Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Side 8
AUGLÝSINGASTOFUKAPALL,
ÞROTABÚ OG ENDURLÍFGANIR
Ófáar auglýsingastofur róa nú lífróður í ljósi þess að allflest fyrir-
tæki eru að draga saman seglin. Valgeir Guðmundur Magnússon,
stjórnarformaður PIPAR/TBWA, segist brattur og vitneskjan um
tímabundna kreppu setji annan tón en í síðustu fjármálakreppu.
U m síðustu mánaðamót var ein stærsta aug-lýsingastofa landsins,
Íslenska auglýsingastofan,
tekin til gjaldþrotaskipta.
Missir langtímaviðskipta við
Icelandair og kórónuveirufar-
aldurinn voru á meðal helstu
ástæðna þess að svo illa fór
fyrir þessu gróna fyrirtæki.
Þormóður Jónsson, fyrrver-
andi eigandi auglýsingastof-
unnar Fíton, keypti vörumerki
og eignir Íslensku auglýsinga-
stofunnar í síðustu viku ásamt
syni sínum Baldvini og hyggst
hnoða lífi í stofuna. Þetta
gerist í sömu viku og fyrr-
verandi stórveldi Þormóðs er
tekið til gjaldþrotaskipta sam-
kvæmt úrskurði héraðsdóms
frá 7. október síðastliðnum.
Eigendur Fíton í dag eru sam-
kvæmt fyrirtækjaskrá Guð-
mundur Hrafn Pálsson og Val-
geir Guðmundur Magnússon.
Valgeir og Guðmundur eru
einnig eigendur auglýsinga-
stofunnar PIPAR/TBWA.
Núll kennitala
PIPAR/TBWA, Fíton, vef-
stofan Skapalón, framleiðslu-
fyrirtækið Miðstræti og ráð-
gjafarfyrirtækið Kansas
sameinuðust í janúar árið 2014
undir nýju nafni; Janúar. Sex
mánuðum síðar var Janúar
brotinn upp á ný og eftir stóð
PIPAR\TBWA.
Virðisaukaskattsnúmer Fí-
ton ehf. var þó ekki afskráð
fyrr en í mars 2019 og áfram
voru gerðir ársreikningar
fyrir kennitöluna og skilað
inn á ári hverju. Eins hefur
auglýsingamiðlunin GT8 ehf.
verið lýst gjaldþrota, en sú
kennitala er einnig í eigu Val-
geirs og Guðmundar. Áður hét
félagið Auglýsingamiðlun ehf.
og var starfsemi þess tengd
rekstri Fíton ehf. og sá Aug-
lýsingamiðlun um birtingar-
mál fyrir Fíton. Aðspurður
um gjaldþrotið segir Valgeir
að Fíton-kennitalan hafi orðið
eftir, eftir sameiningu og eng-
inn rekstur á henni síðan 2014.
„Þetta er í raun bara núll
kennitala sem lifði áfram.“
Engar uppsagnir
Aðspurður um stöðu aug-
lýsingamarkaðsins á Íslandi
segir hann: „Þetta er auðvitað
erfiður bransi núna, nánast
allir bransar nema spritt-
brúsabransinn eiga í erfið-
leikum,“ segir Valgeir, í góð-
látlegu gríni. „Það er auðvitað
samdráttur í okkar bransa.
Talsvert mikill, og við verðum
að mæta því með alls konar
ráðum. Hlutabótaleiðin hefur
hjálpað okkur mikið og tókst
okkur að forðast uppsagnir.“
Valgeir segir PIPAR/TBWA
ekki hafa þurft að segja
neinum upp. „Við tímdum
ekki að eyðileggja þetta góða
teymi sem við vorum búin að
byggja upp. Við vorum með
frábært teymi sem var að
vinna fyrir ferðabransann
mikið og þó ferðabransinn
sé svo til horfinn þá tímdum
við ekki að eyðileggja það. Ef
við hefðum farið í uppsagnir
hefði teymið bara eyðilagst
og við bara tímdum því ekki.
Í staðinn fundum við talsvert
af erlendum verkefnum fyrir
þessi teymi. Það hefur svo
líka hjálpað til að þau verkefni
skila tekjum í erlendum gjald-
eyri og þegar krónan gefur
eftir eykst framlegð þeirra
verkefna á móti.“
September ágætur
Aðspurður af hverju fyrstu
viðbrögð fyrirtækja við
kreppu séu gjarnan að skera
niður í sölu- og markaðsstarfi
svarar Valgeir að það sé ein-
faldlega auðveldara. „Það er
svo sársaukafullt að segja
upp fólki, og svona verkefnum
eins og við erum að sinna er
gjarnan úthýst, einmitt til
okkar, svo það er talsvert
auðveldara að skera niður
kostnað þar, með því að segja
upp samningum.“
Hann segir það þó ekki allt-
af rétta ákvörðun að stoppa
allt markaðsstarf þó í harð-
bakkann slái. „Auðvitað eru
bransar eins og ferðabransinn
sem eru að slökkva á öllum út-
gjöldum enda tekjur sama sem
engar, og það skilur maður.
En aðrir, og um þetta eru mý-
mörg dæmi í markaðssögunni,
ættu að vera að nýta tímann
í ládeyðunni og halda dampi í
markaðsstarfi og þegar hlutir
fara í gang aftur hafa þau
fyrirtæki náð til sín verulegri
markaðshlutdeild.
Ég myndi giska á í heild að
auglýsingabransinn hafi farið
niður um 30 prósent. Stærri
verkefni í ferðabransanum
eru horfin, en önnur minni
komin í staðinn. September
var til dæmis ágætis mán-
uður, og það var fyrsta alvöru
batamerki frá því í mars, en
svo komu þessar takmarkanir
aftur.“
Tímabundin kreppa
„Þessi kreppa er öðruvísi
en fyrri kreppur að því leyti
að maður finnur að fólki
finnst að þetta verði tíma-
bundið ástand. Í síðustu stóru
kreppu var minni meðvitund
um að þetta væri tímabundið
ástand, og það er þá hvati
fyrir fyrirtæki að vilja ekki
missa markaðshlutdeildina.
Það sem er einnig öðruvísi
núna er að það er meiri hegð-
unarbreyting í samfélaginu
og að fyrirtæki eru á fullu
að reyna að eltast við þessar
hegðunarbreytingar og það
kostar auðvitað tíma, og nú
ættu fyrirtæki að fjárfesta í
þannig verkefnum.“
Valgeir segist nokkuð
brattur þrátt fyrir kófið og
að fyrirtækið sé ekki komið
að þolmörkum. Þrot Fíton sé
enginn vísbending um slíkt.
„Nei, nei, nei, við lifum þetta
af. Við erum ekki að fara
neitt. Okkur hefur tekist að
vinna þetta ár án þess að vera
að tapa peningum.“
Aðspurður um hvernig
honum lítist á að fyrrverandi
samstarfsmaður hans Þor-
móður sé aftur á leiðinni í
auglýsingabransann segir
hann: „Ég vona bara að þeim
gangi vel. Það eru tækifæri í
því þegar maður er að byrja
eitthvað alveg frá grunni eins
og þeir eru að gera, að hugsa
hlutina frá grunni og skipu-
leggja sig. Það gæti komið
eitthvað skemmtilegt út úr
því.“ n
Valgeir
hefur starfað
í auglýsinga-
bransanum í
áratugi.
MYND/GVA
Ég myndi giska á
í heild að aug-
lýsingabransinn
hafi farið niður
um 30 prósent.
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
8 FRÉTTIR 16. OKTÓBER 2020 DV