Fréttablaðið - 17.10.2020, Síða 8
ENGIN SKILYRÐI. ÞÚ ÞARFT HVORKI LYKIL NÉ KORT.
ÖNNUR VILDARKJÖR GILDA EKKI MEÐ LÆGSTA VERÐI ÓB.
ob.is
LÆGSTA
VERÐ ÓB
ARNARSMÁRI
BÆJARLIND
FJARÐARKAUP
HLÍÐARBRAUT AKUREYRI
BRETLAND Boris Johnson, forsætis-
ráðherra Bretlands, sagði að óþarfi
væri fyrir Michel Barnier, aðal-
samningamann Evrópusambands-
ins, að mæta til fundar á mánudag
myndi sambandið ekki gefa eftir
kröfur varðandi framtíðarvið-
skiptasamning.
Í ávarpi til þjóðarinnar sagði
hann að allt eins líklegt væri að Bret-
land yrði samningslaust um áramót,
eða með lauslegt fríverslunarsam-
komulag líkt og Ástralir hafa.
Stjórn Johnsons hefur þrýst fast
á að viðræðurnar gangi hratt fyrir
sig því lítill tími er til stefnu áður en
aðlögunartíma útgöngunnar lýkur
í lok árs. Evrópusambandið hefur
hins vegar verið opnara fyrir því
að framlengja aðlögunartímann
og taka meiri tíma í viðræðurnar,
sérstaklega í ljósi þess að baráttan
við heimsfaraldurinn hefur tekið
mikinn tíma og athygli frá þeim.
Angela Merkel Þýskalandskansl-
ari hvatti Johnson til að halda við-
ræðunum áfram. Báðir aðilar yrðu
að gefa eftir í sínum ítrustu kröfum.
Emmanuel Macron Frakklands-
forseti var harðari í horn að taka og
sagði að Bretar yrðu að taka skil-
málum sambandsins eða ganga út
samningslausir. Myndi það koma
Frökkum vel, sem hafa unnið að því
að laða fyrirtæki frá Lundúnum til
Parísar og gera borgina að fjármála-
miðstöð álfunnar.
Stjórnarandstæðingar í Bretlandi
hafa brugðist hart við ummælum
Johnsons. Frjálslyndir demókratar
segja þau glæfraleg í meira lagi, í
ljósi þess hvað sé í húfi fyrir Bret-
land.
„Við ættum ekki að vera að kljást
við þetta stóra mál núna þegar fók-
usinn þarf að vera á COVID,“ sagði
Nicola Sturgeon, leiðtogi Skoska
þjóðarflokksins.
Gagnrýndi Sturgeon Johnson
fyrir að taka ekki boði sambandsins
um framlengingu aðlögunartíma-
bilsins. Hennar eigin flokkur hefði
sett undirbúning að nýrri þjóðarat-
kvæðagreiðslu um sjálfstæði Skot-
lands á ís meðan faraldurinn gengur
yfir. Framganga Johnsons sýndi þó
enn og aftur hvers vegna Skotlandi
væri betur borgið á eigin fótum. – khg
Boris Johnson að missa þolinmæðina
Johnson sagði Bretum að búast allt eins við samningsleysi. MYND/GETTY
COVID-19 Einyrkjar og litlir rekstr-
araðilar sem orðið hafa fyrir veru-
legum tekjumissi vegna heims-
faraldurs og sóttvarnaaðgerða
stjórnvalda, geta fengið tekju-
fallsstyrki verði frumvarp sem
samþykkt var í ríkisstjórn í gær
að lögum. Verja á rúmum fjórtán
milljörðum króna í verkefnið.
Styrkjunum er meðal annars
ætlað að styðja minni rekstrarað-
ila í menningar- og listgreinum,
ferðaleiðsögumenn og aðra minni
rekstraraðila.
Í tilkynningu segir að styrkirnir
muni jafngilda rekstrarkostnaði á
tímabilinu frá 1. apríl 2020 til 30.
september 2020 en að hámarki 400
þúsund krónum fyrir hvert stöðu-
gildi á mánuði.
Skilyrði til að fá tekjufallsstyrk
er að umsækjandi hafi orðið fyrir
50 prósenta tekjufalli á tímabilinu
1. apríl til 30. september 2020, að
ekki starfi f leiri en þrír launamenn
hjá umsækjanda og að umsækjandi
hafi skattskyldu á Íslandi, lág-
marksveltu og skilvísi á opinberum
gjöldum og gögnum til Skattsins.
Forsætisráðherra og mennta- og
menningarmálaráðherra kynntu,
tíu stuðningsaðgerðir stjórnvalda
fyrir listir og menningu í Hörpu í
gær.
Auk tekjufallsstyrkja er áformað
að hækka starfslaun og styrki til
listamanna tímabundið fyrir árið
2021 og framlengja tímamörk verk-
efnastyrkja til menningarmála.
Þá mun ríkisstjórnin standa að
stofnun Sviðslistamiðstöðvar og
Tónlistarmiðstöðvar og efna til
vitundarvakningar um mikilvægi
lista og menningar á Íslandi.
Aðgerðirnar verða kynntar nánar
á næstu vikum en þær eru sagðar
vera fjölþættar og miða að því að
bæta stöðu starfandi listamanna
og menningartengdra fyrirtækja,
að sögn stjórnvalda.
„Staða listamanna og fólks í skap-
andi greinum hefur verið f lókin
og erfið frá fyrsta degi samkomu-
banns. Hefðbundin úrræði sem
grípa eiga fólk í erfiðri stöðu á
vinnumarkaði hafa ekki nýst lista-
mönnum sem skyldi. Því eru þetta
kærkomnar aðgerðir sem bæta tap
og brúa tíma sem við öll vonum
að verði sem stystur,“ sagði Erling
Jóhannesson, forseti Bandalags
íslenskra listamanna, sem tók þátt
í kynningu aðgerðanna ásamt Þór-
unni Sveinbjarnardóttur, formanni
Bandalags háskólamanna.
Erling sagði að í þessum aðgerð-
um væru að auki verkefni sem
myndu bæta framtíð greina og
stöðu listamanna.
„Bæði á vinnumarkaði og í þeirra
mikilvæga hlutverki að lita heim-
inn bjartari litum,“ sagði Erlingur.
eidur@frettabladid.is,
adalheidur@frettabladid.is
Milljarðar til einyrkja
og lítilla fyrirtækja
Einyrkjar og lítil fyrirtæki geta fengið tekjufallsstyrki sem nema rekstrar-
kostnaði þeirra, verði frumvarp fjármálaráðherra að lögum. Frekari stuðn-
ingsaðgerðir stjórnvalda fyrir listir og menningu voru kynntar í Hörpu gær.
Katrín Jakobsdóttir og Lilja Alfreðsdóttir kynntu aðgerðir ríkisstjórnar í Hörpu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
COVID-19 Ísland er litað grátt á lita-
kóðunarkorti Sóttvarnastofnunar
Evrópusambandsins. Ekki hafa bor-
ist nægar upplýsingar héðan til þess
að hægt sé að flokka landið.
Eins og greint var frá í vikunni
hafa ESB- og EES-löndin komið sér
saman um kerfið til þess að sam-
rýma takmarkanir.
Kortið hefur nú verið birt. Er
stærstur hluti álfunnar rauðmerkt-
ur. Það þýðir að mikil hætta er á að
smitast og búast megi við skimun-
um og sóttkví þegar þangað sé farið.
Fá svæði eru græn, sem er lægsta
stig. Auk Íslands eru Svíþjóð, Dan-
mörk, Þýskaland og Austurríki
grámerkt, sem þýðir að gera verði
ráð fyrir sömu takmörkunum og á
rauðum svæðum.
Ólíkt f lestum öðrum löndum er
Ísland skilgreint sem stakt svæði. Er
nýgengi engu minna en í Bretlandi,
Frakklandi, Spáni og f leiri Vestur-
Evrópulöndum þar sem það er hæst.
ESB skortir hins vegar upplýsingar
um tíðni prófana til þess að geta
litamerkt landið. – khg
Ísland litað grátt á landakorti ESB
Við ættum ekki að
vera að kljást við
þetta stóra mál núna þegar
fókusinn þarf að vera á
COVID.
Nicola Sturgeon, formaður Skoska
þjóðarflokksins
Styrkirnir eru að há-
marki 400 þúsund krónur á
mánuði á hvert stöðugildi.
1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð