Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Page 32
Snittubrauð fyllt með tómötum, hvítlauk og basilíku
1 stk. snittubrauð
1 stk. hvítlauksgeiri
1 stk. tómatur
Handfylli af ferskri basilíku
2 msk. smjör
Rifinn ostur
Gróft sjávarsalt
Byrjið á því að bræða smjör í potti,
leyfið því aðeins að kólna.
Setjið hvítlaukinn í hvítlauks pressu
og blandið honum saman við
smjörið.
Skerið nokkrar djúpar rákir í snittu-
brauðið og smyrjið það að utan og
inn í rákirnar með hvítlaukssmjör-
inu.
Skerið tómat í þunnar sneiðar og
setjið um það bil tvær sneiðar í
hverja rák.
Stráið rifnum osti yfir snittubrauðið,
setjið það í ofninn við 200 gráður í
um 15 mínútur.
Þegar brauðið er tekið úr ofninum
eru basilíkulauf sett í rákirnar og
stráð aðeins yfir ásamt grófu salti.
Una í eldhúsinu
Lasagne
Lasagne er alltaf góð máltíð sem
allir verða saddir og sælir af, ekki
skemmir svo fyrir að gera góðan
skammt fyrir fjóra hér á heimilinu
og eiga í afganga næsta dag.
500 g nautahakk
680 g Cirio-pastasósa (eða ykkar
uppáhalds pastasósa)
170 g tómat-paste
4-5 stk. gulrætur
½ gul paprika
½ rauð paprika
½ búnt fersk basilíka
4 msk. ólífuolía
1 stk. laukur
2 stk. hvítlauksgeirar
100 g lasagne-pastaplötur
250 g kotasæla
Rifinn ostur
Salt og pipar
Byrjið á því að skera niður græn-
metið, setjið hvítlaukinn í pressu
og steikið það allt saman upp úr
ólífuolíu á pönnu.
Steikið hakkið á pönnu, kryddið
vel og blandið saman við græn-
metið.
Blandið pasasósunni saman við
ásamt tómat-paste-inu, leyfið að
malla á pönnunni í um 20 mínútur.
Leggið 1/3 af blöndunni í botninn
á eldföstu móti, 1/3 af pastaplöt-
unum yfir og dreifið kotasælu yfir.
Endurtakið þetta 2-3 sinnum.
Stráið svo rifnum osti yfir í lokin
og setjið í ofn í 25-30 mínútur á
um 200 gráðu hita.
Una Guðmundsdóttir elskar
allt með bræddum osti. Hver
gerir það ekki? Hér fær ostur
að njóta sín á klassísku lasagne
sem flest öll heimili elska.
MYNDIR/AÐSENDAR
32 MATUR 16. OKTÓBER 2020 DV