Fréttablaðið - 17.10.2020, Síða 16

Fréttablaðið - 17.10.2020, Síða 16
FÓTBOLTI Bjarni Jóhannsson mun að loknu yfirstandandi keppnis­ tímabili ljúka störfum sínum sem þjálfari karlaliðs Vestra í knatt­ spyrnu. Þegar Bjarni tók við þjálfun karla­ liðs Vestra í knattspyrnu haustið 2017 hafði liðið hafnað í níunda sæti 2. deildar og nú þremur árum síðar er liðið í sjöunda sæti 1. deildar, þegar tvær umferðir eru eftir. Það má því með sanni segja að Bjarni skilji eftir sig gott bú þegar hann skilur við Vestfirðinga, enda mátti lesa úr tilkynningu Vestra um viðskilnaðinn að ósk félagsins hefði verið að halda samstarfinu áfram. „Ég er búinn að vera fyrir vestan í þrjú ár og það er ágætis tíma­ punktur núna finnst mér til þess að láta gott heita. Eins og umhverfið er í knattspyrnuþjálfun hér heima þá finnst mér þrjú ár fínn tími til þess að stýra liði. Það var vel tekið á móti mér þegar ég kom vestur og mér hefur liðið mjög vel þau þrjú ár sem ég hef verið hérna. Okkur hefur tekist að koma liðinu í hóp 20 bestu liða landsins á meðan ég hef verið við störf og ég get ekki verið annað en bara mjög sáttur við það. Sérstaklega í ljósi þeirrar aðstöðu sem Vestri býr við,“ segir Bjarni um ástæðu þess að hann sé að hætta. „Það er nú þannig að ég var leik­ maður ÍBÍ árið 1982 og aðstaðan fyrir vestan hefur ekkert breyst frá þeim tíma. Gervigrasvöllurinn sem hefur komið síðan þá er hand­ ónýtur og það er algjört neyðarúr­ ræði fyrir mig að vera með æfingu á þeim velli. Þá er sami grasflötur og undirlagið er jafnvel verra en það var fyrir hartnær 40 árum síðan. Aðstaðan hérna er algjörlega óboðleg fyrir þá metnaðarfullu knattspyrnumenn sem hér eru, svo ég tali nú ekki um þá sem halda utan um félagið. Sammi [Samúel Samúelsson] og hans menn eru að vinna algjört kraftaverk hérna miðað við efni og aðstæður. Vest­ firðingar búa við aðstæður til knatt­ spyrnuiðkunar sem eru þremur áratugum á eftir því sem gengur og gerist hjá öðrum félögum á landinu. Mér finnst vera kominn tími til þess að bæjaryfirvöld vakni til lífsins og láti verða af þeim áformum sem hafa verið í burðarliðnum í tæpan áratug. Þeir sem stunda og vinna við knattspyrnuna fyrir vestan eiga það svo sannarlega skilið,“ segir þjálfar­ inn margreyndi. „Það er í raun ótrúlegt að á Ísa­ firði og á f leiri stöðum á lands­ byggðinni, að þar sé ekki til staðar knattspyrnuhús. Liðin utan af landi eru að dragast aftur úr vegna aðstöðuleysis og því verður að kippa í liðinn eins f ljótt og nokkur kostur er. Við sjáum að KA er eina landsbyggðarfélagið sem er í efstu deild og þeirri þróun finnst mér þurfa að breyta. Það er líka erfitt að fá fjölskyldur til þess að búa á stað eins og Ísafirði á meðan aðstaða til íþróttaiðkunar er jafn bágborin og raun ber vitni,“ segir hann. „Sá árangur sem við höfum náð er einnig merkilegur, þegar til þess er litið að við verjum um það bil 36 klukkustundum í hvern einasta deildarleik sem við spilum. Þeir strákar sem spila með liðinu leggja alveg ótrúlega mikið á sig til þess að liðinu gangi vel og ég tek hatt minn ofan fyrir þeim. Mér finnst sá kjarni af heimamönnum sem hefur verið hér undir minni stjórn hafa bætt sig töluvert. Fyrst að þú snýrð upp á hendina á mér og biður mig að taka einn leik­ mann út fyrir sviga þá myndi ég vilja nefna Friðrik Hjaltason. Hann var ekki fastamaður í liðinu þegar ég tók við, en er nú fyrirliði liðsins og lykil­ leikmaður. Það verður gaman að fylgjast með þróuninni á ferli hans,“ segir Bjarni um liðið sitt. „Hvað framhaldið varðar þá er það algerlega óráðið. Ég var nú eiginlega kominn á þann stað að hugsa um að láta gott heita þegar starfið hjá Vestra kom upp. Ég hef hins vegar enn ástríðu fyrir knatt­ spyrnu og góða starfsorku. Minn draumur varðandi næsta starf væri að vera hluti af öflugu þjálfarateymi hjá félagi þar sem mikill metnaður væri fyrir því að vinna faglegt starf og stefna til framtíðar væri á hreinu. Svo er ekkert launungarmál að ég myndi vilja vinna hjá félagi með góða aðstöðu, eða þar sem raun­ veruleg áform eru um að byggja upp almennilega aðstöðu. Við sáum það síðasta haust að félög á borð við Val og Stjörnuna bjuggu til öflug teymi í kringum lið sín, þar sem tveir úrvalsdeildarþjálfarar með mikla reynslu eru í teyminu. Ég væri meira en til í að komast inn í þann­ ig umhverfi,“ segir Bjarni aðspurður um hvað framtíðin beri í skauti sér. hjorvaro@frettabladid.is Mér finnst vera kominn tími til þess að bæjaryfirvöld vakni til lífsins og láti verða af þeim áformum sem hafa verið í burðarliðnum í tæpan áratug. Bjarni Jóhannsson Myndi vilja starfa í góðu teymi Tilkynnt var í vikunni að Bjarni Jóhannsson myndi láta af störfum hjá Vestra eftir tímabilið eftir þriggja ára dvöl. Eftir að hafa íhugað að hætta þjálfun fyrir dvölina á Ísafirði segist Bjarni ekki vera að hætta. Bjarni ásamt lærisveinum sínum í Vestra en þeir eru búnir að tryggja sæti sitt í Lengjudeildinni. MYND/AÐSEND FÓTBOLTI Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, hefur ekki fengið inn á borð til sín ákvarðana­ tökuna sem varð til þess að KSÍ fékk undanþágu til að geta spilað þrjá landsleiki. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almanna­ varnadeild ríkislögreglustjóra og fyrrverandi starfsmaður KSÍ, ætlar ekki að koma að fleiri ákvörðunum er varða íþróttastarf, en Víðir fór langt út fyrir sitt valdsvið, eins og hann segir sjálfur í viðtali við Vísi, þegar hann veitti landsliðsþjálfur­ um Íslands leyfi til að rjúfa sóttkví á leik Íslands og Belgíu. Allir geta kvartað til umboðs­ manns Alþingis. Hver sá sem telur stjórnvald eða einkaaðila sem fengið hefur stjórnsýsluvald hafa beitt sig rangindum, getur borið fram kvörtun. KSÍ fékk töluverðar undanþágur frá sóttvarnalögum til að halda landsleikina, en íþrótta­ starf liggur niðri þessa stundina vegna sóttvarnalaga. Starfsmenn KSÍ virtu þær reglur ekki. Fóru jafn­ vel í bíltúra með leikmenn saman, leikmenn og starfsmaður, með leyfi Víðis. Víðir sagði við Fréttablaðið í gær að allra sóttvarna hefði verið gætt í bílferðinni. KSÍ sagði að tilfinningar hefðu ráðið för, í yfirlýsingu um starfs­ menn sem hefðu gleymt sér: „Stund­ um ráða þessar tilfinningar för og menn gleyma sér. Það afsakar ekki það sem gerðist, en gefur allavega skýringu,“ segir í yfirlýsingunni. „Vandamálið er að þetta er ekki oft ljóst, hvort þetta eru reglur eða tilmæli eða þvíumlíkt,“ segir Tryggvi. Lögreglan getur sektað þá sem gerast uppvísir að broti á sótt­ vörnum, en fyrirspurn Fréttablaðs­ ins um hvort starfsmennirnir, sem brutu sóttvarnarlög fái sekt, var ekki svarað. – bb Umboðsmaður Alþingis ekki skoðað undanþágu KSÍ Þorgrímur Þráinsson, gleymdi grímu þegar hann arkaði út á völl að knúsa leikmenn eftir sigurleikinn gegn Rúmeníu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK HANDBOLTI Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, hefur valið 17 leikmenn fyrir leiki liðsins gegn Litháen og Ísrael í undan­ keppni EM 2022. Leikirnir, sem eru fyrstu leikir undankeppninnar, fara báðir fram í Laugardalshöll. Athygli vekur að Óskar Ólafsson, leikmaður norska liðsins Drammen, er í hópnum en hann er eini nýlið­ inn í hópnum. Þá koma Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnús­ son, sem spila báðir hjá Magdeburg, aftur inn í leikmannahóp íslenska liðsins. Oddur Grétarsson, sem leikur fyrir þýska liðið Balingen, er síðan annar vinstri hornamann­ anna. Hópinn í heild sinni má sjá á vef Fréttablaðsins. Til stendur að leika tvo leiki hér heima í þessari landsliðsviku, þar sem Ísrael óskaði eftir að víxla heimaleikjum vegna ástandsins þar og varð HSÍ við þeirri ósk. Ísland tekur á móti Litháen miðviku­ daginn 4. nóvember og svo Ísrael sunnudaginn 7. nóvember. – hó Eitt nýtt andlit í hópi Íslands ÍÞRÓTTIR Guðmundur Ingi Guð­ brandsson, starfandi heilbrigðis­ ráðherra, kynnti í gær helstu atriði sem fram koma í reglugerð sem mun taka við af gildandi reglum um sóttvarnir á landinu á mánudaginn kemur. Þar munu þau tilmæli sem gilt hafa um íþróttastarf á Íslandi koma inn í reglugerðina. Þannig verður áfram æfinga­ og keppnis­ bann barna og fullorðinna næstu tvær til þrjár vikurnar á höfuð­ borgarsvæðinu. Bannið hefur verið í gildi í tvær vikur og náð til allra íþróttaliða innan höfuðborgarsvæðisins en lið utan Reykjavíkur mega æfa áfram. Sömu reglur munu því gilda áfram um íþróttaiðkun innandyra og utandyra í reglugerðinni sem verður kynnt nánar í dag. – hó Áfram heimilt að æfa úti á landi 1 7 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT Guðmundur á góðri stundu. HANDBOLTI Afturelding mun ekki senda lið til leiks í Evrópubikarn­ um í handbolta í vetur, eins og til stóð. Var það ákveðið í ljósi þeirra áhrifa sem kórónaveirufaraldurinn myndi hafa á ferðalög liðsins. „Vegna ferðatak mark ana og sótt varn ar á kvæða af völd um kór­ ónuaveirufar ald urs ins, sér stjórn hand knatt leiks deild ar Aft ur eld­ ingar sér ekki fært annað en að draga karlalið sitt úr Evr ópu keppn­ inni í hand bolta í ár.“ Aft ur eld ing átti að leika við Gran­ itas­Karys frá Lit há en 14. nóvem­ ber og aft ur 21. nóvember. Granitas mun því fara sjálf krafa áfram í 3. um ferð keppn inn ar. Áður hafði Valur tekið sömu ákvörðun um karla­ og kvennalið félagsins. – hó Hætta við að keppa í Evrópu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.