOTUR AF HESTUM ÚR LANDI
N eytendavakt DV fékk ábendingu um góð kaup í gleraugnamálum þar
sem lesandi nokkur sparaði
tugi þúsunda.
„Mér var bent á Costco af
samstarfskonu minni en ég
var á leið að kaupa 70 þúsund
króna gleraugu og margskipt
gler í þau fyrir 120 þúsund í
gleraugnabúð í Reykjavík.
Samtals 190 þúsund,“ segir
lesandinn alsæll með kaupinn.
Konan sem um ræðir,
sló því til og fór í Costco og
segist hafa pantað sér tvenn
gleraugu. „Ég var að fá gler-
augun bæði og finnst þau bara
harla góð. Það tók 10 daga að
fá glerin eftir að ég keypti
DV fylgist gjarnan með góðum
tilboðum og verðlagsþróun. Virkt
eftirlit í neytendamálum stuðlar
að bættum hag heimilanna.
umgjarðirnar en fólk þarf
að huga að því að panta sjón-
mælingu í versluninni áður.
Ég fékk góða þjónusta í Costco
og allt gekk vel og hratt fyrir
sig.“
Hún segist hafa endað á
að kaupa tvenn gleraugu.
„Ég borgaði síðast fyrir
gleraugna umgjörð, venju-
legt sjóngler við nærsýni og
mælingu um 120 þúsund fyrir
þremur árum í gleraugnabúð
í Reykjavík. Í Costco voru
önnur glerin margskipt en hin
venjuleg við nærsýni en sam-
tals borgaði ég 103.400 fyrir
tvö pör, Prada-umgjörðin
kostaði 29.900 krónur.“
Hún tekur þó fram að lík-
lega sé meira úrval í hefð-
bundnum gleraugnabúðum á
höfuðborgarsvæðinu. n
Gleraugna-
salan í Costco
er vinsæl og
margir hafa
gert þar góð
kaup.
MYND/
COSTCO.COM
ÓDÝRT Í COSTCO
Hér má sjá afrit af kvittunum úr
Costco fyrir gleraugunum. Þau
fyrri kostuðu 42.800 krónur, þar af
kostaði Prada-umgjörðin 29.900.
Margskiptu gleraugun kostuðu
alls 60.600 krónur.
Ritstjórn
dv@dv.is
Fyrirtækið Hestvit tilkynnti í
vikunni að það hefði flutt út
tíuþúsundasta hestinn sinn á
sínum ferli. Fyrirtækið er í eigu
hjónanna Huldu Gústafsdóttur
og Hinriks Bragasonar og hefur
veiran lítil áhrif á eftirspurnina.
Þ au hjónin hafa síðan árið 1989 staðið að út-flutningi hesta og stofn-
uðu utan um þann rekstur
fyrirtæki árið 2003. Sjá þau
nú um að kaupa hesta innan-
lands til útflutnings, sem og
að rækta þá til útflutnings
auk þess að flytja út hross
sem aðrir hafa selt. Árið 2019
flutti fyrirtækið út 653 hesta
og stefnir í að sú tala hækki
enn árið 2020 og því ekki að
sjá að COVID sé að hafa nei-
kvæð áhrif á þau millilands-
viðskipti eins og svo mörg
önnur. Hjá fyrirtækinu starfa
börn þeirra Huldu og Hinriks
og tengdadóttir.
„COVID er ekki að setja
strik í reikninginn hjá okkur.
Það mætti meira að segja
segja að COVID sé að hafa
þveröfug áhrif á útflutninginn
og sala hesta bara nokkuð góð
núna á þessu ári,“ sagði Hulda
í samtali við blaðamann DV.
Sagði hún að hugsanleg skýr-
ing á því væri að fólk hefði ef
til vill meira milli handanna
enda væri peningum ekki eytt
í ferðalög á meðan.
Útflutningi fylgir
mikið tilstand
Á hljóðinu í Huldu að dæma
er ljóst að hún nýtur sín vel
í þessum bransa og er stolt
af því sem hún er að selja:
„Íslenski hesturinn er fyrir
löngu búinn að vinna sér inn
sérstöðu og er mjög vinsæll til
dæmis í Þýskalandi. Hestarn-
ir okkar eru einstakir, gang-
tegundirnar, töltið og skeiðið
og karakterinn þeirra, þeir
eru svo ljúfir og góðir,“ út-
skýrir hún.
Að flytja út hest fylgir
mikið tilstand, enda um 350
kílóa lifandi veru að ræða.
Fyrst þarf að sækja hestinn
og koma honum til dýralækn-
is sem fyllir út nauðsynlega
pappíra sem fylgja hestinum
út, svokallað vegabréf, auk
þess sem dýralæknirinn vott-
ar að hesturinn sé heilbrigður
og hafi heilsu í ferðalagið. Að
því loknu fer hesturinn til
Keflavíkur, en þeir eru allir
fluttir utan með flugi. Hestun-
um er í Keflavík komið fyrir
í sérstökum fluggámum sem
rúmast í Boeing 757 frakt-
flutningavélar Ice landair. Þar
hitta hestarnir jafnframt um-
sjónarmann hestaflutninga
hjá Icelandair sem flýgur með
hestunum út.
167 fullar þotur
Fullhlaðinn rúmar Icelandair
þota heila 60 hesta, og reikn-
ast Huldu þannig til að um
sé að ræða 167 fullar frakt-
flutningavélar Icelandair sem
Hestvit hefur flutt út í gegnum
árin. Hestarnir sem Hestvit
selur til útlanda eru, að sögn
Huldu, á breiðu verðbili. „Þeir
byrja í svona fjögur til fimm
hundruð þúsundum en geta
farið í margar milljónir. Þar
vegur auðvitað þyngst gæði
hestsins, það er að segja gang-
tegundirnar, hvað hann lyftir
fótunum hátt til dæmis, eða
hvort hann henti í keppni eða
bara sem reiðhestur,“ útskýrir
hún.
Aðspurð hverjir það eru
sem kaupi sér íslenska hesta
segir Hulda það vera „alls
konar fólk“ og tekur fyrir það
að þetta sé yfirstéttarsport.
„Nei, þetta er ekki ódýrt sport,
vissulega, en þetta er ekki það
dýrasta heldur, hvorki hérna
heima né í Evrópu.“ Hér heima
leggja um 20-30 þúsund manns
stund á íþróttina. „Við erum
þriðja stærsta sportið í ÍSÍ á
eftir fótboltanum og golfinu,“
segir Hulda. n
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
Íslenski hesturinn er eftirsóttur í Þýskalandi. MYND/VALLI