Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Qupperneq 25
FÓKUS 25DV 16. OKTÓBER 2020
Fitjið upp 47 lykkjur á prjóna nr. 5
með Merino Sport frá Katia. Ég mæli
með að prjóna smekkinn á hring-
prjón (lengd skiptir ekki máli). Prjónið
tvær umferðir skv. mynsturmynd án
útaukninga og mynsturs (tvær fyrstu
umferðirnar í mynsturmynd) með I-
cord kanti.
Kantarnir á smekknum eru I-cord,
www.bit.do/i-cord4. Þá eru fyrstu
2 lykkjurnar í hverri umferð alltaf
prjónaðar slétt og 2 síðustu lykkj-
urnar í hverri umferð eru teknar
óprj ónaðar með bandið fyrir framan
eða að þér.
Hér að ofan eru mynsturmyndir af
annars vegar poppi og hins vegar
garðaprjóni. Veldu annað hvort
mynstrið og prjónaðu eftir mynstur-
mynd (ath. að mynstur byrjar neðst á
mynd eða í umferð 1).
Þegar mynstri er lokið eru lykkjurnar,
sem eftir eru á prjóninum felldar af
með sléttu prjóni, á réttunni.
Upptaka á lykkjum efst á smekk
Til þess að endinn eða kanturinn,
sem kemur við háls barnsins, verði
fallegur þarf að prjóna upp þessar 47
lykkjur, sem fitjaðar voru upp í byrjun.
Prjónið þær upp á röngunni með
sléttu prjóni (ein umferð) og fellið
þær af á réttunni í næstu umferð á
eftir. Þegar fellt er af eru prjónaðar
þrjár fyrstu lykkjurnar og þær settar
á hjálparband eða nælu (ég hef líka
sett prjónamerki í þær og geymt þær
þannig). Fellið svo af út umferðina
þar til 3 lykkjur eru eftir. Skiptið yfir í
tvo sokkaprjóna nr. 5.
Þessar lykkjur, sem þið geymduð
hér á undan, prjónið þið svo áfram
með I-cord snúruprjóni – www.bit.
do/i-cord5 – alls 25 sm langa snúru.
Þegar réttri lengd er náð er fellt af
með sléttu prjóni. Þegar því er lokið
þarf að setja hinar þrjár lykkjurnar,
sem þið geymduð á nælu, á sokka-
prjón og prjóna I-cord snúru þar líka,
í sömu lengd. Hér að ofan eru myndir
til útskýringar.
Frágangur
Gangið frá öllum endum, skolið úr
smekknum í höndum eða í vél, vindið
og leggið á handklæði og látið þorna.
Ef smekkurinn er prjónaður úr upp-
gefnu garni má hann fara í bæði
þvottavél og þurrkara.
Garðaprjón (slétt prjón á réttu og röngu)
Taka 2 lykkjur af óprjónaðar eins og eigi að prjóna þær slétt (eina lykku í einu), prjónar þær saman slétt (e. SSK)
Prjóna 2 lykkjur saman slétt
Popplykkjur - Prjóna 8x sömu lykkjuna (framan og aftan í hana til skiptis). Steypið svo lykkju nr. 2 yfir lykkjur nr. 1 þar til ein lykkja er eftir á prjóninum.
I-cord lykkjur
MYNDIR/AÐSENDAR