Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2020, Blaðsíða 33
Steikt rauðkál með svörtu quinoa, gúrmet linsum, stökku grænkáli og dijonsósu
Fyrir 2, 4 ef forréttu
½ rauðkálshaus
2 dl svart quinoa (eða venjulegt)
2 lúkur grænkál
8-10 radísur
2 dl soðnar linsur
2-3 skalottlaukar
Nokkrar greinar ferskt timjan
3-4 msk. vegan smjör
3 msk. vegan majónes
3 msk. vegan sýrður rjómi
2-3 tsk. hlynssýróp
½ grænmetisteningur
1 dl heslihnetur, muldar eða flögur
Ólífuolía
1 tsk. cumin
1 tsk. timjan
1 tsk. múskat
1-2 tsk. dijon
1 tsk. dill
1 tsk. estragon
Sítrónusafi
Salt og pipar
Hitið ofninn upp í 180°.
Hitið ½ l af vatni, ég nota alltaf hrað-
suðuketil.
Hitið undir pottinum sem quinoað á
að fara í. Leyfið botninum að hitna og
setjið svo quinoað út í. Eftir 1-2 mín.
látið þið grænmetisteninginn yfir og
hellið svo yfir heitu vatninu. Fáið upp
suðu og leyfið svo að malla í 20 mín.
Rífið grænkálið og setjið í eldfast
mót og einnig radísurnar. Setjið olíu
yfir og setjið inn í ofn í ca. 20 mín.
Skerið rauðkáli í tvennt, geymið hinn
helminginn í eitthvað skemmtilegt.
Skerið í hálfmánasneiðar, ca 1-2 cm
þykkar. Reynið að láta ekki detta í
sundur. Hitið olíu á pönnu miðlungs-
hita. Setjið svo um 2 msk. smjör á
pönnuna.
Skerið skalottlaukinn í frekar grófa
sneiðar og setjið á pönnuna. Látið
„rauðkálssteikurnar“ á pönnuna
eftir 2-3 mínútur. Hellið olíu yfir og
kryddið með cumin, timjan, múskati,
salti og pipar. Snúið við og reynið að
láta þær halda sér saman. Hrærið í
quinoa og látið smá smjörklípu út
í, salt og pipar og einnig 1-2 tsk.
hlynsíróp.
Sósan
Hrærið saman majónesi, sýrðum
rjóma ,1-2 tsk. dijon, dilli, estragon,
sýrópi, smá sítrónuskvettu, salti og
pipar.
Takið grænkál og radísur úr ofn-
inum. Grænkálið getur verið smá
misjafnt eftir ofnum og þarf stundum
skemmri tíma svo það brenni ekki
við.
Látið rauðkálið á diska og látið þá
linsubaunirnar á sömu pönnu, leyfið
skalottuauknum og timjan að vera á,
smá skvettu af ólífuolíu og við frekar
háan hita og eldið í ca. 3 mínútur.
Látið svo quinoað á diskana með
rauðkálinu, radísum, grænkáli, sós-
unni og að lokum linsurnar. Skreytið
með timjangreinum og muldum
heslihnetum.
Ég er alltaf með æði fyrir grænkáli. Það er eins og ég sé háð því. Er með
2008 statusa á Facebook um
grænkál,“ segir Eva og hlær
aðspurð um sitt uppáhalds
hráefni. „En já, ef ég ætti að
nefna eitthvað þá er það lík
lega rauðkál. Í fyrstu bylgju
COVID bjó ég til kálböggla,
mjög fallegir þó ég segi sjálf
frá.
Í síðustu viku skellti ég
helmingi í súpu og hinum
helmingnum inn í ofn. Súpan
varð fallega bleik og ólík öllu
sem ég hef eldað.“
Vikuplan er snilld
Eva hefur verið grænkeri í um
20 ár og síðustu 3 ár hefur hún
eldað nánast bara vegan mat.
„Matreiðsla er mín hug
leiðsla má segja og ég legg
mikla áherslu á að elda nán
ast á hverju kvöldi. Er með
vikuplan fyrir virku dagana
en ekki flókið plan, bara súpa
á mánudögum, pasta á þriðju
dögum, afgangar/snarl á mið
vikudögum, alþjóðlegt eins
og thai, indverskt, mexikóskt
á fimmtudögum og pitsa á
föstudögum.
Ég er orðin duglegri að
kaupa eitthvað einfalt eða
skyndimat þegar ég er þreytt.
Ég verð bara oft svo „mat
sár“, finnst sumt heimkeypt
svo dýrt og ekkert gott,“ segir
Eva sem leggur mikið upp úr
hollum og heilnæmum mat.
„Ekki láta innihaldslista
hræða ykkur. Ef þið eigið
ekki eitthvað, þá bara sleppið
því eða notið eitthvað í stað
inn. Og ef þið viljið nota frek
ar venjulegt smjör eða majó
nes þá er bara um að gera.
Ekki taka eldamennskuna of
alvarlega – æfingin skapar
meistarann.“ n
MATSÁR ELDHÚSDROTTNING
Eva Einarsdóttir, kynningarfulltrúi fyrir Erasmus+
og Nordplus, er galdrakona í eldhúsinu. Hún er
hetja þegar kemur að grænmeti og maturinn
hennar einkennist af flóknu bragði og fegurð.
MATUR 33DV 16.OKTÓBER 2020
Matseðill
Evu
Morgunmatur
Hef litla matarlyst á morgnana.
En fæ mér stundum hafragraut
eða chiagraut. Stundum banana.
Annars bara kaffi, kaffi.
Millimál
Fæ mér stundum „ógeðisdrykk
inn” sem vekur athygli í vinnunni,
ískalt vatn, chiafræ, kanil og smá
eplaedik. Ekki hugsað sem eitt
hvað grennandi heldur finnst mér
þetta gera maganum gott.
Hádegismatur
Er yfirleitt með nesti með mér í
vinnunni. Oftar en ekki afganga
frá kvöldinu áður. Súpur í miklu
uppáhaldi. Á líka alltaf súpur frá
Amy’s kitchen, lífrænar og mjög
svona „feel good”.
Millimál á daginn
Ég er háð sódavatni og á það
alltaf til í vinnunni. Eins á ég
alltaf dökkt súkkulaði og hnetur
í skúffunni. Já, og lakkrís auð
vitað. Svo fæ ég mér stundum
hrökkbrauð síðdegis.
Kvöldmatur
Oft súpa eða eit thvað af viku
listanum. Svo er ég ekkert mikill
nartari á kvöldin, er ekki mikill
nammigrís. Ja, nema ef rauðvín
telst sem nammi.
Rauðkál á hug og hjarta Evu um þessar mundir. MYNDIR/STEFÁN KARLSSON
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is